Fréttatíminn - 06.03.2015, Blaðsíða 30
F aðir minn var alkóhólisti, skapstór og hélt fjölskyldunni í heljargreipum. Móðir mín var mjög óörugg og bæld
því það var hann sem hafði valdið. Að
vera lítill drengur við þessar aðstæður
leiddi til þess að ég varð óttasleginn.
Pabbi var aggressívur en ég var pas-
sívur, ég var hræddur og fór að tipla á
tánum inni á heimilinu,“ segir Kjartan
Pálmason, ráðgjafi hjá Lausninni fjöl-
skyldumiðstöð. Hann er alinn upp úti
á landi, er yngstur fimm systkina og
segir foreldra sína hafa verið af gamla
skólanum.
„Meðvirkni er í raun vanþroski sem
verður til vegna þess að við fáum ekki
nægilega heilbrigðar kringumstæður
til að þroskast. Upphafið má yfirleitt
rekja til æskunnar og þeirra aðstæðna
sem við ölumst upp við. Við upplifum
vanlíðan og sársauka, og í staðinn
fyrir að vaxa upp sem við sjálf förum
við að laga okkur að aðstæðum þannig
að okkar upprunalega eðli tekur breyt-
ingum. Það er það sem gerðist hjá mér.
Ég fór ómeðvitað að einangra mig. Ég
lét lítið fyrir mér fara á heimilinu, ótt-
aðist að segja mína skoðun og forðaðist
hvers konar átök. Ég setti álit annarra
ofar mínu. Afleiðingarnar voru þær að
ég varð félagslega vanhæfur, sjálfs-
virðingin þroskaðist ekki því umhverf-
ið braut niður röddina mína. Þarna
þróaði ég með mér hlutverk sem innan
meðferðargeirans er kallað hlutverk
týnda barnsins,“ segir hann.
Við erum öll breysk
Kjartan er einn af stofnendum Lausn-
arinnar þar sem hann starfar sem ráð-
gjafi. Kjartan er menntaður guðfræð-
ingur og hefur lokið embættisprófi
frá guðfræðideild Háskóla Íslands.
Hann hefur einnig sótt námskeið
erlendis hjá Piu Mellody sem er einn
helsti brautryðjandinn í skilgreiningu
á meðvirkni og hefur gefið út ýmsar
bækur og kennsluefni um greiningar,
orsakir og meðhöndlun vandans. Ein
þekktasta bók Piu er nýkomin út hjá
Forlaginu undir heitinu: „Meðvirkni
– orsakir, einkenni og úrræði“ en hún
hefur selst í hundruðum þúsunda
eintaka víða um heim. Pia telur að róta
meðvirkni sé oft að finna í bernsku
hins meðvirka og til að læknast af
meðvirkni þurfi fólk að byrja á að
græða sárin sem það varð fyrir í upp-
eldinu. Kjartan segir að stærsti hluti
starfsins í Lausninni byggi á hug-
myndafræði Piu. „Ég þekki á eigin
skinni hversu vel þetta virkar. Pia er í
dag 73 ára, þekking hennar byggir á
margra áratuga vinnu, aðferðum sem
hún hefur þróað eftir mikil áföll í eigin
lífi og síðan deilt með öðrum,“ segir
hann.
Kjartan segist í raun telja að með-
virkni sé að finna alls staðar, bara
í mismiklum mæli. „Við erum öll
breysk. Ég lít ekki á meðvirkni sem
áfellisdóm heldur sem leiðsögn. Ef
fólk upplifir meðvirkt háttarlag í sínu
lífi þá eru til leiðir fyrir fólk til að laga
það. Hér áður fyrr var helst talað um
meðvirkni í tengslum við alkóhólisma
en það er í raun bara ein birtingar-
myndin. Meðvirkni getur átt sér stað
barn sem elst upp við deilur foreldra,
skilnað, mikla búferlaflutninga, geð-
raskanir. Börn eru í raun bara eins og
litlir svampar, þau eru einstaklingar
í mótunarferli sem eru einfaldlega að
sækjast eftir því að læra af umhverfi
sínu. Lítil börn eru sérlega óvarin og
við óeðlilegar aðstæður verður tilvera
þeirra skekkt,“ segir hann.
