Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Side 9
DV Fréttir miðvikudagur 25. júní 2008 9
Áfengisverð myndi standa í stað eða jafnvel hækka ef sala léttvíns og bjórs yrði heimiluð í matvöruverslunum.
Úrval víntegunda yrði ekki það sama og neytendur myndu gjalda fyrir breytingarnar, segir formaður Neyt-
endasamtakanna. Pétur Blöndal vill að Alþingi fái að greiða loks atkvæði um frumvarp sem lagt hefur verið
fram ár eftir ár. Ögmundur Jónasson telur að markaðsöflunum sé vart treystandi, þar sem þau myndu leggja
mikla áherslu á að koma áfengi ofan í almenning.
ÁFENGISVERÐ
LÆKKAR EKKI
Verð á áfengi myndi ekki lækka, ef
það yrði tekið til sölu í matvöruversl-
unum, því áfengisgjöldin yrðu áfram
þau sömu. Vöruúrval í stórmörkuð-
um og þá sérstaklega á landsbyggð-
inni yrði ekki það sama og í verslun-
um ÁTVR. Það myndi um leið kippa
fótunum undan rekstrargrundvelli
fyrir sölu sterks áfengis í sérversl-
unum. Síðustu ár hefur frumvarp
um breytingar á áfengislögum, sem
myndi heimila sölu léttvíns og bjórs í
matvöruverslunum, verið lagt fram á
Alþingi. Frumvarpið hefur hins veg-
ar aldrei komið til atkvæðagreiðslu í
þinginu, heldur dagað upp í mennta-
málanefnd.
Skrítið að hafa vit fyrir
fullorðnu fólki
Pétur Blöndal, alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins, bendir á að með
því að breyta lögum um sölu og dreif-
ingu áfengis myndi helgiljóminn af
því hverfa. Áfengi hafi hingað til verið
meðhöndlað sem sérstök vara og af-
staðan til þess hafi mótast að mörgu
leyti af því að þetta væri einhvers kon-
ar bannvara. Hann segist ekki búast
við verðlækkunum á áfengi í kjölfarið.
„Áfengisgjaldið er alltaf mjög hátt og
það hefur ekki komið til umræðu að
fella það niður. Það yrðu þess vegna
engar verðlækkanir. Hins vegar yrðu
viðhorf almennings eðlilegri eins og
maður sér víða í Mið-Evrópu og á
Englandi, þar sem ekki hvílir slíkur
helgiljómi eins og á Norðurlöndun-
um.“
Hann telur rétt að þingmenn fái
að greiða atkvæði um frumvarpið og
bendir á að ríkið yrði ekki af tekjum,
því vörugjöldin yrðu áfram þau sömu.
„Það sem mér finnst skrítið er að á 21.
öldinni sé verið að hafa vit fyrir full-
orðnu fólki. Það fer til útlanda þar
sem reglurnar eru öðruvísi og virð-
ist ekki bíða skaða af. Þar að auki má
benda á að lyf eru afgreidd í lyfjaversl-
unum og þau geta verið jafnvel hættu-
legri en áfengi. Ég sé engin rök fyrir að
embættismenn séu að afgreiða áfengi
frekar en aðrir.“
Vöruúrval ekki hið sama
„Þegar ég skoða málið gaumgæfi-
lega út frá sjónarmiði neytenda ótt-
ast ég að í fyrsta lagi myndi vöruúrval
minnka til muna. ÁTVR hefur haldið
úti mjög góðu úrvali af léttvíni og bjór
og ég hef grun um að verslanir myndu
ekki halda úti sama úrvali. Í öðru lagi
er álagning ÁTVR mjög lág, þannig að
ég er viss um að verð myndi hækka,“
segir Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna. Hann segist
einnig óttast að grundvöllur fyrir sölu
á sterku áfengi yrði minni, ef frum-
varp um sölu á léttu víni í mat-
vörubúðum myndi ná fram að
ganga. „Að mínu mati er að-
gengi að áfengi ekki vanda-
mál,“ segir hann.
Þjóðin yrði fyllri
Ögmundur Jónas-
son, þingflokksformað-
ur vinstri grænna, tekur
undir með Jóhannesi
um að vöruverð
myndi hækka
og að
vöruúrval yrði minna. „Þjóðin yrði
ennþá fyllri en hún er núna. Ég hef
ekki vantrú á markaðsöflunum, þvert
á móti hef ég ofurtrú á því að þau yrðu
duglegri að koma brennivíni í þjóð-
ina,“ segir hann. Ögmundur spyr hvað
myndi gerast í litlum sveitarfélögum á
landsbyggðinni, þar sem ÁTVR hefur
haldið úti góðu vöruúrvali í verslun-
um sínum. „Halda menn að það verði
hundrað tegundir þar eins og nú er?
Frekar skyldi ég ætla að menn myndu
halda sig við eina tegund af vodka,
eina rauða og eina hvíta. Frá sjón-
arhóli neytandans og frá sjónarhóli
skattborgarans sé ég ekki forsendur
fyrir því að breyta þessu.“
Hann bendir einnig á að út frá lýð-
heilsusjónarmiðum, yrði breytingin
ekki góð. „Eftir því sem rauðvínið fær-
ist nær steikinni, í matvörubúðinni,
því hraðar gengur lagerinn út.“ Ög-
mundur hnýtir einnig í frjálshyggju-
fólk, sem hefur barist fyrir því
að áfengi
yrði selt í matvöruverslun-
um. „Ætti þetta fólk ekki að
finna sér eitthvað verðskuld-
að að berjast fyrir?“
Flókið
„Ég tel að þetta myndi
auka veltuna í matvöru-
verslunum sem yrði til þess
að lækka vöruverð eða jafna
út kostnað við að koma öðr-
um vörum á markað,“ segir
Jóhannes Jónsson, kaup-
maður í Bónus. Hann býst
við því að strangar reglur
yrðu um afgreiðslu áfeng-
is í matvöruverslunum og
í verslunum Bónuss starfi
ungt fólk og því sé ekki víst
að allir gætu tekið að sér
að selja áfengið.
„Ég geri mér ekki grein
fyrir hvort lækkunin yrði
mikil. Lágmarskverð yrði
vafalaust sett á bjór
og vín og þetta
yrði vara sem
okkur myndi
ekki leyfast að
fara með í til-
boðsstríð. “
„Það yrðu þess vegna engar verðlækkanir. Hins vegar yrðu viðhorf al-
mennings eðlilegri eins og maður sér víða í Mið-Evrópu og á Englandi,
þar sem ekki hvílir slíkur helgiljómi eins og á Norðurlöndunum.“
ValGEIR ÖRN RaGNaRSSON
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
léttvín Áfengisgjöld
yrðu áfram þau sömu þó
léttvín og bjór yrðu seld í
matvöruverslunum.
Jóhannes Gunnarsson
„að mínu mati er
aðgengi að áfengi ekki
vandamál.“
Ögmundur Jónasson
„Þjóðin yrði ennþá fyllri
en hún er núna.“
Pétur Blöndal „Það sem
mér finnst skrítið er að á
21. öldinni sé verið að hafa
vit fyrir fullorðnu fólki.“