Fréttatíminn - 05.06.2015, Blaðsíða 52
52 matur & vín Helgin 5.-7. júní 2015
DrainLine niðurfallsrennur
Tilboð
66.900
Hitastýrð
sturtu blöndunar-
tæki með höfuð-
og handúðara
með nuddi.
Háþrýstidælur, ryk- og vatnssugur
- á sumartilboði
C130.1-6 X-tra
háþrýstidæla
Fyrir þá sem vilja aðeins
öflugri háþrýstidælu.
Vnr. 128470251
C120.6-6
háþrýstidæla
Handhæg og nett
háþrýstidæla, fyrir öll
minni verk.
Vnr. 128470359
E140.3-9 X-tra
háþrýstidæla
Öflug dæla fyrir þá
kröfuhörðu. Á húsið,
bílinn og stéttina.
Vnr. 128470505
P150.2-10 X-tra
háþrýstidæla
Þessi er kraftmikil og
hentar fyrir minni
fyrirtæki, bændur, stóra
bíla, vinnuvélar o.fl.
Vnr. 128470132
Buddy II 12
Lítil og nett
ryk- og
vatnssuga
Vnr. 18451119
Buddy II 18
Öflug ryk- og
vatnssuga.
18 lítra tankur.
Vnr. 18451134
Tilboð frá
10.875kr.
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Rekstrarvörur
– fyrir þig og þinn vinnustað
„Við ætlum að prufukeyra um
helgina og opna staðinn í næstu
viku,“ segir Loftur H. Loftsson,
rekstrarstjóri Bjórgarðsins, sem
opnaður verður í næstu viku á
Fosshótel við Höfðatorg.
Í Bjórgarðinum verður mesta
úrval bjórs á krana á landinu,
alls 22 tegundir. Þar af eru tveir
nítró-kranar. Auk þess verður
afar fjölbreytt úrval af bjór í
flöskum.
Úrvalið verður síbreytilegt en
meðal áhugaverðra bjóra á krana
í Bjórgarðinum fyrsta kastið
verður Blushing Monk frá Fo-
unders, Jack Hammer frá Brew-
dog og By Udder Means frá To
Öl. Mesta athygli vekja þó tveir
bjórar frá sænska brugghúsinu
Omnipollo, annars vegar Leon
en ekki síður hinn kunni Ne-
buchadnezzar sem er IPA-bjór.
Bjórar frá Omnipollo hafa ekki
áður fengist á krana á Íslandi.
Hægt er að kynna sér úrvalið
á staðnum á heimasíðunni bjorg-
ardurinn.is og þar verður líka til-
kynnt hvenær staðurinn verður
opnaður.
Bjórgarðurinn opnar í næstu viku
Loftur H. Loftsson er hæstánægð-
ur með stærstu bjórdælu landsins,
22 krana, sem tekin verður í
gagnið á Bjórgarðinum í næstu
viku. Ljósmynd/Hari
Bjór Freki nr. 33 er Fyrsti íslenski villigerjaði Bjórinn
Svara kröfum um fjölbreyttari
bjóra og sérstakari stíla
Valgeir Valgeirsson og Árni Long í Borg brugghúsi hafa bruggað fyrsta íslenska bjórinn sem er
að öllu leyti gerjaður með villigeri. Hann kallast Freki og er kominn í Vínbúðirnar. Valgeir segir að
bjórmenningin hér litist af því sem er að gerast í Bandaríkjunum.
v ið erum ánægðir með útkomuna og þetta lofar góðu upp á fram-
haldið,“ segir Valgeir Valgeirs-
son, bruggmeistari í Borg
brugghúsi.
Valgeir og félagar voru að
senda frá sér annan sumarbjór
ársins og kallast hann Freki nr.
33. Um er
að ræða einstakan bjór í ís-
lenskri bjórsögu því Freki er
að öllu leyti gerjaður með villi-
geri - nánar tiltekið gernum
brettanomyces, eða brett.
Gerinn er eftirsóttur meðal
bjóráhugamanna um þessar
mundir en hann gefur frá
sér afgerandi karakter sem
kannski má best lýsa sem
„fönkí“. Fyrr á árinu
kynnti Borg fyrsta villi-
gerjaða bjórinn til leiks,
páskabjórinn Þorlák nr. 31,
en hann var aðeins að hluta
til gerjaður með brett, en
að öðru leiti með saison-
ölgeri. Að öðru leyti er
Freki í bandarískum
IPA stíl, þurrhuml-
aður, ferskur og ríkur af
ávaxtatónum.
Valgeir segir að
villiger sé alla jafna
óhefðbundið ger til að
nota við ölgerð en njóti
nú mikilla vinsælda úti
í heimi. „Við fylgjum
ákveðnum trendum utan
úr heimi. Bjórmenningin hér
litast auðvitað af því sem er
að gerast þar, og fyrst og
fremst í Bandaríkjunum.
Við reynum að svara kröf-
um um meiri fjölbreytni og
sérstakari stíla sem nú eru
uppi.“
Eins og með aðra IPA-
bjóra Borgar vísar nafnið
í úlf. Freki var annar af
úlfum Óðins og er um hann
ritað í Snorra-Eddu. Úlf-
arnir Freki og Geri fara um
heim allan og safna upplýsingum
fyrir Óðinn og éta svo allan mat
hans. Það gerir hinsvegar lítið til þar
sem Óðinn lifði á miði.
Valgeir og Árni Long, bruggmeist-
arar Borgar, segja að Freka sé best
notið í sumar og sól. Þá eiga ostarnir
að vera harðir; þroskaður gouda og
parmigiano reggiano svo dæmi séu
tekin. „Sjávarréttirnir mega gjarnan
koma í skel; til dæmis humar, hörpu-
skel og krabbi. Og salötin eiga að
vera með ríkri edik dressingu,“ segja
þeir félagar.
Valgeir Valgeirsson og Árni Long í Borg brugghúsi eru ánægðir með Freka nr. 33
sem kominn er í Vínbúðirnar. Ljósmynd/Hari