Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.06.2015, Blaðsíða 25

Fréttatíminn - 05.06.2015, Blaðsíða 25
H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA var bjöllufarandsali að störfum og ég vissi að menn væru harðir sölu- menn í Austurlöndum nær þannig að ég brá á það ráð að leggjast í jörð- ina og ausa yfir mig sandi. Kallinn varð svo hissa og ekki meiri sölu- maður en það að hann gaf mér bjöll- una. En talandi um bókmenntir þá er Borgarbókasafnið ekki langt undan og ég sæki mikið þangað. Ég er dálítið upptekinn af gömlum ævisögum og les eiginlega lítið annað. Steinunn skammar mig fyrir að vera að bera þessar bækur hér heim, segir að þetta séu neftóbaks- bókmenntir, og tilfellið er að það eru raunverulega neftóbaksblettir í sumum þessara bóka.“ Nakinn á hjóli að næturþeli Þýðir þetta að starfslokin nú séu fyrirboði þess að þú setjist niður og skrifir eigin ævisögu? „Nei, ég hef reyndar hugsað um það, en ég held að ævisaga mín sé ekki prenthæf, það eru svo mörg strákapör í henni sem eiga ekki er- indi fyrir almenningssjónir. Ég hef alltaf verið grallari og haft gaman af því að brjóta reglurnar. Sem dæmi get ég nefnt að ég var um tíma í hópi sem hafði afskaplega gaman af því að hjóla naktinn um bæinn að næt- urlagi og við lentum í alls kyns æv- intýrum í þeim ferðum. Það ber þó að hafa í huga að við vorum hippar og það var verið að stríka um allar jarðir á þessum tíma. Reyndar var ég aldrei almennilegur hippi, en hugsjónirnar voru flottar og höfðu auðvitað áhrif á alla lífssýn manns. Við vildum byggja upp betra samfé- lag og það tókst að hluta til, þótt enn sé auðvitað margt sem betur mætti fara. Ég kyngi nú stundum þegar ég lít yfir farinn veg og sé hversu margt ég hefði getað gert betur, ég er ófullkominn eins og Job, en hef sem betur fer sloppið við stóráföll.“ Jón Ársæll verður 65 ára 16. sept- ember í haust, er fæddur sama dag og Jesús Kristur og Ómar Ragnars- son segir hann, er hann ekkert að hugsa um að setjast í helgan stein? „Nei, en auðvitað hefur maður líka velt því fyrir sér. Ég gæti farið á lífeyri í haust og þegar þau tímamót nálgast fer maður að velta því fyrir sér hversu illa þetta samfélag fer með ellilífeyris- þega. Fólkið sem reisti þetta samfé- lag. Það er svartur blettur á íslensku samfélagi finnst mér.“ Lax sem sækir í strauminn Ferill Jóns Ársæls í fjölmiðlum spannar þrjá áratugi sem hann seg- ir hafa verið endalaust ævintýri og hann hafi aldrei séð eftir því að hafa gefið sálarfræðina upp á bátinn. „Ég sé ekki eftir neinu, þótt ég sakni sál- arfræðinnar stundum, og hef líka bent á það að þótt menn mennti sig í einhverju fagi þýðir það ekki að þeir þurfi að stunda það alla sína ævi. Ég þótti reyndar líka dálítið skrít- inn sálfræðingur. Á þeim tíma fór ég þrisvar til fjórum sinnum á dag í sjóðheitt bað í vinnunni. Fólki brá óneitanlega stundum í brún þegar ég mætti með handklæðið utan um mig til að taka á móti því í viðtöl. Það þótti ekki alveg við hæfi.“ Það er ekki hægt að taka viðtal við manninn sem óspart skellir spurn- ingunni: Hver ertu? á viðmælendur sína án þess að spyrja hann hins sama: Hver er Jón Ársæll? „Æ, ég veit það ekki. Ég er búinn að vera svo margt um ævina og er bara það sem ég er hverju sinni. Innst inni er ég viðkvæmur maður, ég er duglegur maður og ef það segir eitthvað um mig þá var fyrsta tímaritið sem ég var áskrifandi að Dýraverndarinn. Ég var farinn að gefa út eigin blöð tólf ára gamall og fékkst líka töluvert við alls kyns vísindatilraunir, safnaði dýrabeinum og fornminjum og hef alltaf verið dálítið veikur fyrir öllu sem er ryðgað. En í alvöru þá veit ég ekki hver ég er, við erum öllum svo margt. Hvaða stefnu líf okkar tekur markast oft af tilviljunum en svo er auðvitað flest sem fyrir okkur kemur alls engin tilviljun. Við erum lax sem sækir í strauminn og sköpum eigin stefnu. Nú stend ég á tímamótum, einu sinni enn, er mjög spenntur fyr- ir því sem tekur við og opinn fyrir öllu. Ég er ekkert horfinn af sjónar- sviðinu. Ég get lofað því.“ Friðrika Benónýsdóttir ritstjorn@frettatiminn.is Ég er ekkert horfinn af sjónarsviðinu. viðtal 25 Helgin 5.-7. júní 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.