Fréttatíminn - 05.06.2015, Side 34
Nýr nefúði við ofnæmi
Glinor er nýr nefúði frá ratiopharm við ofnæmisbólgu í nefi.
Úðinn fæst á góðu verði án lyfseðils í næsta apóteki.
G linor nefúði inniheldur virka efnið natriumcromoglicat, efni sem hindrar losun bólguvald-
andi boðefna eins og histamíns,“ segir
Hákon Steinsson, lyfjafræðingur hjá
LYFIS. „Vegna verkunarmátans er
meðferðin fyrirbyggjandi í eðli sínu
og því hægt að hefja notkun áður
en ofnæmistímabilið byrjar.“ Þetta
er í fyrsta skipti sem nefúði með
þessu innihaldsefni fæst án lyfseð-
ils á Íslandi en LYFIS hefur unn-
ið markvisst að því að auðvelda
aðgengi landsmanna að lyfjum
sem áður hafa einungis fengist
gegn lyfseðli. Glinor er notað
við ofnæmisbólgu í nefi en al-
geng einkenni hennar eru
hnerri, nefrennsli, kláði og
nefstífla. Lyfið er ætlað
fyrir fullorðna og börn,
allt niður í 4 ára aldur.
Skammtur fyrir full-
orðna og börn er einn
úðaskammtur í hvora
nös tvisvar til fjórum
sinnum á dag. Glinor
nefúðinn veldur ekki
syfju. Mikilvægt er
að lesa fylgiseðil
lyfsins fyrir notkun
og kynna sér helstu
varúðarreglur. Glinor nef-
úði fæst án lyfseðils í apótekum.
Unnið í samstarfi við
LYFIS
Notkunarsvið: Glinor nefúði inniheldur natríumcromogliat og er ætlaður við ofnæmisbólgu í nefi. Frábendingar: Ofnæmi fyrir
natríumcromoglicati, benzalkonklóríði eða einhverju hjálparefnanna. Varúð: Innihaldsefnið benzalkonklóríð getur valdið ertingu í
húð. Meðganga og brjóstagjöf: Engin skaðleg áhrif á fóstur hafa komið fram við notkun natríumcromogliats. Engu að síður skal
forðast notkun á fyrsta þriðjungi meðgöngu og einungis skal nota lyfið á seinni stigum meðgöngu ef þörf er á. Natríumcromoglicat
skilst í litlu magni út í brjóstamjólk. Þessi útskilnaður er sennilega skaðlaus en einungis skal nota lyfið hjá mæðrum með barn á
brjósti ef þörf er á. Skömmtun: Fullorðnir og börn, 4 ára og eldri: Einn úðaskammtur í hvora nös tvisvar til fjórum sinnum á dag.
Algengustu aukaverkanir: Erting í nefslímhúð getur komið fram í upphafi meðferðar en þessi áhrif eru skaðlaus og tímabundin.
Lesið vandlega fylgiseðilinn sem fylgir lyfinu. SmPC: Júlí 2014.
Glinor nefúða skal nota gegn
ofnæmisbólgu í nefi, algeng
einkenni hennar eru:
n Hnerri
n Nefrennsli
n Kláði
n Nefstífla
Glinor nefúði við ofnæmi er
ætlaður fyrir fullorðna og
börn allt niður í 4 ára aldur.
Helgin 5.-7. júní 2015
Skóbúnaður
Það skiptir öllu máli að ganga skó til áður
en lagt er í lengri göngur. Með því að nota
annað hvort íþróttateip (sports-tape) eða
silkiplástur á hæla og tær fyrir göngur er
hægt að minnka enn frekar líkur á alvar-
legum særindum undan skóm.
Hlífðarfatnaður
Á Íslandi er allra veðra von allt árið um
kring. Því er um að gera að vera við öllu
búinn og ágætt er að miða við þrjú lög af
klæðnaði. Innst er nærfatnaður úr ull eða
vönduðu gerviefni. Millilagið getur verið flí-
speysa og göngubuxur. Ysta lagið er skelin
sem er vind- og vatnsheldur fatnaður úr
öndunarefni.
Vökvi
Í göngum verður líkaminn fyrir miklu
vökvatapi, sérstaklega i fjallgöngum þar
sem mikil orka fer í að ganga upp í móti
og við það tapast vökvi með svita. Algengt
að fólk drekki lítið sökum þess að það vill
ekki þurfa að kasta af sér vatni á göngunni
en það er mjög rangur hugsunarháttur og
getur verið stórhættulegur, því við þurfum
á vökvanum að halda í þessum aðstæðum.
Nesti
Í lengri gönguferðum er gott að hafa nasl
í vasanum þar sem gott getur verið að
þurfa ekki að taka af sér bakpokann til að
matast. Þó maður hafi oft ekki mikla lyst
á göngunni sjálfri er mikilvægt að nærast
reglulega allan tímann og halda blóðsykr-
inum eðlilegum við langvarandi áreynslu.
Félagsskapur
Góður félagsskapur getur gert gönguna
mun ánægjulegri. Hjá Ferðafélagi Ís-
lands er að finna gönguhópa bæði fyrir
byrjendur og lengra komna. Á Facebook
er einnig að finna stórskemmtilegan
gönguhóp sem nefnist Vesen og vergangur
sem hittist og gengur saman reglulega á
suðvesturhorni landsins.
5 góð ráð fyrir
gönguferðina
Ætlar þú að ganga í sumar? Fjöldann allan af gönguleiðum er að
finna víðs vegar í íslenskri náttúru. Hvort sem þú ætlar í stutta
dagsferð eða lengri gönguferð er gott að hafa eftirfarandi atriði
í huga.
Ferðalög