Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Síða 32
miðvikudagur 25. júní 200832 FERÐIR DV
Golfvöllurinn í Vík
Perla sem er vert að skoða nánar
Fallegur og vel hirtur 9 holu strandvöllur
Óviðjafnanlegt umhverfi
Góð þjónusta í göngufæri frá vellinum
Vorið kemur snemma til Víkur
Aðeins 2 klst. akstur frá Reykjavík
http://golf.is/pages/klubbasidur/golfklubburinnvik
http://www.vik.is/golf.htm
Landsmót hestamanna verður með glæsilegasta móti á Hellu í næstu viku. Vegleg skemmtiatriði í boði fyrir
alla fjölskylduna og glæsilegustu hestar landsins.
Landsmót hestamanna fer fram
á Gaddstaðaflötum við Hellu vik-
una 30. júní til 6. júlí. Landsmót
hafa verið gífurlega vel sótt und-
anfarin ár og má búast við mörg
þúsund gestum og mörgum glæsi-
legustu hrossum landsins. Saga
Landsmótanna nær aftur til árs-
ins 1950 þegar fyrsta Landsmótið
fór fram á Þingvöllum. Þá var að-
eins keppt í einum flokki, sem var
flokkur alhliða gæðinga, auk kapp-
reiða og kynbótasýninga. Næstu
áratugi þar á eftir voru Landsmót
haldin á fjögurra ára fresti, en árið
2000 tók gildi nýtt skipulag og hafa
Landsmótin verið haldin annað
hvert ár síðan.
Stuð og stemning
Þarfasti þjónninn verður ekki sá
eini sem mun sjá um að hafa ofan
af fyrir fólki. Fjölmargir íslenskir
tónlistarmenn munu stíga á svið á
Landsmótinu. Má þar nefna æringj-
ana í Hjálmum, Merzedes Club og
Helga Björnsson, sem mun frum-
flytja nýja kántrí-tónlist á mótinu. Þá
mun grínistinn Sveppi úr Strákunum
á Stöð 2 skemmta fólkinu.
Þegar DV ræddi við Jónu Fann-
eyju Friðriksdóttur, framkvæmda-
stjóra Landsmótsins, var hún stödd
á mótsstað að undirbúa mótið, enda
rétt tæp vika þar til svæðið verður
undirlagt af bæði mönnum og hest-
um.
Yngsta kynslóðin fær sitt
Landsmót hestamanna er fjöl-
skylduhátíð, enda verður glæsilegt
leiksvæði fyrir börnin sett upp. Þar
má meðal annars sjá víkingabardaga,
auk þess sem boðið verður upp rat-
leiki, hestaferðir fyrir börnin, rólur,
sandkassa og margt fleira. Þá munu
strákarnir í Svörtum fötum stýra söng-
keppni Landsmótsins, þar sem sigur-
vegarinn fær að troða upp á stóra svið-
inu á aðalkvöldi Landsmótsins.
GLÆSILEG VEISLA
fyrir hestamenn