Fréttatíminn - 06.03.2015, Síða 54
54 matur & vín Helgin 6.-8. mars 2015
Bakarar framtíðarinnar
keppa um KORNAX bikarinn
Hin árlega nemakeppni í bakstri er nú í fullum gangi. For-
keppnin fór fram í síðustu viku og úrslitin verða í dag, föstu-
dag. KORNAX stendur að keppninni í samvinnu við Bakaradeild
Menntaskólans í Kópavogi, Landssamband bakarameistara og
Klúbb bakarameistara.
K eppendur í árlegri nema-keppni í bakstri sýna listir sínar í formi matbrauða-
gerðar, smábrauðagerðar, vínar-
brauðagerðar, borðskreytingum úr
brauðdeigi auk þess sem uppstill-
ing telur einnig til stiga. Hver kepp-
andi velur sér þema sem hann vinn-
ur með í gegnum keppnina. Fjórir
keppendur keppa til úrslita. Verð-
launin eru ekki af verri endanum,
en vinningshafi hlýtur ferðavinn-
ing, Kornax bikar til eignar og far-
andbikar frá Klúbbi bakarameistara
sem vinningshafi varðveitir í eitt ár.
Ásgeir Þór Tómasson, fagstjóri
bakaradeildar við MK, og Stefán
Gaukur Rafnsson, bakari hjá Korn-
ax, eru sammála um að keppni sem
þessi veiti nemum einstakt tækifæri
til að auka við faglega færni og öðlast
dýrmæta reynslu sem mun nýtast vel
í verkefnum eins og verklegu loka-
prófi og sveinsprófi. Auk þess hefur
sigurvegara keppninnar gefist tæki-
færi til að taka þátt í sambærilegum
keppnum erlendis. „Bakaranámið er
mikil listiðn þar sem sköpunarhæfi-
leikar nemenda koma glögglega
í ljós,“ segir Ásgeir Þór og nefnir
dæmi þess efnis að nemendur hafi
uppgötvað leynda sköpunarhæfileika
á meðan náminu stendur. Í ár taka
sjö keppendur þátt og ljóst er að nóg
er af efnilegum bökurum á landinu.
Unnið í samstarfi við
KORNAX
Keppendur í nemakeppni KORNAX 2015
Íris Björk Óskarsdóttir
Sveinsbakarí
Hvaða þema varð fyrir valinu og hvers vegna?
Skrautstykkið mitt sækir innblástur í norræna
goðafræði og ég vinn með norrænt þema út frá
því. Ég hef alltaf haft gaman af gömlu sögunum úr
ásatrúnni auk þess sem ég á móður frá Noregi og
föður frá Íslandi. Við Norðurlöndin eigum langa sögu
saman og samtvinnaða menningu ásamt skemmti-
legum hefðum í mat og drykk.
Framtíðarplön? Markmiðið er að skoða heiminn
og sérhæfa mig á mínu áhugasviði sem er köku- og
eftirréttagerð og súkkulaðivinna.
Birgir Þór Sigurjónsson
Passion Reykjavík
Hvaða þema varð fyrir valinu og hvers vegna?
Frost, vegna þess að maður þekkir lítið annað þessa
dagana.
Framtíðarplön? Að eiga frábæra fjölskyldu og
verða betri bakari og halda áfram að læra og þróast.
Gunnlaugur Ingason
Kökulist
Hvaða þema varð fyrir valinu og hvers vegna?
Þemað mitt er karnival. Ástæðan fyrir því er að nú
um miðjan febrúar var karnival hátíðin haldin um
allan heim og fannst mér sniðugt að hafa það sem
þema eftir að hafa séð fréttir og myndir af karnival
hátíðunum.
Framtíðarplön? Mig langar að komast út í einhvern
tíma, annað hvort á meðan náminu stendur eða
strax eftir útskrift. Þá er það aðallega Danmörk sem
heillar. Ég ætla sjálfur að fara í rekstur, fljótlega eftir
að ég hef lokið náminu.
Anna María Guðmundsdóttir
Mosfellsbakarí
Hvaða þema varð fyrir valinu og hvers vegna?
Þemað er Provence af því að ég hef komið þangað
fjórum sinnum og heillast mikið af menningu, mat
og landslagi.
Framtíðarplön? Mín framtíðarplön eru til að byrja
með að klára námið, vinna svo í nokkur ár og safna
mér reynslu og safna peningum, svo langar mig
rosalega að flytja til suður Frakklands og vinna í
bakaríum þar, og svo á endanum að opna mitt eigið
kaffihús.
Fannar Sævarsson
Okkar bakarí
Hvaða þema varð fyrir valinu
og hvers vegna? Ég var með
Fjallabrauð sem eru mjög vinsæl
í bakaríinu hans pabba á Ísafirði
(Bakarinn) og langaði að tengja
skrautstykkið við það. Holuhraun
varð fyrir valinu þar sem það
hefur verið fyrirferðamikið að
undanförnu.
Framtíðarplön? Útskrifast sem
bakari og stúdent. Tíminn mun
svo leiða í ljós hvert framhaldið
verður.
Hálfdán Þór
Þorsteinsson
Sauðárkróksbakarí
Hvaða þema varð fyrir valinu
og hvers vegna? Skrautstykkið
mitt er gamaldags kringla og mig
langaði einfaldlega að fara aftur
í gömlu og góðu dagana þegar
bakaríin voru allsráðandi.
Framtíðarplön? Auka kunnáttu
mína í bakstri.
Davíð Þór
Vilhjálmsson
Gæðabakstur
Hvaða þema varð fyrir valinu
og hvers vegna? Þemað var
áttblaðarós vegna þess að mér
finnst hún falleg.
Framtíðarplön? Meiri bakstur.
Úrslit
Keppendurnir sjö sem taka þátt í nemakeppni KORNAX í ár. Fjórir komast áfram í úrslitin sem fram fara í dag, föstudag.
Ljósmyndir/Hari