Fréttatíminn - 05.06.2015, Qupperneq 40
40 grill og garðar Helgin 5.-7. júní 2015
Dreymir um
íslenskan
grænmetisdal
Hafsteinn Helgi Halldórsson man ekki hvernig hann lærði að
smíða en smíðin hefur alltaf fylgt honum. Í dag vinnur hann
sem smiður auk þess að kokka lífrænan mat og búa til tón-
list. Hann segir vera kjöraðstæður til matræktar á Íslandi og
dreymir um grænmetisskóga í íslenskum dölum þar sem allir
geti sótt sér í matinn. Hafsteinn selur heimagerða matjurta-
kassa og moltukassa á netinu en allur ágóðinn af sölu þeirra fer
í ferðasjóð fyrir einhverfa.
S ystir mín er einhverf og ég hef unnið á sambýlum fyrir einhverfa í níu ár,“ segir Haf-
steinn Helgi Halldórsson sem safn-
ar í ferðasjóð fyrir einhverfa með
því að smíða og selja matjurtakassa
og moltukassa á netinu. „Í fyrravor
smíðaði ég þrjá matjurtakassa út
gömlum vörubrettum sem ég fann
við ruslagáma og setti þá niður á
sambýlinu þar sem ég var að vinna.
Kassarnir komu það vel út að ég
ákvað að taka mynd af þeim og setja
á facebook til að kanna áhuga fólks
út í samfélaginu. Áhuginn reyndist
vera nokkuð mikill og þá fóru hjól-
in að snúast og ég er enn að. Allur
ágóði fer í ferðasjóð fyrir einhverfa
snillinga sem þurfa alltaf einn ef
ekki tvo aðstoðarmenn á ferðalög-
um. Ég er nú þegar búinn að safna
fyrir flugi, hóteli og uppihaldi fyrir
meistara Steinar Rafn og er langt
komin með kostnað í ferð fyrir ein-
hverfa drottningu úr Breiðholti sem
þarf tvo aðstoðarmenn með sér.“
Smíðar flest sín húsgögn
sjálfur
„Ég vinn mestmegnis sem smiður
en hef líka unnið sem kokkur og
hef brennandi áhuga á matargerð,
sérstaklega á lífrænni og vegan
matargerð,“ segir Hafsteinn Helgi
sem þar að auki semur tónlist og
stefnir á að gefa út sína fyrstu plötu
á næstunni. „Ég man ekki alveg
hvar ég lærði að smíða en ég hef
bara alltaf haft áhuga á smíði og
smíða flest mín húsgögn sjálfur. Ég
lék mér mikið einn á yngri árum og
ég á sterkar minningar frá átta til
tíu ára aldri þar sem smiður var að
gera upp húsið okkar í Vesturbæn-
um, smíða pall og fleira. Ég fekk að
vera með honum alla daga og ekki
leið á löngu þar til ég var búinn að
smíða tvö tréhús með brú á milli.
Einhvern veginn dúkka svo upp alls-
konar verkefni varðandi smíðar, allt
frá húsgögnum að grindverkum.“
Ísland fullkomið land fyrir
ræktun á mat
Hafsteinn segist hafa fengið áhug-
ann á garðrækt frá móður sinni,
sem sé með ótrúlega græna fingur.
„Það er ótrúlega gefandi að hugsa
um plöntur. Það jarðtengir mann
og minnir á töfra lífsins. Ég hef al-
veg ótrúlega gaman af því að keyra
þessa kassa út, sérstaklega þegar
ég sé spenninginn hjá fólki og þá
einkum hjá börnunum sem finnst
svo spennandi að rækta sinn eigin
mat. Að rækta sinn eiginn garð er
auðveld og holl iðja fyrir hvern sem
er. Svo er mun auðveldara að rækta
mat á Íslandi en flestir halda. Það er
hægt að sá langt fram á sumar, það
er sjaldan mjög þurrt, sólin er sterk
hér og hitastig fullkomið fyrir flest
grænmeti. Ísland er fullkomið land
fyrir ræktun á mat. Í fyrra var ég til
að mynda að notað síðasta kálblaðið
ur garðinum heima í lok nóvember.“
Dreymir um grænmetisskóg í
íslenskum dal
„Minn draumur er að safna sam-
an hópi garðyrkjufræðinga, og fá
stjórnvöld í lið með okkur, til að
rækta gríðarmagn grænmetis í ein-
hverjum af okkar fallegu dölum og
bjóða svo ungum sem öldnum að
koma í grænmetisskóg og grípa
með sér eitthvað heim í matinn.
Þetta væri ekki bara nytsamlegt
heldur líka skemmtilegt og ég trúi
því að hugmyndin sé raunhæf.
