Fréttatíminn - 05.06.2015, Page 64
Í takt við tÍmann HrafnHildur agnarsdóttir
Býður stórfjölskyldunni í mat
einu sinni í viku
Hrafnhildur Agnarsdóttir er 22 ára Vesturbæingur sem ver mark
kvennaliðs KR í fótbolta. Hún er auk þess að læra líffræði í Háskóla Ís-
lands og var nýlega í námi á fótboltastyrk á Long Island í New York. Hún
er alltaf í Converse-skóm og með sólgleraugu.
Staðalbúnaður
Ég hef ekki neinn einn ákveðinn fata-
smekk, ég get verið sjö mismunandi
týpur yfir eina viku. Ég fer þó oftast
ekki út án þess að vera í leðurjakka og
Converse-skóm. Svo er ég alltaf með
sólgleraugu, alveg sama hvort það
er sól eða snjókoma úti. Annars pæli
ég ekki mjög mikið í tísku, ég mætti
kannski gera meira af því. Mér finnst
líka bæði erfitt og dýrt að versla á Ís-
landi.
Hugbúnaður
Ég kíki stundum í bjór á Kaffi Vest og
mér finnst ekkert leiðinlegt að kíkja í
bæinn um helgar. Þá fer ég til dæmis á
American Bar. Í bænum er klassískt að
fá sér G&T. Þegar ég á lausan tíma kíki
ég stundum á bókasöfn og les og svo
horfi ég á Seinfeld. Ég held að ég sé að
horfa á þá í 17. skipti og þeir koma mér
alltaf í gott skap.
Vélbúnaður
Ég er algjör símafíkill. Ég er með
iPhone 5 og hann er fastur við höndina
á mér allan daginn. Twitter (@hreffie)
og Snapchat eru undantekningalaust
opin og ég kíki líka af og til á Instagram
og Facebook. Ég er bæði mjög dugleg
að tjá mig á samfélagsmiðlunum, oft
mjög heimskulega, og fylgist vel með
öðru fólki líka.
Aukabúnaður
Ég fer eiginlega aldrei út að borða, ég
kýs miklu frekar að elda sjálf. Ég elda
allt milli himins og jarðar, til dæmis
lasagna, en ég reyni að hafa þetta fjöl-
breytt og frá öllum heimshornum enda
finnst mér gaman að elda. Ég býð alltaf
stórfjölskyldunni í mat einu sinni í viku,
það er mikilvægt að halda fjölskyldunni
og fá alla í heimsókn. Ég tók bílpróf í
vikunni, svolítið seint – ég veit – þannig
að ég verð væntanlega á bíl hér eftir.
En annars finnst mér mjög fínt að rölta
þegar veðrið er gott. Uppáhaldsstaður-
inn minn er New York, ég er alveg ást-
fangin af þeirri borg eftir að hafa verið í
námi þar í eitt og hálft ár.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Út er komin fyrsti titillinn í
endurútáfum sem Sena stendur
fyrir á sígildum íslenskum plötum
á vínyl. Það er fyrsta plata Stuð-
manna, Sumar á Sýrlandi sem er
fyrst í röðinni og er það í tilefni
af því að í ár eru 40 ár frá útgáfu
þessarar sígildu plötu. Einnig er
útgáfan vel tímasett í ljósi þess
að hljómsveit allra landsmanna,
Stuðmenn, fagnar afmælinu með
þrennum tónleikum í Hörpu um
helgina. Fleiri titlar eru fyrir-
hugaðir í þessari vínyl útgáfu
Senu og næst í röðinni verður það
fyrsta plata Megasar sem kemur á
glænýjan vínyl. Hugmyndin er sú
að endurútgefa fleiri sígilda titla á
næstunni, eins og Lifun Trúbrots
og Á bleikum náttkjólum Megasar
og Spilverks þjóðanna og munu
plöturnar verða gefnar út í upp-
haflegum umslögum með tilheyr-
andi textablöðum. Mikil aukning
er á sölu á vínylplötum um allan
heim og allir nýir titlar koma út á
vínyl um þessar mundir. Margar
af þessum gömlu plötum er erfitt
að nálgast og ættu því tónlistar-
áhugamenn um allt land að fagna
þessari útgáfu Senu og fróðlegt
verður að sjá hvaða titlar munu
koma í verslanir á næstu miss-
erum. -hf
Gamlir titlar á nýju plasti
2015 POSTER/DURATRAN IMAGE CHOICES
Imagery expires December 31, 2015
UNITED STATES OR INTERNATIONAL
VW IMAGE 5
Styles featured: Nolita
*Vera Wang Salon- Available at
select locatons.
VW IMAGE 5
Styles featured: Inanna
VW IMAGE 5
Styles featured: V367
VW IMAGE 1
Styles featured: Inanna
VW IMAGE 2
Styles featured: V430
V
43
0
ST
YL
E
SH
O
W
N
. V
ER
A
W
A
N
G
.C
O
M
VW IMAGE 3
Styles featured: V368
O
LY
A
S
TY
LE
S
H
O
W
N
. V
ER
A
W
A
N
G
.C
O
M
V
36
7
ST
YL
E
SH
O
W
N
. V
ER
A
W
A
N
G
.C
O
M
IN
A
N
N
A
S
TY
LE
S
H
O
W
N
. V
ER
A
W
A
N
G
.C
O
M
N
O
LI
TA
S
TY
LE
S
H
O
W
N
. V
ER
A
W
A
N
G
.C
O
M
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
Sími 587 2123
FJÖRÐUR
Sími 555 4789
SELFOSS
Sími 482 3949
Sólgler með
styrkleika
fylgja kaupum
á gleraugum
í Augastað
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
64 dægurmál Helgin 5.-7. júní 2015