Hetjan og týnda barnið
Þrátt fyrir að hafa upphaflega verið í
hlutverki týnda barnsins á heimilinu
þróaðist hlutverk Kjartans yfir í að
vera „svarti sauðurinn“ þegar hann
var um 8 ára gamall. „Ég fór þá að
verða mjög uppátektasamur og leið
verr og verr. Um 11 ára byrjaði ég að
drekka og þróa minn alkóhólisma. 25
ára gamall hafði ég brennt allar brýr
að baki mér og var kominn í meðferð,“
segir hann. Kjartan tekur fram að þau
hlutverk sem börn fara í séu af ýmsum
toga. „Oft fer elsta systkinið í hlutverk
hetjunnar. Það barn leggur sig fram
við að vera alltaf til staðar og standa
sig vel, það tekur ábyrgð á heimili eða
tilfinningum foreldra. Það upplifir
höfnun en reynir að vera hetja til að
fá staðfestingu á eigin verðmæti. Þau
börn sem fóru í hlutverk hetjunnar
eru sem fullorðnir líklegir til sýna af
sér stjórnsemi og ráðskast með aðra.
Týndu börnin halda hins vegar áfram
að vera passív, óvarin og félagslega illa
sett. Það sem þau eiga sameiginlegt
á fullorðins aldri er að sjálfsvirðing,
sjálfstraust og sjálfsþekking er ekki í
lagi, þau kunna illa að setja heilbrigð
mörk og að hegðun þeirra er langt frá
því sem kallast getur heilbrigt.“
Hann segir aldrei of seint fyrir fólk
að leita sér aðstoðar vegna meðvirkni.
„Það er aldrei of seint að vinna að
því að verða betri manneskja og ráða
betur við lífið. Þegar fólk fær aðstoð er
það í raun að laga þá skekkju sem varð
til, tekur sjálft við uppeldi sínu og elur
sig upp miðað við hvernig það er í eðli
sínu.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ég setti álit
annarra ofar
mínu.
CEWE framköllun á ELKO.is
BÚÐU TIL ÞÍNA EIGIN LJÓSMYNDABÓK EÐA PERSÓNULEGA GJÖF
Sjá nánar á elko.is/framkollun
5 stærðir í boði. 30x30 til 60x40 cm.
(e.Premium Double-Sided Cushions)
Verð frá 4.315 kr.
21x21 cm. Tvær gerðir af kápum.
(e. Square Photobook)
Verð frá 3.272 kr.
UV prentun á 5 mm frauðplastplötu.
(e. Foam Board Print)
Verð frá 2.546 kr.
PÚÐI MEÐ MYNDLJÓSMYNDABÓK VEGGMYNDIR Á FRAUÐPLAST
16%
afsláttur
10%
afsláttur
15%
afsláttur
AFSLÁTTARKÓÐI:
15CUSHIONS
AFSLÁTTARKÓÐI:
15CFB9
AFSLÁTTARKÓÐI:
15FOAM11
Börn eru eins og litlir svampar
Kjartan Pálmason,
ráðgjafi hjá
Lausninni fjöl-
skyldumiðstöð,
segir meðvirkni
vera vanþroska
sem verður til
vegna þess að
einstaklingurinn
fær ekki nægi-
legar heilbrigðar
aðstæður til að
þroskast. Hann ólst
upp hjá skapstórum
föður með áfengis-
vanda og óöruggri
móður sem hélt sig
til hliðar, og varð
sjálfur meðvirkur
vegna ástandsins á
heimilinu. Kjartan
hefur sótt nám-
skeið hjá Piu Mellow
sem er einn helsti
brautryðjandi þegar
kemur að skil-
greiningu og ráðgjöf
vegna meðvirkni.
Hún er ennfremur
höfundur bókar
um meðvirkni sem
er nýkomin út á ís-
lensku.
Kjartan
Pálmason,
ráðgjafi hjá
Lausninni
fjölskyldu-
miðstöð,
glímdi sjálfur
við meðvirkni
og var afar
óöruggur og
átti erfitt
uppdráttar
félagslega.
Ljósmynd/Hari
30 viðtal Helgin 6.-8. mars 2015