Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Page 38
miðvikudagur 25. júní 200838 FERÐIR DV
xxxxxxxxxxx
xxxxxxxxxx
Hvalveiðarnar hafa áhrif
Það hefur væntanlega ekki far-
ið framhjá mörgum að Íslendingar
ákváðu undir forystu Einars K. Guð-
finssonar sjávarútvegsráðherra að
hefja hvalveiðar á ný í atvinnuskyni.
Eru þau fyrirtæki sem gera út á að
sýna hvali skiljanlega ósátt við þessa
ákvörðun. Heimir segir að Norður-
Sigling finni til með kollegum sínum
sunnan heiða enda sé veitt á þeirra
hvalaskoðunarsvæðum.
„Við höfum orðið varir við þá
breytingu að hrefnan sést mun
minna. Hvort sem það er veiðum að
kenna eða ekki skal ósagt látið. Það
er ekki veiðum að kenna hérna á
Skjálfandaflóa en við teljum að veið-
arnar hafi farið illa með hvalaskoðun
á Faxaflóa þar sem þeir veiða innan
um hvalaskoðunarbátana. Það hefur
tvímælalaust farið illa með þau fyrir-
tæki. Enda kvarta þeir sáran kollegar
okkar þar.
Á sínum tíma misstum við nokkra
breska hópa, sem komu eingöngu
til landsins að fara í hvalaskoðun,
vegna veiðanna. Hóparnir komu á
mjög dýrmætum tíma á vorin þannig
að við höfum misst eitthvað af við-
skiptum. Hins vegar hefur öll þessi
sprenging í ferðaþjónustu vegið upp
á móti. Við höfum fengið aðra hópa
í staðinn.
Varan sem við seljum er tiltölu-
lega ódýr. Við erum því með frekar
breiðan markhóp. Það heldur okkur
líka gangandi að við fáum inn fleira
fólk heldur en það sem kemur aðeins
til að fara í hvalaskoðun.
Við fáum fólk sem er að leita að
sniðugri þriggja tíma afþreyingu og
hoppar um borð.“
Hægt að fara í þriggja
daga ferðir
Framtíðin er björt hjá Norður-
Siglingu að mati Heimis. Rekstur-
inn er í blóma þrátt fyrir versnandi
efnahagsástand. „Við erum í fjöl-
breyttum rekstri. Við erum ekki bara
í hvalaskoðun, við erum líka að reka
seglskipið Hauk sem er líka í lengri
ævintýraferðum. Allt frá fjögurra
klukkustunda ferðum til þriggja daga
ferða. Sú upplifun hefur verið í þróun
í tvö eða þrjú ár.
Þá er farið norður fyrir heim-
skautsbaug, til Grímseyjar, gist þar og
siglt til Siglufjarðar og gist þar. Þar er
síldarhöfnin skoðuð og þetta kallast í
raun strandmenningarferð. Svo erum
við með Gamla Bauk, veitingahús við
höfnina á Húsavík. Þannig að þetta er
fjölbreytt starfsemi og við lítum fram-
tíðina björtum augum.“
benni@dv.is
„Hrefnan var að-
alsýningardýrið.
Hún sást fyrstu
árin í 95% ferðanna
en í fyrra fór Hún
í fyrsta sinn nið-
ur fyrir 50%. í dag
sjáum við mest af
stórHvelum, Hnúfu-
bökum og steypi-
reyðum.“
11 tegundir í flóanum
í Skjálfanda finnast 11
tegundir af hval.
í miðasölunni Þriggja tíma
hvalaskoðunarferð kostar
4.200 krónur fyrir fullorðna.
knörrinn og bjössi sör
knörrinn var fyrsti bátur
norður-Siglingar.