Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Side 52
miðvikudagur 25. júní 200852 FERÐIR DV
xxxxxxxxxxx
xxxxxxxxxx
Keilir að kvöldi
Keilir er eitt af fallegustu fjöllum lands-
ins og sérstakt fjall að labba á. Gangan
að fjallinu tekur lengri tíma en gangan
sjálf upp fjallið. Það þarf að fara fyrst yfir
hraunbreiðu sem ekki er auðveld yfirferð-
ar. Keilir sést vel frá Reykjavík og hafa ef-
laust margir horft á fjallið og hugsað með
sér hvernig væri að fara upp á það. Það
virðist svo stórt í fjarlægð. Raunin er sú
að fjallið er rúmir 300 metrar á hæð og vel
bratt. Það er sérstök upplifun að ganga á
Keili því það krefst fyrirhafnar að komast
að fjallinu en þegar upp er komið er eft-
irsjáin engin. Möl er í fjallinu svo það er
mjög laust í sér sem veldur því að erfitt er
að komast upp. Það er því gott að vera vel
útbúinn í góðum skóm og með göngustafi.
Á toppnum er hægt að sjá vel yfir borgina
og upp á Akranes. Vegur liggur frá Reykja-
nesbraut og er vel merktur. Þá tekur malar-
vegur við sem liggur að námu. Stuttu áður
en að námunni er komið er beygt til hægri
og verður að segjast að margir hafa villst
á leið sinni að fjallinu. Vegurinn er brös-
óttur og erfiður. Aksturinn tekur töluverð-
an tíma en það fer ekki framhjá neinum
þegar komið er að bílastæðinu. Reikna má
með því að ferðin öll fram og til baka frá
Reykjavík taki um þrjá klukkutíma. Um að
gera að skella sér í skó og drífa sig af stað
suður með sjó. Það er þess virði.
Keilir er eitt falleg-
asta fjall landsins:
Keilir Eitt fallegasta
fjall landsins.
Gömlu góðu tjöldin virðast smátt
og smátt vera að hverfa af tjaldsvæð-
um landsins og þess í stað má sjá stór-
fjölskyldur í lúxushjólhýsum njóta
allra helstu nútímaþæginda í íslenskri
náttúru.
Þrúðmar Karlsson, eigandi Ferða-
vals, hefur frá árinu 2002 sérhæft sig
í sölu á lúxushjólhýsum, fellihýsum,
húsbílum og breyttum pallbílum og
pallhýsum. Hann segir fólk sækjast
eftir sem mestum þægindum í úti-
legum í dag. „Lúxus og þægindi eru
það sem fólk vill í dag. Nú er þetta allt
spurning um sem minnsta fyrirhöfn
en mesta ánægju. Ekkert blaktandi í
rokinu heldur bara inni í hlýjunni.“
Þrúðmar segist sjálfur hafa ver-
ið duglegur að ferðast innanlands í
gegnum tíðina. „Við fjölskyldan vor-
um mest fimmtíu og fjórar nætur í
fellihýsi eitt sumarið. Það var æðis-
lega gaman á þeim tíma.“
Hjólhýsi með örbylgjuofni
En hver skyldi nú munurinn vera
á öllum þessum útileguhíbýlum ef
svo má að orði komast? „Fellihýsi er,
eins og nafnið gefur til kynna, fellan-
legt með dúk milli topps og kerrunn-
ar sjálfrar. Fyrir vikið sér fólk yfir felli-
hýsið þegar verið er að draga það svo
það er mjög sniðugt að því leytinu til,
auk þess sem það tekur minni vind
á sig og þess háttar. Í hjólhýsunum
færðu einangraða veggi og tvöfalda
plexíglugga. Húsið heldur náttúrlega
miklu betur hita og er fyrir vikið mun
betur hljóðeinangrað.
Öxullinn undir hjólhýsinu er und-
ir miðju húsi svo það liggur ekki nærri
því eins þungt á bílinn eins og fellihýs-
in svo að mörgu leyti er betra að draga
hjólhýsi en fellihýsi,“ segir Þrúðmar.
Aðspurður hvað geri hjólhýsi að
lúxushjólhýsi svarar Þrúðmar: „Lúx-
ushjólhýsi inniheldur þessi þægindi
sem við höfum heima í stofu. Hlýtt,
huggulegt, kósí, eldavél, ísskáp-
ur, bakaraofn, örbylgjuofn, salerni,
sturta og svo eru sjónvarp og loftnet
orðin staðalbúnaður hjá fólki í dag og
sumir eru með afruglarann með sér.
Þú kemur náttúrlega ekki þreyttur
heim eftir útilegu í viku í hjólhýsi sem
inniheldur allan þennan lúxus sem
þú gerir ef þú ert með tjald.“
Sífellt yngri fjárfesta í hjólhýsi
Þrúðmar segist finna fyrir því að
sífellt yngra fólk fjárfesti í hjólhýsum.
„Aldurinn hefur færst alveg gríðar-
lega niður síðastliðin þrjú ár og svo
verður maður var við það með arftaka
fellihýsanna að það er yngra fólk sem
vill ekki fara í fellihýsi, það fer í arftak-
ana. Það eru ferköntuð hjólhýsi sem
vigta 833 kíló svipað og fellihýsin. Það
er hægt að breyta kojunum í hjóla-
geymslu, fella niður efri kojuna svo að
myndist setbekkur og þetta er mjög
sniðugt hús fyrir fjögurra manna fjöl-
skyldur.“
Að lokum segir Þrúðmar mikil-
vægt að fólk velji sér hjólhýsi sem það
ráði við að aka með. „Það eru þrjár
breiddir í gangi. Þótt það sé kannski
skemmtilegra að gista í breiðu hús-
unum er ekki jafnþægilegt að ferðast
með þau.“
krista@dv.is
LítIL FyRIRhöFn en ikil ánægja
Þrúðmar Karlsson inni í
lúxushjólhýsi sem er
sérhannað að innan eftir
ítalskan arkitekt.
Lúxusinn er svo
sannarlega til staðar
Ef þú heldur í útileguna
á hjólhýsi eða húsbíl.
Sífellt færri sjást með gömlu góðu tjöldin á tjaldsvæðum landsins. Þess í stað er farið að færast í aukana að sjá
allt að sex manna fjölskyldur hafa það huggulegt í hjólhýsi eða húsbíl þar sem jafnvel er hægt að fara í sturtu,
horfa á sjónvarpið og poppa í örbylgjuofni.