Fréttatíminn - 05.06.2015, Blaðsíða 2
VW Up! frá aðeins:
1.790.000 kr.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Rjúpu fjölgar um 8 prósent
Vinnumarkaður kynferðisleg áreitni í þjónustustörfum algeng
Önnur hver kona í þjónustu-
störfum áreitt kynferðislega
Tæplega helmingur kvenna sem hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustað segir áreitnina
hafa mikil áhrif á öryggistilfinningu sína í vinnunni. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar rann-
sóknar sem Starfsgreinasambandið lét gera á kynferðislegri áreitni fólks í þjónustustörfum. Um
41% fólks í þessum störfum hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni, þar af önnur hver kona og
fjórði hver karlmaður.
r annsóknin sýnir, svo ekki verður um villst að, vandinn er mikill hér á landi eins og annars staðar og hefur
áhrif á líðan og öryggi fólks á vinnustöð-
um,“ segir Drífa Snædal, framkvæmda-
stjóri Starfsgreinasambandins, um niður-
stöður nýrrar rannsóknar sem sýna að um
41% fólks í þjónustustörfum hefur orðið
fyrir kynferðislegri áreitni.
Konur verða hlutfallslega oftar fyrir kyn-
ferðislegri áreitni en karlar, en um það bil
önnur hver kona og fjórði hver karlmaður
í þjónustustörfum hefur orðið fyrir áreitni
samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar
sem Rannsóknarstofnun í jafnréttisfræð-
um við Háskóla Íslands vann að beiðni
Starfsgreinasambandsins á kynferðislegri
áreitni gagnvart starfsfólki sem hefur
unnið innan hótel-, veitinga- og ferðaþjón-
ustunnar síðastliðin 10 ár. Þetta er fyrsta
rannsókn sinnar tegundar á Íslandi og
verða niðurstöðurnar birtar í heild sinni í
skýrslu sem kemur út á mánudag. Þá fer
jafnframt fram samnorræn ráðstefna á
Hótel Nordica sem Starfsgreinasambandið
stendur fyrir gegn staðalmyndum og kyn-
ferðislegri áreitni í þjónustustörfum.
Umræðan um kynferðislega áreitni
fólks í þjónustustörfum varð mjög hávær
innan verkalýðsfélga víða um heim eftir
að Dominic Strauss-Kahn, þáverandi for-
stjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, áreitti
herbergisþernu á hóteli árið 2011. Rann-
sókn Starfsgreinasambandsins er innlegg
í þessa umræðu en sambærilegar rann-
sóknir hafa verið gerðar nýverið á hinum
Norðurlöndunum.
Þegar svör þátttakenda í rannsókninni
eru greind eftir aldri kemur í ljós að 67,8%
þeirra sem höfðu orðið fyrir kynferðis-
legri áreitni voru yngri en 25 ára þegar
alvarlegasta tilvikið átti sér stað. Þannig
voru 55,8% þolenda á aldrinum 18-24 ára
en 11,6% yngri en 18 ára. „Þessi ungi aldur
þolenda er áhugaverður í ljósi fræðilegrar
umræðu um að kynferðisleg áreitni og
kynferðislegt ofbeldi snúist um vald. Ungt
fólk hefur oft minna vald en það sem eldra
er, vegna reynslu- og áhrifaleysis sem helst
í hendur við ungan aldur þeirra,“ segir
í skýrslunni sem er unnin af Steinunni
Rögnvaldsdóttur, félags- og kynjafræðingi.
Þátttakendur voru einnig spurðir um
áhrif áreitninnar á öryggistilfinningu sína
á vinnustað og sögðu 43,4% kvenna að
áreitnin hefði mjög mikil eða frekar mikil
áhrif á öryggistilfinninguna en enginn
karlmaður svaraði því til að áreitnin hefði
mikil áhrif á hann.
„Ferðaþjónustan er vaxandi atvinnu-
grein og okkur ber skylda til að huga að
öryggi starfsfólks þar alveg eins og öryggi
starfsfólks í byggingarvinnu eða sjó-
mennsku. Rannsóknin er bara upphafið
að norrænni samvinnu á þessu sviði og
við munum halda verkefninu áfram,“ segir
Drífa.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
KynfERðislEg áREitni EftiR staRfsstað – Hlutfall svarenda í rannsókn Starfsgreinasambandsins
HótEl KaffiHús sKyndibitastaðuR VEitingaHús fERðaþjónusta annað
39,5% 56,8% 42,2% 60,0% 28,2% 53,3%
Þegar svör þátttakenda í rannsókninni eru greind eftir aldri kemur í ljós að 67,8% þeirra sem höfðu orðið fyrir kynferðislegri
áreitni voru yngri en 25 ára þegar alvarlegasta tilvikið átti sér stað. Mynd úr safni/Hari
199. gr.
almennra
hegning-
arlaga
Hver sem
gerist sekur um
kynferðislega
áreitni skal sæta
fangelsi allt að 2
árum. Kynferðis-
leg áreitni felst
m.a. í því að
strjúka, þukla eða
káfa á kynfærum
eða brjóstum
annars manns
innan klæða sem
utan, enn fremur í
táknrænni hegðun
eða orðbragði
sem er mjög
meiðandi, ítrekað
eða til þess fallið
að valda ótta.
