Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Side 22
miðvikudagur 25. júní 200822 FERÐIR DV
xxxxxxxxxxx
xxxxxxxxxx
FERÐamolaR
lUMIÐ AllTAF Á SPIlUM
Það ætti ekki að koma neinum á óvart ef það rignir á ferðalagi um ísland. Þá
er úr vöndu að ráða því flest er skemmtilegra að gera í sól. Þess vegna getur
verið gott að hafa spil í bílnum og geta stoppað í næstu sjoppu og spilað
saman. Þó foreldrunum leiðist rigningin finnst flestum börnum alveg
jafnskemmtilegt í sundi þótt það rigni. Ef það rignir lengi er alltaf hægt að
elta góða veðrið, eða í það minnst reyna.
gÍTARINN ÓMISSANDI
Það er ómissandi að hafa gítarinn með í ferðalagið, það er að segja ef einhver
kann að spila á hann. í bókabúðunum fást litlar gítarbækur með mismunandi
áherslum. Þar er hægt að fá lagasafn villa vill, krakkalögin, útilegulög,
Stuðmannalög og margt fleira. Á björtum sumarkvöldum er dásamlegt að
sitja í góðra vina hópi og kyrja saman íslensku útilegulögin eftir að hafa belgt
sig út af grillmat. Þá er bara að muna að sýna öðrum tjaldgestum tillitssemi.
leyNDARMÁl Í NÁTTúRUNNI
víða um landið leynast náttúrulegir heitir pottar. Sem dæmi er heitur lækur í
reykjadal inn af Hveragerði, heit laug á grettisslóðum í Skagafirði og heitur
pottur í leynum djúpt inni í Eyjafirði. Það getur reynst þrautin þyngri að
komast allur ofan í slíka dásemd því hitastigið er stundum nokkrum gráðum
heitara en okkur þykir æskilegt. Því er best að fara að öllu með gát og muna
að ganga frá á eftir sig, það er afar óspennandi að dýfa tánum ofan í
hveravatn í bland við sígarettuösku.
TÓNlISTIN Í bÍlNUM
Ef halda skal í langferð er ein
s gott að huga að
tónlistinni sem spila skal í lö
ngum bílferðum. Oft
getur reynst erfitt að ná sam
bandi við útvarps-
stöðvarnar ef maður er kom
inn lengst upp á
hálendið og það er eins gott
að bílstjórinn missi
ekki athyglina við aksturinn
til að leita að réttu
útvarpsstöðinni. Ef fjölskyldu
meðlimir eru á
öllum aldri getur verið sniðu
gt að skrifa nokkra
geisladiska með uppáhaldsl
ögum fjölskyldumeð-
lima til að allir fái að hlusta á
tónlist við sitt hæfi
og enginn verði súr. nýverið
kom líka út hjá Senu
box með fimm geisladiskum
sem nefnast 100
Bestu Lög Lýðveldisins. Þar e
r að finna rjómann af
íslenskum dægur-, rokk- og
popplögum sem
komið hafa út í gegnum tíði
na og ættu allir að
finna eitthvað við sitt hæfi.