Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.03.2015, Side 2

Fréttatíminn - 06.03.2015, Side 2
 1 sprey á dag, 3ja mánaða skammtur NÚ ENNÞÁ ÖFLUGRA D-VÍTAMÍN Spreyjað undir tungu Gott bragð Vörn gegn kvefi og flensu w w w. ge ng ur ve l.i s . . . Útsölustaðir: flest apótek, heilsubúðir og verslanir Forsetinn setti ljósmyndasamkeppni blindra Ljósmyndasamkeppni blindra, „Blindir sjá“, var ræst af forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, í gær, fimmtudag. Ljósmyndasamkeppnin er á vegum JCI Íslands í samstarfi við Blindrafélagið en JCI er alþjóðleg hreyfing fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 40 ára sem hefur áhuga á að efla hæfileika sína og hafa jákvæð áhrif í kringum sig. Tilgangur keppninnar er að vekja athygli á málefnum blindra og sjónskertra og rétt- indum þeirra sem og allra annarra til að taka fullan þátt í þjóðfélaginu. Sú staðre- ynd að blindir einstaklingar geta líka tekið myndir með því að nota önnur skynfæri en sjónina er góð áminning um að láta ekki hindranir stoppa okkur í að taka þátt og njóta lífsins. Skilyrði fyrir þátttöku er að viðkomandi hafi skerta sjón eða sé löglega blindur. Verðlaunaafhending mun fara fram í október næstkomandi, á 100 ára afmælishátíð JCI. 10 ára afmæli sjálfstæða skóla Samtök sjálfstætt starfandi skóla (SSSK) fagna 10 ára afmæli sínu dag, 6. mars. Tæplega 50 leik- og grunnskólar heyra undir samtökin, 36 leikskólar með um þrjú þúsund nemendur og 11 grunnskólar með um eitt þúsund nemendur. Meðal sjálfstætt starfandi leiks- og grunnskóla eru skólar Hjallastefnunnar, Ísaksskóli, Landakotsskóli og leikskólinn Regnboginn. Stofnfundur samtakanna var haldinn 10. mars 2005. Á stofnfundi- num tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir þáverandi menntamálaráðherra til máls. Hún fagnaði stofnun samtakanna og taldi brýna nauðsyn á að samtökin gætu miðlað upplýsingum til hagsmunaaðila, fjölmiðla, ríkisvalds og sveitarfélaga. Sagði hún að tryggja þyrfti valfrelsi í skólamálum og að sjálfstæðir skólar væru ekki ógnun við menntakerfi landsins heldur tækifæri til að auka við menntunina í landinu. Eyrarrósarlistinn 2015 birtur Listi yfir tíu verkefni sem eiga möguleika á að hljóta Eyrarrósina í ár hefur verið kynntur en Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningar- verkefni á starfssvæði Byggðastofnunnar. Verkefnin tíu eru: Braggast á Sólstöðum í Bragganum í Öxarfirði, Nes Listamiðstöð á Skagaströnd, Ferskir vindar – alþjóð- leg listahátíð í Garði, Orgelsmiðjan á Stokkseyri, Frystiklefinn – menning- armiðstöð á Rifi, Sköpunarmiðstöðin Stöðvarfirði, Listasafn Árnesinga, Verksmiðjan á Hjalteyri, Listasafnið á Akureyri og Þjóðlagasetrið á Sig- lufirði. Eyrarrósin verður afhent 4. apríl á Ísafirði. Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósa- rinnar, afhendir verðlaunin. Nýr vefur Fréttatímans kominn í loftið Vefur Fréttatímans, frettatiminn.is, er kominn í loftið og hefur tekið stakka- skiptum. Hann er mun aðgengilegri og myndrænni en áður var. Eftir sem áður er þar að finna efni blaðsins en hér eftir bætast við regluleg skrif á vefinn, auk þess sem Gunnar Smári Egilsson bloggar þar um þjóðmálin. Þar er enn fremur að finna matarskrif hans frá París, sem birtast vikulega í blaðinu og hafa vakið mikla athygli. Þ etta kom þannig til að ég var á ferðalagi um sveitasæluna á Íslandi fyrir þremur árum með vini mín- um, dr. Rick Líndal, sem býr í Toronto. Hann er sálfræðingur og gríðarlegur fagurkeri og við vorum svona að horfa á kýrnar og dást að þeim og þá dettur svona upp úr Rick: „Þessi júgur, þau hljóta nú aldeilis að þola mikið.