Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.03.2015, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 06.03.2015, Blaðsíða 18
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS Kosning til stjórnar VR 2015–2017 Rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félags­ manna VR vegna kjörs í sjö stjórnarsæti og þrjú til vara hófst 5. mars og lýkur kl. 12 á hádegi þann 12. mars. Kosningin er skv. 20. gr. laga VR. Allar nánari upplýsingar fást á vr.is eða á skrifstofu félagsins í síma 510 1700. Kjörstjórn VR Þ egar hugsað er um feril Gunn- ars Þórðarsonar þá liggja rúmir fimm áratugir að baki og hundruð laga. Hann er þó hlédrægur að venju þegar ferilinn ber á góma. „Þetta hefur haldist ágætlega,“ segir hann og Hvað á ég að gera annað en að spila? Ég hef aldrei gert neitt annað Tónlistarmaðurinn Gunnar Þórðarson varð sjötugur í janúar og ætlar af því tilefni að halda stórtónleika í Eldborgarsal Hörpu þann 29. mars næstkomandi, þar sem margir af þekktustu söngvurum landsins heiðra listamanninn með því að flytja mörg af hans þekktustu lögum. Gunnar segist ekki velta aldrinum mikið fyrir sér og segir þetta ennþá vera gaman. Hvort sem það er að semja óperur eða spila á Kringlukránni með gömlum félögum. glottir. „Ég ætla að taka bara það sem mér þykir best á þessum tónleikum.“ Ertu með misjafnar skoð- anir á því hvað er best? „Já maður var ekki alltaf í stuði,“ segir Gunnar. „Fyrsta lagið sem ég samdi var eitt- hvert gítarlag í Shadows stíl sem hét 79 mílur, en fyrsta lagið sem sló í gegn var Fyrsti kossinn. Ætli Bláu augun þín sé samt ekki þekktasta lagið,“ segir Gunnar. Hvert er uppáhaldslagið þitt? „Ætli það sé ekki Himinn og jörð, öll sú plata. Borgar- bragur hefur líka verið í uppáhaldi,“ segir Gunnar en platan Borgarbragur var gefin út í tilefni af afmæli Reykjavíkurborgar. Er með aðra óperu í smíðum Gunnar Þórðarson frum- flutti óperuna Ragnheiði á síðasta ári og segir það hafa verið langþráðan draum. „Ég var búinn að vera með hana lengi í maganum og það var mjög ánægjulegt,“ segir Gunnar. „Ég vissi að þetta yrði erfitt en ég vildi bara ögra mér. Ég var rúmlega þrítugur þegar ég byrjaði að lesa nótur og mig hafði lengi langað að gera óperu. Ferlið er langt en óperan er miklu opnara hugtak en poppið. Í óperunni á ég auðveldara með að nota allt sem ég kann. Maður þarf að vera innan marka þegar maður semur popptónlist, ef fólk á að hlusta á hana,“ segir Gunnar. Hvað gerir Gunnar Þórðar- son næst? „Ég er með aðra óperu í smíðum og ætla að láta hana vera tilbúna eftir tvö ár kannski.“ Varstu smeykur um við- brögð frá klassíska geiranum? „Nei, ég hef alltaf bara fundið velvild þaðan til mín. Við eigum svo gott fólk í þessum geira. Þetta gekk allt frekar mjúkt fyrir sig og maður var bara rólegur,“ segir Gunnar. „Petri Sakari stjórnandi vann þetta af mikilli alúð.“ Fyrsti kossinn ekki uppáhaldslagið Á tónleikunum í Hörpu ætlar Gunnar að draga ýmis lög upp úr pokanum sem eru kannski ekki reglulega á dagskrá hjá honum. „Ég ætla að tína ýmislegt til. Sum lögin hef ég aldrei spilað, en þetta verður eitthvað frá öllum árunum.“ Er alltaf jafn gaman að spila lög eins og Fyrsta koss- inn? „Já, já,“ segir Gunnar og glottir. „Það er kannski ekki uppáhaldslagið mitt.“ Gunnar kemur reglulega fram með gömlum vinum á Kringlukránni og spilar gömlu lögin á dansleikjum og segist ekki vera kominn með leið á því að spila þetta gamla efni. „Mér finnst þetta alltaf skemmtilegt og svo er þetta svo góð æfing fyrir fingurna. Ég þekki þessi lög svo vel og það er alltaf jafn gaman að spila þetta. Maður hættir aldrei,“ segir Gunn- ar. „Hvað á maður að gera annað? Ég hef aldrei gert neitt annað.“ Ungir menn með fulla vasa fjár Hljómar frá Keflavík urðu 18 viðtal Helgin 6.-8. mars 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.