Fréttatíminn - 06.03.2015, Blaðsíða 32
32 fjölskyldan
Hóf er best í öllu
H versu gamalt var barnið þitt þegar það byrjaði að sýna símanum þínum áhuga? Ekki heimasímanum sem enginn hefur lengur áhuga á heldur snjallsímanum þar sem barnið sá þig skoða og tala og pikka og fletta með
tilþrifum. Auðvitað mjög ungt og þótt barnið hafi í byrjun ekki ráðið vel við verk-
efnið, má reika með að á öðru aldursári hafi snjalltæki heimilisins verið orðin því
ansi töm. Fyrst í stað finnst okkur þessi áhugi barnsins og fljótsprottin leiknin vera
bara skemmtileg og heillandi og svo kemur að því að okkur hentar ágætlega að
nýta snjalltækin í uppeldinu. Hvað er til dæmis þægilegra en að rétta rellandi barni
farsímann sinn eða spjaldtölvuna til að kaupa sér augnabliksfrið á kaffihúsinu með
vinkonunum, í þreytandi bílferðum eða rétt meðan pabbinn klárar að svara tölvu-
póstinum í sínu eigin snjalltæki?
Já, og hver amast lengur við því þótt kveikt sé á sjónvarpinu lungann úr
vökutíma og viðveru fjölskyldunnar á heimilinu? Það eru fæstir að horfa og
oft er nánast þaggað niður í hljóðinu þótt myndin sjálf flökti á skjánum í bak-
grunni heimilislífsins þar sem börn og fullorðnir rýna fremur hver um sig á
sinn einkaskjá, stóran sem smáan. Snjallheimur, skjátími, skjálíf? Hefðum við
trúað okkar eigin augum ef við hefðum getað séð inn í framtíðina í lok síðustu
aldar?
Bæði við og börnin okkar erum að meðhöndla tækni sem við vitum óskap-
lega lítið um, hvort sem horft er til uppeldislegra afleiðinga af skjálífinu eða
umhverfislegra áhrifa af bylgjum frá þráðlausum netum og farsímum. Svo lítið
vitum við að stundum finnst mér sem snjallbörnin okkar séu í aftursæti fjöl-
skyldubílsins á sjöunda áratugnum og foreldrarnir mokkreykjandi – en bara
frammí og skildu ekkert í bráðbílveikum afkvæmum sínum. Engum datt í hug
að börnin ættu að njóta vafans ef eitthvað gæti verið bogið við afleiðingar reyk-
inganna sem reyndar fæstum datt í hug á þeim tíma.
Deildar meiningar eru um umhverfisafleiðingar en Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unin (WHO) setti bylgjur frá þráðlausum netum og farsímum í vafaflokk með
mögulega krabbameinsvaldandi umhverfisþáttum fyrir þremur árum. Í byrjun
þessa árs setti franska þingið bann við þráðlausum netum í leikskólum og miklar
takmarkanir í grunnskólum til að vernda börn fyrir rafmengun frá snallsímum,
spjaldtölvum og þráðlausu neti þar sem heilar barna og ungmenna drekka í sig þre-
falt meiri rafmengun en heilar fullorðinna. Ef börn eiga að njóta vafans ættu barna-
fjölskyldur að slökkva á þráðlausa netinu nema þá stuttu stund sem samkomulag
er um að fjölskyldan skreppi í netheimana.
Þá er komið að uppeldislegum afleiðingum skjálífsins. Við vitum að margt á
skjánum hefur neikvæðar afleiðingar á börn algjörlega óháð skjárýni foreldra á það
sem er siðlega þóknanlegt í áhorfi. Bjart ljósið, glamparnir ásamt tifi í myndinni
og bliki frá skjánum, sterkir litir og hraðar skiptingar og klippingar geta verið sem
árás á óvarið taugakerfi lítilla barna hvort sem þau horfa beint eða sjá skjáinn út
undan sér. Vegna þessa hafa komið fram kenningar um að skjálífið stuðli að þróun
athyglisbrests hjá börnum. Fleiri neikvæðar afleiðingar eru einnig í umræðunni;
tölvufíkn ungmenna og fullorðinna svo og snjalltækjasókn barna sem mörg hver
emja eins og stungnir grísir ef snjalltækið er tekið af þeim. Sálfræðingar eru farnir
að ræða um alvarleika þess að börn verði háð snjalltækjum rétt eins og efnafíklar
og sýni sömu viðbrögð þegar „efnið“ er tekið frá þeim.
Hér hvílir ábyrgðin á okkur, hinum fullorðnu rétt eins og í notkun sælgætis og
annars sem börn fá aldrei nóg af og verður að skammta af skynsemi. Rétt eins
og við slökkvum á netbeini heimilisins, leggjum við snjalltæki til hliðar nema á
ákveðnum stundum og það gildir bæði fyrir börn og fullorðna og þegar barnið
sér foreldrið leggja snjallsímann sinn í skálina, gerir barnið það sama með gleði.
Slökkvum á sjónvarpi eða höfum það þar sem skjárinn er ekki stöðugt í augsýn.
Þar með getur barnið notið jákvæðrar reynslu og auðgað líf sitt með allri heims-
ins tækni en með varnarskjöld foreldra sinna sem láta vafann vera réttu megin á
heimilinu.
Það er nefnilega með snjalltæknina eins og allt annað; hóf er best í öllu.
Bæði við og börnin okkar erum að meðhöndla tækni sem
við vitum óskaplega lítið um, hvort sem horft er til upp-
eldislegra afleiðinga af skjálífinu eða umhverfislegra áhrifa
af bylgjum frá þráðlausum netum og farsímum.
Snjallbörn í snjallheimi
Margrét
Pála
Ólafsdóttir
ritstjórn@
frettatiminn.is
Heimur barna
Helgin 6.-8. mars 2015
Flóðatafla fyrir helgina 7.-8. mars 2015:
Háfjara, Háfjara,
árdegis Lokar Opnar síðdegis Lokar
7. mars 01.21 03.21 11.37 13.37 15.37
8. mars 01.50 03.50 12.05 14.05 16.05
Tímar eru miðaðir við 2 klst. fyrir og eftir háfjöru, bæði síðdegis og árdegis.
Ævintýraferð út
í Gróttuvita
Gönguferð út í Gróttuvita er frábær
fjölskylduskemmtun og gott tækifæri
til að kynna börnin fyrir náttúrulög-
máli flóðs og fjöru. Flestum börnum
þykir það vera mikið ævintýri að
ganga út í vita vitandi það að þau þurfi
að fylgjast með sjávarföllunum. Opið
er í Gróttu um það bil 3 klukkustund-
ir fyrir og eftir háfjöru þannig að um
helgina eru kjöraðstæður.
VALENCIA 1.–5. APRÍL – PÁSKAFERÐ
BEINT FLUG MEÐ ICELANDAIR OG GISTING Í 4 NÆTUR
Á 4 STJÖRNU HÓTELI Í HJARTA BORGARINNAR
NETVERÐ FRÁ 99.900 KR. NÁNAR Á UU.IS
Innifalið er flug, gisting, flugvallarskattar, íslensk fararstjórn, 20 kg taska og handfarangur.
VARSTU
BÚIN AÐ
FRÉTTA
AÐ Á
FISKISLÓÐ
39 ER ...
landsins m
esta úrval b
óka,
á Forlagsve
rði?
stærsta kor
tadeild land
sins?
www.forlagid.is
Gunnar Smári skrifar um
þjóðmálin og hefur tekið
upp þráðinn við matarskrif
Nýr vefur Fréttatímans
er kominn í loftið
www.frettatiminn.is