Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2008, Qupperneq 72
MIÐVIKUDAGUR 25. júní 200872 Dagskrá DV
NÆST Á DAGSKRÁ Ofsóttur af
ísbjörnum
Evrópumótið í fótbolta gæti ekki orðið
meira spennandi. Þýskaland og
Tyrkland mætast í fyrsta leik undanúr-
slita. Spennan verður án efa í
algleymingi og er ómögulegt að segja
hvernig leikurinn fer ef marka má fyrri
leiki á mótinu.
Fyrir alla sem hafa fengið yfir sig nóg af
fótboltanum er Cashmere Mafia alveg
málið. Þátturinn fjallar um fjórar
vinkonur sem búa í new York. Þær eru
algjörar skvísur sem eiga samt sem
áður í pínuvandræðum með ástarlífið
eins og það vill oft verða. Þættirnir eru
úr smiðju Darrens Star sem gaf okkur
meðal annars Sex and the City.
Vönduð og skemmtileg bíómynd úr
smiðju Baltasars Kormáks. Myndin, sem
tekin er upp á íslandi, skartar
óskarsverðlaunahafanum Forrest
Whitaker og leikkonunni juliu Stiles og
fjallar um tryggingasvik sem fara
úrskeiðis. Það ætti enginn að láta þessa
mynd fram hjá sér fara.
Leikararnir úr sjónvarpsþáttunum Friends hafa allir
reynt fyrir sér á sviði kvikmynda eða annarra sjón-
varpsþátta eftir að þáttunum lauk. Eitthvað hefur þeim
gengið illa að fóta sig nema helst Jennifer Aniston sem
lék hina smekkvísu Rachel. Matt LeBlanc, betur þekkt-
ur sem Joey, reyndi fyrir sér í samnefndum þáttum
þar sem hann lék áfram hinn einfalda Joey. Þættirnir
voru algjört flopp og það sama má segja um sjónvarps-
þættina Dirt með Courtney Cox, eftir tvær seríur hafa
þættirnir verið blásnir af. Lisa Kudrow var tilnefnd til
Emmy-verðlauna fyrir aðalhlutverk í þáttunum The
Comeback en þrátt fyrir það var framleiðslu þeirra hætt.
Matthew Perry var einnig tilnefndur til Emmy-verð-
launa fyrir aukahlutverk sitt í The West Wing en hefur
ekki slegið í gegn eftir að Chandler Bing var og hét. Dav-
id Schwimmer, betur þekktur sem Ross, lék í sjónvarps-
þáttunum Curb Your Enthusiasm en hefur annars látið
lítið fyrir sér fara.
Jennifer Aniston varð hins vegar fljótt eftirlæti pappar-
azzi-ljósmyndara og þá sérstaklega eftir að hún byrjaði
með hjartaknúsaranum Brad Pitt, en sambandi þeirra
lauk árið 2005. Hún hefur leikið í fjölda kvikmynda en
sló fyrst verulega í gegn með myndinni The Break-Up
þar sem hún lék á móti Vince Vaughn sem var kærasti
hennar um tíma. Það er margt fram undan hjá Aniston
því hvorki meira né minna en sex myndir eru væntan-
legar með henni til loka ársins 2009.
A LiTTLe TRip
To HeAveN
STÖÐ 2 BÍÓ KLUKKAN 22.00
CASHmeRe mAfiA
STÖÐ 2 KLUKKAN 21.05
Ef ég sé eina frétt til viðbót-
ar um ferðamenn sem halda að
hross séu hvítabirnir eða þekkja
ekki muninn á heybagga og ís-
birni, þá tek ég fríkið eins og Eg-
ill Ólafsson orðaði það. Gleymum
því annars, mér nægir að heyra
minnst á þessa hvítu ógnvalda til
að missa vitið.
Umfjöllun fjölmiðla um ís-
bjarnaharmleikinn á Norðurlandi
í tveimur bindum hefur sáð fræj-
um vænisýkinnar djúpt í þjóðar-
sálina og bjarnarmanían nú orð-
in svo mikil að ég man varla eftir
öðru eins. Sjálfur bý ég í Vestur-
bænum og þori varla út úr húsi af
ótta við að loðinn bjarnarhramm-
ur birtist og grípi mig.
Mér fannst steininn taka úr
þegar tilkynnt var um nýjasta gest-
inn við Bjarnafell á Skaga. Lög-
regla fór að sjálfsögðu á stúfana
og kannaði málið gaumgæfilega,
meira að segja úr lofti. Ósagt skal
látið hvað það kostaði þjóðarbúið.
