Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Qupperneq 8
miðvikudagur 25. júní 20088 Fréttir DV
NígeríusviNdl í
smáskilaboðum
Fjársvindlarar eru farnir að senda SMS-smáskilaboð í farsíma til að reyna að hafa fé af fólki. Guðjón Jóns-
son fékk tilkynningu um að hann hefði unnið tæpa eina milljón punda, andvirði tæpra 160 milljóna króna.
Full ástæða er til að vara fólk við skeytum af þessu tagi, segir Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari
efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra.
„Til hamingju, GSM-númer yðar
hefur unnið 945.000 pund í far-
símahappdrætti, féð er til reiðu.“
Á þessa leið hófust afar sérstök
smáskilaboð sem Guðjón Jónsson,
rúmlega tvítugur Reykvíkingur, fékk
sent í GSM-símann sinn aðfaranótt
mánudags. Í framhaldinu er síðan
tilgreint veffang sem hinn „heppni“
getur haft samband við til að nálg-
ast vinninginn.
Aldrei séð símasvindl áður
Guðjóni þykir nokkuð ljóst að
um einhvers konar svindl sé að
ræða. „Ég hef fengið marga svona
tölvupósta. Það er alltaf eitthvert
Nígeríusvindl. Ég býst við því að
þetta sé það líka,“ segir Guðjón og
nefnir undarlegt veffang umsjón-
armannsins Dericks því til stuðn-
ings.
Eins og Guðjón bendir á er
algengt að svikahrappar sendi
tölvupóst til viðtakenda af handa-
hófi og reyni að blekkja fólk til að
reiða fram kreditkortanúmer sín.
Það er hins vegar nýlunda að ís-
lenskir farsímanotendur fái áreit-
ið þessa leiðina.
Helgi Magnús Gunnarsson,
saksóknari efnahagsbrotadeild-
ar ríkislögreglustjóra, tekur und-
ir það og segist ekki muna eftir
að hafa séð Nígeríusvindl í síma
áður. Lögreglunni hafa ekki borist
kvartanir vegna skeyta á borð við
það sem Guðjón fékk.
Hafa tapað
hundruðum þúsunda
En útilokar Guðjón alveg að
gæfan brosi einfaldlega við honum
og hann hafi dottið í lukkupottinn?
„Ég veit náttúrlega ekki fyrir víst
hvort þetta sé svindl en ég geri fast-
lega ráð fyrir því.“
Ef marka má Helga Magnús hef-
ur Guðjón rétt fyrir sér. Hann segist
þekkja mynstrið í skeytinu. „Þetta er
bara hefðbundið svindl, það er eng-
inn að gefa okkur neina peninga út
á númerin okkar,“ segir Helgi. Helga
þykir líklegt að ef haft væri samband
við veffangið í skeytinu yrði send-
andinn krafinn um einhvers konar
greiðslu til að leysa út vinninginn.
Þá væri voðinn vís. Aðspurður seg-
ist Helgi halda að þó full ástæða sé
til að vara fólk við skeytum af þessu
tagi, þá viti flestir að um svindl
sé að ræða, líkt og Guðjón. Hann
þekki þess þó dæmi að saklaust fólk
hafi glatað hundruðum þúsunda í
hendur svikahrappa. Þau séu hins
vegar teljandi á fingrum annarrar
handar. „Það er náttúrlega verið að
spila á græðgi fólks,“ segir Helgi.
Ekki sá eini
Ef svo ólíklega vill til að smáskila-
boðin séu ósvikin var Guðjón ekki
sá eini heppni, því einn starfsmaður
Birtíngs útgáfufélags mætti forviða
til vinnu á mánudag með álíka skila-
boð í símann.
Það er í takt við orð Hrannars Pét-
urssonar, upplýsingafulltrúa Vod-
afone, sem segist hafa orðið var við
fjöldasendingaöldur af þessu tagi í
símkerfinu á eins til tveggja mánaða
fresti upp á síðkastið. Séu þá eink-
um tvær textagerðir notaðar. Ann-
ars vegar sú sem nefnd er að ofan
og hins vegar keimlík útgáfa þar sem
viðtakandanum er lofað 170.000
evrum, andvirði 22 milljóna króna,
hafi hann samband.
Hrannari þykir líklegt að menn-
irnir sem standi að baki smáskila-
boðunum sendi skeytin blint út um
allan heim og voni að númerin séu
virk. „Þessir spammarar eru dug-
legir, það verður ekki tekið af þeim,“
segir Hrannar.
Þrátt fyrir tilraunir blaðamanns
fengust ekki nánari upplýsingar um
málið frá umsjónarmanninum Der-
ick, sem tilgreindur var í smáskila-
boðunum, við vinnslu fréttarinnar.
HAfstEinn GunnAr HAuksson
blaðamaður skrifar hafsteinn@dv.is
„Þessir spammarar eru
duglegir, það verður
ekki tekið af þeim.“
Guðjón
Jónsson Ljóst
er að svindlarar
reyna allar
mögulegar leiðir
til að hafa fé af
fólki.
Vafasamt guðjóni
þykir afar ólíklegt að
hann hafi raunverulega
dottið í lukkupottinn.