Fréttatíminn - 05.06.2015, Blaðsíða 16
Þel er fimmta plata Láru Rúnarsdóttur. Nýbreytni er að öll lögin eru sungin á íslensku. Ljósmynd/Hari
Áframhald
á endalausri
sjálfsleit
L ára Rúnarsdóttir hefur gefið út plötu á þriggja ára fresti frá árinu 2003 og er nýjasta
plata hennar, Þel, sú fimmta í röð-
inni. Hún segir ferlið vera í kring-
um þrjú ár við plöturnar og kann því
vel. „Nú er ég bara á rúntinum með
plötuna eins og ég geri á þriggja
ára fresti,“ segir Lára þegar blaða-
maður heyrir í henni. „Þrjú ár virð-
ist vera minn sköpunartími, en það
er samt alger tilviljun,“ segir hún.
„Ég byrjaði að semja á þessa plötu
árið 2012, og byrjaði svo í mars í
fyrra að taka upp, svo já þetta er
svona þriggja ára sköpunarferli. Á
þessum tíma er maður líka að safna
lögum og svo að vinsa úr þeim fjölda
og slíkt, svo þetta er kannski ekki
stöðug vinna í þrjú ár. Bara ákveð-
ið ferli.“
Íslensk plata í fyrsta sinn
Plötur Láru hafa yfirleitt verið á
ensku fyrir utan plötuna Þögn, sem
kom út árið 2006, en hún var bæði
á ensku og íslensku. Á Þel eru öll
lögin á íslensku, sem er nýtt fyr-
ir hana. „Ég ákvað bara að stíga
skrefið,“ segir Lára. „Ég fann það
þegar ég fór hringinn í kringum
landið með áhöfninni á Húna fyrir
tveimur árum, að við náðum betur
til fólksins þegar við sungum lögin
á íslensku,“ segir hún. „Mér fannst
ég tengjast betur og eiga greiðari
leið að hjörtum fólks á móðurmál-
inu. Svo er ég orðinn mun rólegri
í þessari útrás sem ég hef verið í
undanfarin ár,“ segir hún. „Ég er
orðin smá leið á þessu harki og að
eltast við útlönd eins og maður hef-
ur gert eitthvað af alveg frá árinu
2009,“ segir hún. „Á ferðalögum
vorum við með eldra barnið með
okkur,“ segir Lára en hún er gift
trommaranum Arnari Gíslasyni
og saman eiga þau tvö börn. „Svo
kemur bara að þeim tímapunkti í
lífinu að löngunin í meiri ró verð-
ur sterkari, og minna hark,“ segir
Lára. „Ég held líka, burtséð frá
börnum, þá hafi fólk bara ákveðna
þolinmæði gagnvart svona harki
sem þessi bransi er. Það er stund-
um mikilvægara að vera bara sam-
an við eldhúsborðið að borða kvöld-
mat,“ segir Lára.
Allar plöturnar sjálfsleit
Yrkisefni Láru hefur alltaf verið á
persónulegum nótum. Hún er mikil
áhugamanneskja um tilfinningar og
segir plöturnar hafa verið ákveðna
sjálfsleit. „Þetta er nú alltaf bara
mitt hugarþel,“ segir Lára. „Ein-
Tónlistarkonan Lára Rúnarsdóttir gaf út sína fimmtu
sólóplötu á dögunum. Á plötunni, sem nefnist Þel, eru öll
lögin á íslensku sem er nýbreytni hjá Láru. Hún segir að
hún hafi fundið fyrir því á undanförnum árum hafi hún
náð meiri tengingu við hlustendur sína á tónleikum þegar
hún syngi á íslensku, ásamt því að hún sé farin að taka því
mun rólegar þegar tal um heimsfrægð bankar upp á. Lára
segir plötuna vera sjálfsleit eins og allar hinar, og hún er á
góðri leið með að finna sjálfa sig, þó það sé eilífðarleit.
hverjar tilfinningaólgur og vanga-
veltur. Stefið í gegnum plöturnar
hefur alltaf einkennst af ákveðinni
sjálfsleit,“ segir hún. „Finna hvar
maður á heima og hvar maður á að
vera í þessu lífi og hvað maður á að
vera að gera. Svo er þetta líka um
samskipti við fólk og hvernig mað-
ur viðheldur þeim, hvernig maður
viðheldur tengingum og ástinni og
segir skilið við fólk sem tekur meira
en það gefur.“
Hvernig gengur sjálsfleitin eftir
fimm plötur?
