Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Blaðsíða 42
miðvikudagur 25. júní 200842 FERÐIR DV
xxxxxxxxxxx
xxxxxxxxxx
Flugsafn Íslands, Akureyrarflugvelli • flugsafn@flugsafn.is • 600 Akureyri • Sími: 461 4400
www.flugsafn.is
Flugsafn Íslands verður opið í júní, júlí og
ágúst, alla daga vikunnar frá kl. 13 til 17
og eftir samkomulagi.
Hópar velkomnir.
Flugsafnið flutti í nýtt og stærra húsnæði á árinu 2007 og við þessa stækkun gafst
tækifæri til að fjölga flugvélum og sýningarmunum. Flugsafn Íslands er lifandi safn í
stöðugri endurnýjun þar sem margir sýningargripir eru enn í notkun þrátt fyrir háan aldur.
TúRIsTI í
REykjavík
Það er hægt að gera meira í Reykjavík en að
hanga á útikaffihúsum á sumrin. DV tók saman
nokkrar skemmtilegar og ódýrar hugmyndir um
hluti sem hægt er að gera í Reykjavík og ná-
grenni þess án þess að það kosti mikla peninga.
Karaókí-kvöld Það er fátt skemmtilegra en að enda pöbbaröltið á góðu karaókí-kvöldi. í stað
þess að fara á kaffihús á kvöldin er um að gera að skella sér í karaókí. Ölver er klassískur staður
en það er aðeins meiri stemning að fara á Live Pub í gamla La Café-húsinu eða kaffisetrið við
Hlemm. kaffisetrið mun færa sig í húsnæði kaffi vínar við hliðina á Landsbankanum á
Laugavegi. Þar verður diskótek og karaókí. Þú veist að þú syngur vel ef starfsmennirnir taka þig
upp á vídeó. Það kostar ekkert að taka þátt í karaókíinu. Það þarf bara að borga fyrir bjórinn.
Verð: 600 kr.
Diskókeila keila er aldeilis vanmetin
skemmtun. Það er alltaf hægt að fara í keilu
hvort sem það er á kvöldin eða um miðjan
dag. Til að gera hlutina aðeins meira
spennandi er hægt að kíkja í diskókeilu.
Ljósin blikka og tónlistin dynur og ekki er
verra að fá sér einn kaldan með. diskókeila
er í boði á miðvikudagskvöldum sem og
föstudögum, laugardögum og sunnudög-
um. Fleiri upplýsingar er að finna inni á
keiluhollin.is
Verð: Einn leikur 830. Ef fleiri en þrír leikir
eru spilaðir kostar leikurinn 630 krónur.
Tangókvöld Það þarf ekki að fljúga til suður á bóginn til að
upplifa ástríðu og hita. Salsakvöldin á Sólon hafa heldur betur
slegið í gegn. En fyrsta og þriðja hvern mánudag í mánuði
geta áhugasamir farið á Café Sólon þar sem boðið er upp á
ókeypis prufutíma í salsadansi. Fjörið hefst klukkan 20. Það er
nauðsynlegt fyrir fólk að sleppa sér í trylltum dansi og gleyma
hversdagsleikanum.
Draugar í Reykjavík Það er fátt
skemmtilegra en að læra eitthvað nýtt um
borgina sína. draugagangur í reykjavík
hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár.
gengið er um aðalstræti, víkurkirkjugarð,
dómkirkjuna og fleiri góða staði í
miðbænum. gangan er einn og hálfur
klukkutími og verður enginn svikinn af
þessari ferð. Fjórir miðlar labba um með
fólkinu og passa upp á að allir séu
hræddir.
Verð: 2.000 krónur.
Kampavín í Hljómskálagarðinum Það þarf ekki að kosta mikið að gera sér
dagamun. Það er góð hugmynd að rölta í ÁTvr, kaupa eina kampavínsflösku eða gott
hvítvín. kíkja síðan í 10-11 og kaupa öskju af jarðarberjum og klaka. Það er líka hægt að
kaupa plastglös í 10-11. Síðan er um að gera að koma sér vel fyrir í Hljómskálagarðinum
og skála ærlega.
Verð: Frá 4.000 með öllu.
Dagsferð í Viðey Á fallegum degi er fátt betra en dagsferð í viðey. Það er ekki
vitlaus hugmynd að fara í rómantíska dagsferð í viðey. Taka með sér teppi og
slappa af í fallega umhverfinu. Það er einnig hægt að fá hjól gjaldfrítt í viðey og
sæti fyrir krakka. Það þarf ekki að fljúga til Parísar til að hafa það gott.
Sólbað og blak við íslendingar höfum heldur betur verið heppnir með veðrið. Það
verður alltaf auðveldara og auðveldara að sóla sig. Ylströndin í nauthólsvík er
fullkominn staður til að eyða góðum sumardegi. Þar er bæði hægt að liggja og slappa
af síðan er alltaf hægt að taka einn blakleik eða taka línuskautana með sér og skauta
meðfram sjónum. Svo er þetta miklu ódýrara en ljósabekkurinn.
Verð: Ókeypis
Borðað á Gamla Baldri Það er fátt
skemmtilegra en að borða á
frumlegum stað. Báturinn gamli
Baldur sem í dag heitir Humarbátur-
inn er stórskemmtileg viðbót við
reykjavíkurhöfnina. Hægt er að velja
úr heilum matseðli – allt frá salötum
til nautasteikur. Einnig er hægt að
fara í ferð með bátnum andreu í
hvalaskoðun eða sjóstangaveiði. Þá
er hægt að taka það sem maður
veiðir og það er eldað ferskt upp úr
sjónum.
Verð: mismunandi
Hellar við bæjarmörkin
maríuhellar í Heiðmörk eru
undraverður staður. Það þarf ekki
að leita langt til að uppgötva
stórkostlega náttúruperlu. Það er
svo sannarlega hægt að gera sér
glaðan dag í maríuhellum. Börnin
ættu líka að fá að upplifa þetta.
Verð: Ókeypis