Að sjálfsögðu fundust engin
ummerki um ísbjörn. Hins vegar
var fjallið þakið sporum sauðfjár.
Hvíti ógnvaldurinn var rolla!
Það hafa of margir gleymt því
að þótt eldingunni slái tvisvar nið-
ur á sama stað er engu líklegra að
það gerist í þriðja skiptið. Ég legg
launaseðilinn minn að veði að
fleiri bangsaskinn láti ekki sjá sig.
Það væri einfaldlega líkindafræði-
legt undur.
Ég legg því til að við förum að
slappa af, fáum okkur límonaði
í góða veðrinu og förum að kalla
skóflu skóflu – ekki hvítabjörn.
Hafsteini Gunnari finnst landinn helst til vænisjúkur.
pReSSAN
Jennifer Aniston:
Það hefur gengið misjafnlega hjá leikurunum úr Friends að fóta
sig í Hollywood. Um þessar mundir er það helst Jennifer
Aniston sem enn trónir á stjörnuhimninum.
Skemmtileg bresk þáttaröð með hina
undurfögru Billie Piper í aðalhlutverki.
Þættirnir fjalla um stúlkuna Hönnuh
sem lítur út fyrir að vera ósköp
venjuleg stúlka fyrir utan eitt, hún er
háklassa vændiskona þar sem hún
gengur undir nafinu Belle de jeur.
Þættirnir gefa áhorfanda mikla innsýn
inn í líf vændiskvenna.
SeCReT DiARy of A...
SJÓNVARPIÐ KL. 22.25
em í fóTboLTA
RÚV KLUKKAN 18.45
áLÖg á fRIeNdS-
STJÖRNUNUm?
16.35 Leiðarljós Guiding Light
17.20 Táknmálsfréttir
17.30 EM 2008 - Upphitun
Hitað upp fyrir næsta leik á EM í fótbolta.
nánari upplýsingar um mótið er að finna
á vefslóðinni http://www.ruv.is/em.
18.00 Fréttir
18.23 Veður
18.25 EM 2008 - Upphitun
Hitað upp fyrir næsta leik á EM í fótbolta.
nánari upplýsingar um mótið er að finna
á vefslóðinni http://www.ruv.is/em.
18.45 EM í fótbolta 2008
Bein útsending frá leik Tyrkja og
Þjóðverja í undanúrslitum.
20.40 Baldni folinn Rough Diamond (1:6)
Breskur myndaflokkur um tamninga-
mann í Kildare-sýslu á írlandi sem
stendur í stórræðum. Meðal leikenda eru
Conor Mullen, Stanley Townsend,
Lorraine Pilkington, Eamon Morrissey,
Ben Davies og Muireann Bird.
21.35 Úr vöndu að ráða Miss Guided (3:7)
22.00 Tíufréttir
22.35 Víkingalottó
22.40 EM 2008 - Samantekt
23.10 Saga rokksins Seven Ages of Rock
(5:7)
00.00 Dagskrárlok
07:15 Rachael Ray (e)
08:00 Dr. Phil (e)
08:45 Dynasty (e)
09:30 Vörutorg
10:30 Óstöðvandi tónlist
15:00 Vörutorg
16:00 Snocross (e)
16:30 Girlfriends
17:00 Rachael Ray
17:45 Dr. Phil
18:30 Dynasty
19:20 Jay Leno (e)
20:10 What I Like About You (3:22)
20:35 Top Chef (7:12)
21:25 Style Her Famous (3:8)
21:50 How to Look Good Naked (6:8)
22:20 Secret Diary of a Call Girl (6:8)
Bresk þáttaröð um unga konu sem lifir
tvöföldu lífi. Vinir og vandamenn halda
að Hannah sé í virðulega starfi en í raun
er hún háklassahóra og kúnnarnir þekkja
hana sem Belle de jeur.
22:50 Jay Leno
23:40 Eureka (e)
Bandarísk þáttaröð sem gerist í litlum bæ
með stórt leyndarmál. Þar hefur helstu
snillingum heims verið safnað saman og
allt getur gerst. Fargo og Spencer slysast
til að ræsa vopnakerfi og stórslys er í
vændum.
00:30 Girlfriends (e)
01:00 Vörutorg
02:00 Óstöðvandi tónlist07:00 Landsbankadeildin 2008
(Valur - FH)
17:45 Landsbankadeildin 2008
(Valur - FH)
19:35 Gillette World Sport
Fjölbreyttur íþróttaþáttur þar sem farið yfir
víðan völl. Farið er yfir það helsta sem er að
gerast í íþróttunum út í heimi og skyggnst á
bakvið tjöldin.