Náttúrustofnun Íslands hefur
lokið við að telja rjúpu þetta vorið og
samandregið fyrir öll talningasvæði
var meðalfjölgun rjúpna 8% á milli
áranna 2014 og 2015. Talningar
gengu treglega þetta árið vegna
tíðarfars en rjúpur voru taldar á
36 svæðum í öllum landshlutum.
Alls sáust 1284 karrar sem er um
1% af áætluðum fjölda í landinu.
Greinileg fækkun á stofninum var
á 16 talningasvæðum, kyrrstaða
var á 8 svæðum og aukning var
á 12 svæðum. Rjúpum fækkaði á
Suðvesturlandi, Vesturlandi, Vest-
Fréttatíminn hefur flutt
aðsetur sitt frá Sætúni 8
í Skeifuna 17 í Reykjavík.
Blaðið er nú á þriðju hæð þar
sem Sena er einnig til húsa
og Suzuki-bílaumboðið er á
jarðhæð. Vel fer um ritstjórn
og auglýsingadeild Frétta-
tímans á hinum nýja stað,
miðsvæðis í borginni, þar sem
auðvelt að fá bílastæði fyrir
þá sem eiga erindi til blaðsins.
Fréttatíminn fluttur í Skeifuna
fjörðum og Austurlandi, kyrrstaða var á
Suðausturlandi en áberandi aukning var á
Norðausturlandi og Suðurlandi. Í sögulega
samhengi er stofninn ekki stór og aðeins á
Norðausturlandi og Austurlandi er hann yfir
meðallagi í stærð.
Lítil trú á Alþingi
Einungis 15% aðspurðra telja að Alþingi
standi vörð um hagsmuni almennings,
að því er fram kemur í könnun MMR. Þá
sögðust 65,4% frekar eða mjög sammála
því að ríkisstjórnin leggi meiri áherslu á
afkomu banka en heimilanna í landinu.
Þeir sem tilheyrðu tekjuhæsta hópnum,
með milljón á mánuði í heimilistekjur eða
meira, voru líklegri en þeir sem hafa lægri
tekjur til að telja að Alþingi standi vörð um
hagsmuni almennings. Þeir sem tilheyrðu
yngsta aldurshópnum, 18 til 29 ára, voru
líklegri til að vera sammála því en hinir
eldri að stjórnarandstaðan myndi stjórna
landinu betur en ríkisstjórnin.
Hátíð hafsins um
helgina
Hafnarsvæðið mun iða af lífi
um helgina þegar Hátíð hafsins
verður haldin með pompi og prakt.
Að hátíðinni standa Faxaflóahafnir
og Sjómannadagsráð en hún er í
raun sameining tveggja hátíða, á
Hafnardeginum sem er á laugardag
og Sjómannadeginum sem er á
sunnudag. Þetta er fjölskylduhátíð
þar sem áhersla er lögð á fróðleik um
hafið og dagskráin í ár er fjölbreytt
eins og endranær. Sjóræningjaföndur,
bryggjusprell, leiksýningar og tónleikar
munu gleðja gesti og gangandi en auk
þess munu þeir fjölmörgu veitinga-
staðir sem eru nú við hafnarsvæðið
bjóða upp á spennandi veitingar. Hægt
er að skoða dagskrána á vefsíðunni
hatidhafsins.is
lögreglumál tVö fjárkúgunarmál tengd systrunum malín Brand og Hlín einarsdóttur
Segir Hlín hafa tekið við miskabótum
gegn því að kæra ekki nauðgun
„Mér þykir óskaplega leitt að hafa
valdið þessu fólki skaða,“ segir í yfir-
lýsingu sem Malín Brand, blaðakona á
Morgunblaðinu, sendi frá sér í gær.
Malín og systir hennar, Hlín Einars-
dóttir fjölmiðlakona, hafa verið til
umfjöllunar í vikunni eftir að upplýst
var að Hlín reyndi að kúga fé út úr
forsætisráðherra og fjölskyldu hans.
Bæði Hlín og Malín hafa játað þátt
sinn í því máli.
Síðar í vikunni kærði Helgi Jean
Claessen, ritstjóri Menn.is, þær fyrir
fjárkúgun en hann mun hafa greitt
þeim 700 þúsund krónur gegn því að
hann yrði ekki kærður fyrir nauðgun. Í
yfirlýsingu Malínar segir: „Á þriðju-
deginum bað Hlín mig að keyra sig á
bráðamóttöku fyrir þolendur kyn-
ferðisofbeldis þar sem hún fékk að-
hlynningu og skoðun. Ástand hennar
að mati starfsfólks þar benti til að hún
hefði orðið fyrir nauðgun. Maðurinn
lagði áherslu á að mannorðs síns vegna
myndi nauðgunarkæra, hvort sem hún
leiddi til ákæru og sakfellingar eða
ekki, valda sér miklum hnekki. Systir
mín féllst á þessi sjónarmið og úr varð
sátt með greiðslu miskabóta.“
Í fréttum Stöðvar 2 í gær var greint
frá því að Hlín hyggist kæra téðan
Helga fyrir nauðgun.
Systurnar Malín Brand og Hlín Einarsdóttir
reyndu að kúga fé út úr Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni forsætisráðherra.
L
jó
sm
yn
d/
H
ar
i
2 fréttir Helgin 5.-7. júní 2015