“ Jú, þau þola miklar byrðar hugsaði ég og fraus svo bara í sætinu yfir þessari hugmynd sem kom í kjölfarið. Og svo fórum við bara og fengum okkur ís og veltum framhaldinu fyrir okkur,“ segir Elín Edda Árnadóttir leikmyndahönnuður. Þriggja ára þróunarferli Taskan er ekki bara sérstök og 100% ís- lensk hugarsmíð heldur er bæði efnið og framleiðslan 100% íslensk. „Mér finnst vera algjör forréttindi að geta tekið svona þróunarverkefni að mér, með svona al- gjörlega nýjum formerkjum því þetta hef- ur aldrei verið gert áður. Fyrst þurftum við auðvitað að finna sútara sem er ekki auðvelt mál. Við fórum til Karls Bjarna- sonar hjá Sjávarleðri á Sauðárkróki, sem er algjör forystumaður í sútun á Íslandi. Við þurftum að finna út úr því hvort þetta væri yfir höfuð hægt og það tók svona hálft ár. Fyrsti afraksturinn var í frekar stífu formi en svo fyrir svona ári síðan fór sútunarferlið að skila afurðinni svona mjúkri og góðri. Þetta er alveg ótrúlega magnað leður að vinna með því það er svo mjúkt og létt. Rákir húðarinnar liggja á ská og það vita allar saumakonur að efnið er teygjanlegast þegar það liggur á ská. Svo litaði hann Karl sútari leðrið fyrir okkur í allskonar fallegum litum. Alls tók ferlið um þrjú ár.“ Hver taska er einstök „Það er auðvitað engin taska eins því ekkert júgur er eins,“ segir Elín Edda. „Það sem snýr að mér sem hönnuði er að búa til form sem er áhuga- vert og það vann ég með mjög góðum leðursmiði, honum Sigurjóni hjá Leð- urverkstæði Reykjavíkur. Svo ákváðum við að nota íslenskt geitaskinn í efri hluta töskunnar þannig að hún er 100% íslensk fram- leiðsla.“ Þegar líftíma mjólkur- kúa lýkur og þær fara í sláturhúsið er júgrunum alltaf hent. „Ég hafði heyrt að júgrin hafi verið notuð í fátæktinni hér áður fyrr til matar en að súta þau á þennan hátt til að nýta þau hef ég ekki heyrt um áður. Við þurftum að sækja um það lögformlega að geta nýtt þetta hráefni og erum með öll leyfi. Við eigum smá lager núna af júgrum en þegar þau klárast þá þurfum við bara að panta fleiri.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is  Hönnun Handtöskur gerðar úr kýrjúgrum Júgrin þola miklar byrðar Á Hönnunarmars mun Búkollu handtaskan eftir leikmyndahönnuðinn Elínu Eddu Árnadóttur líta dagsins ljós í fyrsta sinn. Taskan er unnin úr ansi óvenjulegum efniviði sem ekki hefur verið mikið nýttur hingað til, kýrjúgrum. Elín Edda fékk hugmyndina að töskunni þegar hún og samstarfs- maður hennar, Rick Líndal, lágu í sveitasælunni úti í móa og veltu því fyrir sér hvað kýrjúgrin hlytu nú að þola miklar byrðar. Búkollu töskurnar verða til í ýmsum litaútgáfum og hafa fengið nöfnin Venus, Andromeda, Milky Way og Cordelia. Ljósmynd/ Hari Búkollu töskurnar hennar Elínar Eddu eru framleiddar undir formerkjum Slow-fashion. Þær eru ekki fjöldaframleiddar heldur handgerðar, einstakar og aðeins til í litlu upplagi. Verðið hefur ekki enn verið reiknað út þar sem stutt er síðan fyrstu töskurnar voru tilbúnar en þær verða til sýningar og sölu á Hönnunarmars. Ljósmynd/Hari  drónaflug samgöngustofa óskaði eftir umsögnum um reglugerðardrög Síðustu forvöð fyrir umsagnir um dróna Umsagnarfrestur um drög að reglu- gerð um starfrækslu ómannaðra loftfara, svokallaðra dróna, rennur út hjá Samgöngustofu í dag, föstu- dag. Samgöngustofu hafa á undan- förnum mánuðum í auknum mæli borist fyrirspurnir um ómönnuð loftför og hefur frá hausti unnið að reglugerðinni. Þórhildur Elínardótt- ir, upplýsingafulltrúi Samgöngu- stofu, segir að þegar óformlegum umsagnarfresti sé lokið verði unnið úr öllum umsögnum auk annarra gagna sem hefur verið aflað á und- anförnum mánuðum. „Þegar reglu- gerðardrögin verða tilbúin af okkar hálfu verða þau send innanríkis- ráðuneytinu og fara þá í hið hefð- bundna, formlega umsagnarferli,“ segir hún. Eins og staðan er nú gilda al- mennt sömu reglur um ómönnuð loftför og mönnuð. Í gildi eru einn- ig sértækar reglur fyrir flugvéla líkön og það er mat Samgöngustofu að þær reglur nái líka til ómannaðra loftfara. Einstaklingur eða fyrirtæki sem óskar eftir að starfrækja ómann- að loftfar, yfir 5 kg, skal sækja um leyfi fyrir slíkri starfrækslu til Sam- göngustofu. Hún metur umsóknir á grundvelli þeirra reglna sem gilda um loftför. -eh Miklir möguleikar fylgja notkun dróna en enn er ekki komin sérstök reglugerð um þá hér á landi. NordicPhotos/Getty 2 fréttir Helgin 6.-8. mars 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.