20:05 PGA Tour 2008 - Hápunktar
21:00 F1: Við endamarkið
21:40 Landsbankamörkin 2008
22:40 Landsbankamörkin 2008
00:25 Main Event, Las Vegas, NV
Á Heimsmótaröðinni í póker setjast snjöl-
lustu pókerspilarar heimsins að spilaborðinu
og keppa um stórar fjárhæðir.
16:00 Hollyoaks
16:30 Hollyoaks
17:00 Seinfeld
17:30 Special Unit 2
18:15 Rolling Stones - The Truth Lie 40 ár
af tónlist, skandölum, uppgjörum og frábær
sviðsframkoma eru það sem gerði Rolling
Stones að einu frægasta bandi veraldarsög-
unnar. Frábær heimildarmynd um kappana.
19:00 Hollyoaks
19:30 Hollyoaks
20:00 Seinfeld
20:30 Special Unit 2
21:15 Rolling Stones - The Truth Lie
22:00 Shark
22:50 Traveler Hörkuspennandi þáttaröð í
anda 24 og Prison Break. Tveir skólafélagar
standa skyndilega frammi fyrir því að vera
hundeltir af alríkislögreglunni og eru hafðir
fyrir rangri sök um að hafa valdið hryðju-
verkasprengju á safni. Í fyrstu halda þeir að
um einskæra tilviljun og einskæra óheppni
sé um að ræða en á flótta sínum komast þeir
að því að annað kunni að vera uppi á
teningnum.Beinast þá spjótin að vini
þeirra Will Traveler.
23:30 Twenty Four 3
00:15 Tónlistarmyndbönd frá Popp TV
07:00 Sylvester og Tweety
07:25 Dexter's Laboratory Rannsók-
narstofa Dexters
07:45 Camp Lazlo
08:10 Kalli kanína og félagar
08:15 Oprah
Oprah fær í heimsókn nokkra einstakl-
inga sem lent hafa í skelfilegri lífshættu
en lifað af.
08:55 Í fínu formi
09:10 Bold and the Beautiful Glæstar
vonir
09:30 La Fea Más Bella Ljóta Lety
(91:300)
10:15 'Til Death Til dauðadags (13:22)
10:40 My Name Is Earl Ég heiti Earl (7:22)
11:10 Homefront Heimavöllur (12:18)
12:00 Hádegisfréttir
12:45 Neighbours nágrannar
13:10 Sisters Systurnar (20:24)
14:00 Grey's Anatomy Læknalíf (23:36)
15:00 Friends Vinir (22:24)
15:25 Friends Vinir
15:55 Skrímslaspilið Yu Gi Oh
16:18 BeyBlade Snældukastararnir
16:43 Könnuðurinn Dóra
17:08 Tracey McBean
17:18 Ruff's Patch
17:28 Bold and the Beautiful Glæstar
vonir
17:53 Neighbours Nágrannar
18:18 Markaðurinn og veður
18:30 Fréttir
18:54 Ísland í dag
19:30 The Simpsons Simpson-fjölskyldan
(7:22)
19:55 Friends Vinir (10:23)
20:20 Flipping Out (3:7)
21:05 Cashmere Mafia (2:7)
21:50 Medium Miðillinn (12:16)
22:35 Oprah .
23:20 Grey's Anatomy Læknalíf (24:36)
00:05 Women's Murder Club (2:13)
00:50 Moonlight Mánaskin (4:16)
01:35 Perfect Strangers Skyndikynni
03:10 Flipping Out (3:7)
03:55 Medium Miðillinn (12:16)
04:40 Cashmere Mafia (2:7)
05:25 Fréttir og Ísland í dag
Fréttir og ísland í dag endursýnt frá því
fyrr í kvöld.
SJÓNVARPIð
06:25 The Weather Man
08:05 Emil og grísinn
10:00 Moonlight And Valentino
12:00 Hitch
14:00 Emil og grísinn
16:00 Moonlight And Valentino
18:00 Hitch
20:00 The Weather Man
22:00 Little Trip to Heaven, A
00:00 Life Support
02:00 Tristan + Isolde
04:05 Little Trip to Heaven, A
06:00 Longford
SKJáREINN
17.50 Football Icon
18.40 Masters Football
21.00 EM 4 4 2
21.30 10 Bestu
22:20 PL Classic Matches
Hápunktarnir úr bestu og eftirminnileg-
ustu leikjum úrvalsdeildarinnar.
22.50 Bestu bikarmörkin
23.45 EM 4 4 2
STöð 2 SPORT
STöð 2 SPORT 2
STöð 2 BÍÓ
STöð 2
STöð 2 ExTRA
h