Listin að lifa - 01.12.2004, Page 7
Á leiðinni út á Öndverðarnes er tilvalið að skoða Skarðsvík. Það er lítil, falleg vík með ljósum
sandi þar sem oft er margmenni á góðum sumardögum.
Gestastofa: í byrjun júlí á þessu ári
var gestastofa opnuð á Hellnum og var
aðsókn að henni góð. í gestastofunni fást
upplýsingar um þjóðgarðinn og á sýning-
unni er lögð áhersla á náttúrufar svæðisins
undir Jökli og lífsskilyrði vermanna áður
fyrr. Reynt er að tvinna þessa þætti saman.
Áhersla er lögð á að höfða til annarra
skilningarvita gesta en sjónar, því að auk
þess að lesa og horfa er hægt að þreifa,
þefa og reyna. I barnahorni er hægt að
skoða smáhluti í víðsjá og úti geta gestir
fengið að ganga á hrauni í skinnskóm.
Nýjung á sýningunni er að allur texti
hennar hefur verið þýddur yfir á blindra-
letur. I bókahorni verður hægt að skoða
bækur og myndbönd um náttúru landsins
og unnið er að gerð gagnvirks efnis sem
gestir geta notað til upplýsingaöflunar í
gestastofunni.
Gönguleiðir: Margar og fjölbreyttar
gönguleiðir eru í og við þjóðgarðinn og
ættu flestir að geta fundið leið við sitt
hæfi. I reglugerð um þjóðgarðinn er lögð
áhersla á aðgengi fyrir alla. Unnið verður
að því að leggja góða göngustíga sem fólk
í hjólastólum getur notað. Hátt hlutfall
ferðamanna eru eldri borgarar sem sumir
hverjir eiga erfitt með gang. Fyrir þá eru
góðir göngustígar afar mikilvægir. Yfir
sumarið bjóða landverðir þjóðgarðsins
upp á gönguferðir sem flestar taka einn
til tvo klukkutíma og eru án endurgjalds.
Tilvalið er fyrir einstaklinga og hópa að
nýta sér þjónustu þjóðgarðsins og slást i
för með landvörðum.
Verið velkomin í Þjóðgarðinn Snæfells-
jökul.
Guðbjörg Gunnarsdóttir þjóðgarðsvörður
Vitinn á Malarrifi er formfagur, en á Malarrifi var búið fram yfir miðja síðustu öld. Erfitt var um
vatnsöflun á Malarrifi eins og víðar undir Jökli og í þurrkatíð sótti heimafólk vatn í hella.
Svalþúfa og Þúfubjarg eru úr lagskiptu móbergi og eru talin vera austurbarmur gígs sem líklega
hefur gosið i sjó. Lóndrangar eru leifar gígtappa úr sömu eldstöð. Hærri drangurinn er 75 m hár en
sá lægri 61 m. Þúfubjarg er aðgengilegt og líflegt fuglabjarg. Þjóðsaga segir frá því að á Þúfubjargi
hafi Kolbeinn Jöklaraskáld og Kölski kveðist á undir fullu tungli.
7