„Ég finn hana stundum,“ segir
Lára.
„Ég finn stundum leiðina heim,
en svo villist maður af leið og þá
leitar maður. Annars er þetta ei-
lífðarverkefni,“ segir hún. „Þetta
heldur líklega áfram á næstu fimm
plötum.“
Vínylmorgnar á heimilinu
Lára og Arnar eru bæði tónlistar-
fólk og lifa og hrærast í þeim heimi.
Arnar spilar á nýjustu plötu Láru
eins og að undanförnu og segir hún
að tónlist sé oft rædd við eldhús-
borðið, þrátt fyrir að þau séu með
ólíkan tónlistarsmekk. „Það sem
sameinar okkur, fyrir utan allt ann-
að, er þessi ástríða á tónlist,“ segir
Lára. „Við tölum þó meira um hvað
við erum að hugsa í tónlist frekar
en tónlist almennt,“ segir hún. „Við
erum með ólíkan smekk en við
erum byrjuð að taka vínylmorgna
eins og við köllum það. Þá hlustum
við á vínylplötur áður en dagurinn
hefst, og veljum til skiptis hvað við
hlustum á.“
Tilfinningar eru áhugamálið
Um leið og Lára er í óðaönn að
fylgja eftir plötunni sinni er hún
að útskrifast með meistaragráðu í
kynjafræði frá Háskóla Íslands nú
í júní. Hún hefur brennandi áhuga
á mannskepnunni og hugarástandi
hennar. Hún óttast ekki krufningu
tilfinninga eins og hún orðar það
sjálf. „Ég hef brennandi áhuga á til-
finningum, bæði mínum eigin sem
og annarra,“ segir Lára. „Það er eitt
af áhugamálum mínum, hvað fólk er
að hugsa. Svo hef ég mikinn áhuga
á femínisma og jafnréttismálum,“
segir hún. „Það er kannski það sem
mig langar mest að vinna að fyrir
utan tónlistina, og eða með henni.
Ég hef síðustu ár barist fyrir auknu
jafnrétti innan tónlistariðnaðarins,“
segir Lára sem fyrir þremur árum
stofnaði félag kvenna í tónlist, eða
KÍTÓN ásamt starfssystrum sínum.
„Við ákváðum að stofna félagið
aðallega til þess að efla tengslanet
milli kvenna í tónlist, og til að skoða
iðnaðinn í þaula,“ segir Lára. „Á
þessum tíma sem við höfum starf-
að þá hefur félagið vaxið mjög og
í dag er leitað mikið til okkar eftir
áliti og ábendingum hvað margt
varðar innan þessa bransa,“ segir
hún. „Menningin innan tónlistar-
iðnaðarins er það sem þarf helst að
breytast svo hún henti öllum,“ segir
Lára en meistararitgerð hennar inn-
an kynjafræðinnar var einmitt um
þetta ákveðna málefni, umhverfi og
upplifun tónlistarmanna á Íslandi.
„Draumurinn er að geta starfað við
þetta og núna er ég bara að líta í
kringum mig eftir nám og athuga
hvort einhverjir vilji ekki ráða frá-
bæran kynjafræðing til vinnu. Ann-
að hvort það eða halda út í doktors-
nám,“ segir hún.
Tónleikahald fram undan í
sumar
Fram undan hjá Láru er að kynna
plötuna af miklum móð í sumar eins
og vaninn er, þegar ný plata kemur
út. „Við vorum með útgáfutónleika
í gær (fimmtudag) í Fríkirkjunni
og í kvöld verðum við með tónleika
á Græna hattinum á Akureyri. Á
morgun, laugardag, munum við svo
halda tónleika í gömlu hlöðunni við
Hótel Reynihlíð á Mývatni,“ segir
Lára. „Svo verðum við á Gærunni
á Sauðárkróki og Bræðslunni að
Borgarfirði eystri í lok júlí. Við
erum einnig að undirbúa smá tón-
leikaferð um landið í júlí, svo það er
margt í pípunum. Ég er með sama
fólk í kringum mig og ég hef verið
með undanfarin ár sem mér þykir
mjög vænt um og það er svo gaman
að vera saman, svo við ætlum að
reyna að spila sem mest,“ segir tón-
listarkonan Lára Rúnarsdóttir.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
16 viðtal Helgin 5.-7. júní 2015