Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Qupperneq 56
miðvikudagur 25. júní 200856 FERÐIR DV
Boðið verður upp á tónleika og námskeið á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði. Ókeypis er fyrir þau börn sem eru með
foreldrum sínum á hátíðinni. Handavinna og íslensk glíma er meðal þess sem hægt er að nema á námskeiðunum.
Útilegukort og veiðikort
Það eru eflaust fjölmargir sem ætla
að skella sér í útilegu í sumar. Það er
svo sannarlega ekki ókeypis að fara
í ferðalag með stóra fjölskyldu og því
er vert að skoða þá möguleika sem
eru fyrir hendi. Í sumar er í annað
sinn boðið upp á útilegukortið og í
fjórða sinn upp á veiðikortið. Veiði-
kortið gildir fyrir einn fullorðinn og
börn yngri en 14 ára í yfir 30 vötn á Ís-
landi þar sem hægt er að veiða urriða,
bleikju, sjóbirting og lax. Kortið kostar
5.000 krónur og gæti sannarlega verið
þess virði ef fengurinn er góður. Hægt
er að panta kortið inn á www.veidi-
kortid.is.
Ef fjölskyldan ætlar í langt tjald-
ferðalag gæti borgað sig að kíkja á úti-
legukortið sem gildir fyrir fjölskylduna
á 33 tjaldsvæði víðs vegar um landið í allt sumar. Yf-
irleitt rukka tjaldsvæðin fyrir fjölda í tjaldi en úti-
legukortið sem kostar 12.900 krónur gildir fyrir alla
fjölskylduna í allt sumar og gæti því sparað barn-
mörgum fjölskyldum nokkra aura á þessum síðustu
og verstu. Nánari upplýsingar er að finna inn á www.
utilegukortid.is.
Útivera Það er gaman
að renna fyrir fisk á
góðviðrisdögum.
Þjóðlagahátíðin verður haldin í
áttunda sinn 2.-6. júlí á Siglufirði.
Hátíðin var fyrst haldin árið 2000 og
hefur verið á dagskrá öll sumur síðan
þá. Tónlistarmennirnir koma jafnan
víða að og í þetta skiptið koma þeir
meðal annars frá Egyptalandi, Nor-
egi, Austurríki og Ástralíu. Þekktir ís-
lenskir tónlistarmenn verða líka með
tónleika; Ragnheiður Gröndal, Guð-
mundur Pétursson og Benni Hemm
Hemm koma fram.
Námskeiðin mikilvæg
Að þessu sinni verður hátíðin
tileinkuð tónlist fjallaþjóða en auk
tónlistarinnar eru námskeiðin stór
hluti af hátíðinni. Á námskeiðun-
um er hægt að læra að jóðla, dansa
þjóðdansa, raddspuna, rímna-
kveðskap sem Steindór Andersen
kennir, austrænan trommuleik,
íslenska glímu, blómstursaum
og ullarþæfingu. Ókeypis er fyrir
börn þátttakenda á námskeiðun-
um. Börnin geta líka farið á leik-
listarnámskeið fyrir 6-12 ára eða
á tónlistarnámskeið fyrir 6-9 ára.
Listamennirnir sem halda nám-
skeiðin koma líka fram á tónleik-
um á hátíðinni. Einnig er ókeypis
fyrir börnin á alla tónleika hátíð-
arinnar.
Fjölskylduhátíð
Gunnsteinn Ólafsson tónlistar-
maður er forsprakki hátíðarinnar og
hefur hann skipulagt hana frá grunni
öll árin. „Við höfum alltaf haft íslensk-
an vinkil á hátíðinni. En hátíðin hefur
þróast þannig að við höfum haft hana
opna fyrir öllum stílbrigðum og er
ætlunin er sú að allir geti fundið eitt-
hvað við sitt hæfi.“ Gunnsteinn bendir
á að áherslan hafi ekki einungis verið
bundin við þjóðlagatónlist heldur hafi
ný verk verið frumflutt. Að auki kem-
ur fram sinfóníuhljómsveit, flutt verð-
ur tónlist frá Egyptalandi og trúbador-
ar frá Ástralíu flytja sína eigin músík.
„Þjóðlögin eru ákveðinn grunnur að
hátíðinni, og svo getur fólk nálgast
músíkina á sínum eigin forsendum.
Þannig myndast skemmtilegt konsept
að hátíð sem hefur hentað fjölskyldu-
fólki mjög vel. Við leggjum áherslu á
að börnin séu velkomin og þau eigi
ekki að vera þröskuldur þess að fólk
komi á hátíðina.“
Eitthvað fyrir alla
Aðspurður hvers vegna hátíðin
sé haldin á Siglufirði stendur ekki á
svari hjá Gunnsteini. „Ástæða þess
að Þjóðlagahátíðin er haldin á Siglu-
firði er sú að sr. Bjarni Þorsteins-
son tónskáld safnaði íslensku þjóð-
lögunum á Siglufirði á sínum tíma
þannig að Siglufjörður er heimabær
íslenskra þjóðlaga.“ Á Þjóðlagasetr-
inu á Siglufirði er hægt að fræðast
meira um sr. Bjarna og þjóðlaga-
söfnun hans. „Ég er líka fæddur á
Sigló og ólst þar upp á sumrin hjá
ömmu minni. Hátíðin er mjög gott
tækifæri fyrir fjölskylduna til að vera
saman, allir sinna áhugamálum sín-
um á daginn á námskeiðunum og
svo hægt að fara á tónleika saman
á kvöldin. Allir geta fundið eitthvað
við sitt hæfi líka,“ sagði Gunnsteinn
að lokum.
Hægt er að fá allar upplýsingar
um hátíðina á siglo.is, þar er hægt
að skrá sig og fá upplýsingar um
gististaði.
FjallaþjóÐIR
í Fjallabyggð
Norrænir strengir Syðrifjalla
balalæku-hljómsveitin, Stokkhólmi.
voces spontane koma frá austurríki.
Stórhljómsveitin Benni
Hemm Hemm spilar á hátíðinni.