En þangað til mun ég koma heim
til fólks með hinn fullkomna mat-
jurtakassa, fræ og mold og leiðbeini
fólki með að gera þetta auðveldlega
heima hjá sér.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Með smíðum og sölu á matjurtakössunum sameinar Hafsteinn Helgi sínar helstu
ástríður; smíðar, matrækt og málefni einhverfra.
Hægt er að panta kassana á facebook
undir „Matjurtakassar til sölu“ eða
senda póst matjurtakassar@gmail.com.
Allur ágóði umfram framleiðslukostnað
við kassana fer í ferðsjóð einhverfra.
Lífið er best undir
berum himni
Á sumrin er svo ljúft að vera
úti. IKEA býður upp á fjöl-
breytt úrval af fallegum og
endingargóðum sumarhús-
gögnum fyrir hvers kyns
útisvæði. Sessur af ýmsu tagi
og hengirúm er meðal þess
sem í boði er, auk húsgagna
sem auðvelt er að taka með í
ferðalagið.
Ú rvalið af sumarhúsgögnum er sérstaklega glæsilegt hjá okkur í ár,“ segir Birna
Magnea Bogadóttir, sölustjóri hjá
IKEA. „ÄPPLARÖ húsgögnin eru
traust og endingargóð, enda úr
gegnheilum við. Þau fást úr dökk-
brúnum akasíuvið eða úr gegnheilli
hvítlakkaðri furu. Línan býður upp
á úrval af stólum og borðum fyrir
allt frá litlum svölum til stórra úti-
palla, og með henni er hægt að
skapa fullkomið útisvæði, hvort sem
á að njóta máltíðar eða bara góða
veðursins.“
Viðhaldsfrí húsgögn vinsæl
Að sögn Birnu njóta útihúsgögn
sem ekki þarfnast mikils viðhalds
einnig mikilla vinsælda. „FALST=
ER línan okkar er til dæmis úr
sterku plastefni sem lítur út eins
og viður, en þarf aðeins lágmarks
viðhald og hentar því íslenskum að-
stæðum mjög vel.“ Birna segir það
fara eftir þörfum og smekk hvers
og eins hvaða lína henti best, það er
að minnsta kosti eitthvað fyrir alla
í breiðu úrvalinu. „LÄCKÖ línan,
sem er úr áli og plasti, gefur úti-
svæðinu til dæmis svolítið róman-
tískan blæ og KUNGSHOLMEN
línan samanstendur af einingum
sem fólk getur raðað saman eins og
hentar. Hún er úr traustum og end-
ingargóðum plastreyr og ryðfríu áli
og þarfnast því ekki viðhalds.“
Skemmtilegir aukahlutir í
garðinn eða á pallinn
Þegar búið er að velja húsgögnin er
komið að aukahlutunum. „Við bjóð-
um upp á fjölbreytt úrval af sessum
í stíl við húsgögnin okkar, þannig
að þar geta viðskiptavinir leyft pers-
ónuleika sínum að skína í gegn. Svo
eru sólhlífarnar okkar frábærar til
að vernda gegn skaðlegum áhrif-
um sólargeislanna, því þær eru all-
ar úr pólýesterefni með UV vörn,“
segir Birna. Það er endalaust hægt
að nostra við og gera útisvæðið
sem þægilegast. „Ef mann langar
að gera eitthvað alveg sérstakt er
hengirúm ef til vill málið. Það er
fest í handhægan stand þannig að
það er ekkert til fyrirstöðu, fæstir
búa jú svo vel að hafa tvö voldug
tré hlið við hlið í garðinum,“ segir
Birna og hlær.
Húsgögnin með í ferðalagið
Það er frábært að eiga góða sumar-
daga í garðinum eða á svölunum
heima en flest bregðum við okkur
líka af bæ í fríinu og þá er gott að
eiga handhæg húsgögn sem auð-
velt er að grípa með í ferðina, hvort
sem lagt er í lautarferð eða reisu um
landið þvert og endilangt. „Við bjóð-
um líka upp á legubekki, hæginda-
stóla og strandstóla fyrir þá sem eru
á ferðinni, auk borðbúnaðar, leik-
fanga og annars sem gerir sumarið
þitt þægilegra og skemmtilegra,“
segir Birna.
Unnið í samstarfi við
IKEA
1. Með Äpplarö
er hægt
að skapa
fullkomið úti-
svæði.
2. Falster
húsgögnin eru
viðhaldsfrí.
3. Läckö
línan gefur
útisvæðinu
svolítið róman-
tískan blæ.
4. Hægt er að
raða saman
Kungsholmen
einingum til að
útbúa sófa sem
hentar.
1
3
2
4