Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Blaðsíða 48
miðvikudagur 25. júní 200848 FERÐIR DV
xxxxxxxxxxx
xxxxxxxxxx
Rokkfestivalið Eistnaflug á Neskaupstað verður haldið dagana 10.–13. júlí. Hátíðin er haldin í fjórða sinn og á
Stefán Magnússon tónleikahaldari von á mun fleirum en í fyrra.
StæRSta hátíÐIn
til þessa
„Þetta verður langstærsta hátíð-
in til þessa,“ segir Stefán Magnús-
son, tónleikahaldari Eistnaflugs á
Neskaupsstað. Eistnaflug er rokk-
festival og verður hátíðin haldin í
fjórða sinn dagana 10.–13. júlí. Í ár
spila þrjátíu og fimm hljómsveitir
sem koma víðast hvar af landinu. Í
fyrsta skipti mun erlend hljómsveit
spila á hátíðinni.
Hátíðin verður sett á fimmtudeg-
inum 10. júlí klukkan sex og endar
hún með stórtónleikum á laugar-
dagskvöldinu þar sem HAM mun
spila fyrir tónleikagesti, en þeir hafa
ekkert spilað í rúmt ár. Allir tónleik-
arnir verða haldnir í Egilsbúð á Nes-
kaupstað.
„Nokkrar breytingar eru á há-
tíðinni síðan í fyrra. Nú er átján ára
aldurstakmark,“ segir Stefán. „Þeir
sem yngri eru og hafa áhuga á að
koma mega koma í fylgd með for-
ráðamanni.“
Þeir sem ferðast langan veg til
að fara á hátíðina þurfa ekki að hafa
áhyggjur af tjaldstæðum. „Það er
búið að gera miklar endurbætur á
tjaldsvæðinu sem er í boði,“ seg-
ir Stefán. Á svæðinu eru tvö tjald-
svæði. „Annars vegar partítjald-
svæði og rólegheita tjaldsvæði.
Þannig að það er eitthvað fyrir alla.“
„Það kostar ekki nema 3000
krónur á alla hátíðina. Þetta er ekki
gróðastarfsemi, þetta er aðallega
gert af hugsjón,“ segir Stefán. Hægt
verður að kaupa miða á staka tón-
leika og er miðaverðið 2000 krónur.
Hægt er að nálgast miða og nánari
upplýsingar um hátíðina á eistna-
flug.is.
HAM mun enda hátíðina á
laugardagskvöldið en þeir
hafa ekki spilað í rúmt ár.
Mikið er rokkað
Á Eistnaflugi á
neskaupstað.
Staldraðu við á
Stokkseyri
Gistu á stjörnunni
við sröndina
Annars eru allar nánari upplýsingar á kvoldstjarnan.com
H
ild
ur
H
lín
Jó
ns
dó
tt
ir
/ h
ild
ur
@
dv
.is