Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.03.2015, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 06.03.2015, Blaðsíða 4
Demantshringar frá 80.000 kr. veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Skil fara yfir landið. Sa-Stormur og rigning, en hríð til fjalla. höfuðborgarSvæðið: SlagveðurS- rigning og Síðar krapaél. allhvaSSt og él verða S- og v-landS. n- og a-til birtir upp. höfuðborgarSvæðið: ÚtSynningur með éljum og vægu froSti. Þéttur éljagangur eða Snjókoma og nokkuð hvaSSt S- og v-landS. höfuðborgarSvæðið: Snjóar með köflum og bláStur með. Áfram hálfgerð ótíð framrás af svölu og éljaríku lofti er spáð fram yfir helgi og óhætt er að segja að vindasamt verði eins og oft áður þennan veturinn. Skil lægðar fara reyndar yfir landið í dag með slagveðursrigningu eða slyddu, en snjóar á fjallvegum. Síðan snýst í SV-átt og hún verður viðvarandi alla helgina. él sunnan og vestantil á meðan það birtir upp n- og a-lands. á sunnudag gæti víða orðið samfelld snjókoma um tíma SV- lands og þá mögulega samgöngutruflanir. 3 2 2 3 3 0 -1 -5 -4 -1 -1 -3 -4 -5 -2 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is v ið upplifum okkur mjög smá þegar við erum að berjast við þessi stórfyrirtæki,“ segir Fríða Rut Heimisdóttir, hárgreiðslu- meistari og umboðsaðili hárvörufram- leiðandans Tigi á Íslandi. Stórmarkaðirn- ir Hagkaup, Bónus, Krónan, Iceland og Krónan selja vörur merktar Tigi en þær eru ekki keyptar hjá umboðsaðilanum hér á landi og eru seldar í óþökk framleiðand- ans. Tigi gefur sig út fyrir að framleiða há- gæða hárvörur sem eru markaðssettar af fagfólki á hárgreiðslustofum og er umboðsaðilum fyrirtækisins um allan heim óheimilt að selja vörurnar til stórmarkaða. Fríða Rut er umboðsaðili Tigi á Íslandi í gegnum heildsöluna Regalo sem hún rekur ásamt eiginmanni sínum, Vilhjálmi Hreinssyni, en þau eru einnig með umboð fyrir Moroccan Oil-hárvörurnar. Regalo tók við Tigi-umboðinu á Íslandi árið 2005 af eigendum hárgreiðslu- stofunnar Toni&Guy en Fríða telur að Tigi hafi verið selt á hárgreiðslustofum hér á landi frá árinu 1995. „Tigi varð fljótt vinsælt enda gæðavörur. Við höfum undanfarinn áratug verið að byggja upp þekkingu á þess- um vörum í samstarfi við hár- greiðslustofur,“ segir hún. Nokkur ár eru síðan byrjað var að selja einstaka vörur merktar Tigi í matvöru- verslunum og stórmörkuðum hér á landi og hefur þeim sem selja hárvörur merktar Tigi fjölgað jafnt og þétt. Engin af þeim kaupir þó vörurnar í gegn um umboðsaðila Tigi á Íslandi. Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Hagkaups, staðfestir að fulltrúar Tigi hafi haft samband og krafist þess að vör- urnar séu fjarlægðar úr versluninni. „Þau hafa haft samband. En ef viðskiptavinurinn vill kaupa þessar vörur og við getum nálg- ast þær þá bjóðum við vörurnar til sölu. Við erum einfaldlega að sinna eftirspurn,“ segir hann. Gunnar Ingi segir að Hagkaup kaupi Tigi í gegn um endursöluaðila birgja í Bandaríkjunum en ekki beint frá umboðs- aðila þar. Spurður hvort fyrirtækið geti ábyrgst að um raunverulegar Tigi-vörur sé að ræða segir hann: „Við verslum einungis við viðurkennda söluaðila allar okkar vörur hvort heldur sjampó eða sápur.“ Hann segir að samhliða því að alþjóðlegir markaðir opnist sé auðveldara að nálgast vörur og gefur lítið fyrir að Tigi sé selt í stórmörk- uðum í óþökk framleiðandans. „Þetta er ekkert ólöglegt en við bara könnum réttinn okkar megin líka,“ segir hann. Sigurður Gunnar Markússon, fram- kvæmdastjóri innkaupasviðs Kaupáss, staðfestir einnig að fulltrúar Tigi hafi haft samband. Hann segir að þær vörur merkt- ar Tigi sem Krónan selur séu keyptar víða um heim. „Krónan leitast ávallt við að bjóða upp á þær vörur sem viðskiptavinir eru að nota og eða vilja og Tigi vörurnar eru ein af þeim,“ segir hann og spurður af hverju Kaupás kaupi ekki af umboðsaðila Tigi á Íslandi segir hann einfaldlega: „Umboðs- aðili Tigi á Íslandi hefur ekki boðið okkur vörurnar.“ Fríða Rut bendir á að Tigi ætlist til að öll vörulínan sé í boði þar sem varan er seld en hún hefur bæði rekist á hluta úr vöru- línunni auk þess sem hún hefur séð í ís- lenskum stórmörkuðum vörur sem Tigi framleiðir ekki lengur. Fulltrúar Bónus, Iceland og Kosts hafa ekki svarað fyrirspurn Fréttatímans vegna sölu á vörum merktum Tigi. erla hlynsdóttir erla@frettatiminn.is  tigi Framleiðandi er mótFallinn sölu utan hárgreiðslustoFa Hárvöruframleiðandi og stórmarkaðir í hár saman Fulltrúar hárvöruframleiðandans Tigi hafa sett sig í samband við íslenska stórmarkaði sem selja vörur merktar fyrirtækinu og óskað eftir að þær séu teknar úr sölu. Tigi hefur ráðið sér lögmann á Íslandi en vill ekkert gefa út opinberlega um málið að svo stöddu. Fríða Rut Heimisdótt- ir hárgreiðslumeist- ari og eiginmaður hennar, Vilhjálmur Hreinsson, reka heildsöluna Regalo sem er umboðsaðili tigi á íslandi. Mynd úr einkasafni. Framleiðandi Tigi gefur umboðsaðilum skýrar leiðbeiningar um að aðeins megi selja vörurnar til fagaðila á hárgreiðslustofum en ekki til stórmarkaða. Ljósmynd/Hari Sólmyrkvi á eina milljón Stór hópur frá bandaríkjunum kemur til landsins eftir tíu daga í þeim tilgangi að sjá sólmyrkva hér á landi 20. mars og norðurljósin. Ferðin er skipulögð af bandarísku ferðaskrifstofunni Betchart Expedition, sem sérhæfir sig í vísindaferðum. ferðaskrifstofan er með náin tengsl við fjölda bandarískra fagfélaga í vísindum. Í heildina kostar ferðin, sem stendur frá 15. til 23. mars, um 7.500 dollara á mann eða ríflega eina milljón króna. Í heildina borgar hópurinn því um 200 milljónir. 98 herbergi í Keflavík Framkvæmdastjóri Húsagerðarinnar vill byggja risahótel í Reykjanesbæ og leitar að fjárfestum. „Staðsetningin er mjög góð. Við erum aðeins í 5 mínútna fjarlægð frá Keflavíkurflugvelli. Rætt er um að hótel séu að færast út fyrir miðborg reykjavíkur. Hér eru ýmis tækifæri,“ segir Áskell Agnarsson, framkvæmdastjóri Húsagerðarinnar, í samtali við morgunblaðið. Lífeyrissjóður í pítsurnar Framtakssjóðurinn EDDA, sem er rekinn af Virðingu en er í eigu lífeyrissjóða og annarra fagfjárfesta, hefur keypt fjórðungshlut í Domíno‘s Pizza á Íslandi. Eða réttara sagt í Pizza-Pizza ehf., sérleyfishafa Domino‘s Pizza international á íslandi. 12 til Brandenburg íslensku auglýsingaverðlaunin, eða Lúðurinn, verða afhent við hátíðlega athöfn þann 13. mars í Háskólabíói. Þetta er í tuttugasta og níunda sinn sem verðlaunin eru afhent. Í vikunni voru tilnefningarnar tilkynntar. auglýsingastofan brandenburg fékk flestar tilnefningar til verðlaunanna, eða tólf talsins. Næst kemur auglýsingastofan Jónsson & Le´macks með ellefu tilnefningar. 5800 sundlaugar af heitu vatni Ein stak ling ar og at vinnu líf á höfuðborg- ar svæðinu notuðu 8,7 millj ón rúm metra af heitu vatni í fe brú ar . Það eru 5.800 sund laug ar, ef miðað er við djúpu úti laug ina í Laug ar dals laug. Jafn framt eru það hvorki meira né minna en 4,35 millj arðar tveggja lítra kók flaskna. Sam kvæmt upp lýs ing um frá Orku- veitu Reykja vík ur hef ur meiri notk un í fe brú ar mánuði ekki sést áður. Sá fe brú ar mánuður sem næst kem ur, var árið 2008. Þá var notk un in 8,3 millj ón ir rúm metr ar. Notk un in í ár er 8% meiri en árið 2008.  vikan sem var lækkun eldsneytis eins og launahækkun Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði skarpt frá síðasta sumri og fram í janúar, en hefur síðan hækkað nokkuð aftur. Verðlækkunin skýrist einkum af því að eftirspurn eftir olíu hefur aukist hægar en áður. Þetta hefur haft umtalsverð efnahagsleg áhrif. En hvaða tækifæri skapast með lægra olíuverði hér á landi? Þetta var umræðuefnið á opnum fundi sem landsbankinn efndi til í gær. Daníel Svavarsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, segir að lækkun eldsneytisverðs skili sér í lægri verðbólgu. Hefði verðið haldist óbreytt á síðasta ári, væri verðbólgan nú 1,7 prósent í staðinn fyrir 0,8 prósent. 4 fréttir Helgin 6.-8. mars 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.