Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.03.2015, Síða 60

Fréttatíminn - 06.03.2015, Síða 60
Yfirlitssýn- ing Iðunnar Ágústs- dóttur stendur til 19. apríl.  Akureyri ListAsAfnið og MjóLkurbúðin Sýningar þriggja ættliða í Listagilinu Í Listagilinu á Akureyri má um helgina sjá sýningar þriggja ættliða. Yfirlitssýning á verkum Iðunnar Ágústsdóttur verður opnuð í Listasafninu á Akur- eyri, Ketilhúsi, á morgun, laugardag klukkan 15. Tilefni sýningarinnar er 75 ára afmæli listakonunnar sem er fædd og uppalin á Akureyri. Iðunn hóf myndlistarferil sinn 1977 en fyrsta einkasýning hennar var haldin 1979 í Gallerí Háhól. Hún var einn meðlima Myndhópsins sem stofnaður var 1979. Iðunn vann aðal- lega með olíuliti og pastelkrít í verkum sínum. Hennar helstu viðfangsefni á ferlinum eru landslagið, náttúran, fólk og hið dulræna. Iðunn hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hérlendis og erlendis. Sýningarstjóri er sonur Ið- unnar, Eiríkur Arnar Magn- ússon myndlistarmaður, en hann opnar sama dag, klukkan 16, sýningu á eigin verkum í Mjólkurbúðinni í Listagilinu. Sunnudaginn 8. mars lýkur svo yfirlitssýningu á verkum móður Iðunnar, Elísabetar Geirmundsdóttur, Listakonan í Fjörunni. Í tilefni af síðustu sýning- arhelginni verður boðið til söngveislu í austursal Lista- safnsins klukkan 14 á morgun, laugardag. Nemendur Tón- listarskólans á Akureyri og Kór Akureyrarkirkju munu flytja söngdagskrá með lögum og ljóðum Elísabetar. Aðgangur er ókeypis. Hennar helstu viðfangsefni á ferlinum eru landslagið, náttúran, fólk og hið dulræna. Garðar Stefánsson gerði heimildarmynd um krónuna að loknu hagfræðinámi.  kvikMyndir ný heiMiLdArMynd uM krónunA Fengu ekki svör frá Davíð Íslenska krónan er ný íslensk heimildarmynd sem frumsýnd verður á boðssýningu í Bíó Paradís á morgun, laugardaginn 7. mars. Almennar sýningar hefjast sunnudaginn 8. mars. Í Íslensku krónunni er, eins og titillinn gefur til kynna, fjallað um gjaldmiðil okkar Íslendinga. Sögu hans, stöðu og framtíð. Að sýningu lokinni á laugardag, klukkan 17, fer fram umræðu- fundur um stöðu og framtíð íslensku krónunnar. Þátttakendur í pallborði eru Garðar Stefánsson leikstjóri, Már Guðmundsson seðlabankastjóri, Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur og Katrín Ólafsdóttir, lektor við HR. Umræðum stýrir framleiðandi myndarinnar, Atli Bollason. A ðstandendur heimildar-myndarinnar Íslenska krónan, hafa lagt kapp á að myndin sé auðskilin og fræðandi án þess þó að fórna fjölbreytni í skoðunum né gagnrýn- inni hugsun. Leikstjórinn Garðar Stefánsson segir hugmyndina hafa orðið til í hagfræðideild Háskóla Ís- lands. „Hugmyndin kviknaði þegar ég var sjálfur að klára hagfræðinám í kringum 2007,“ segir Garðar. „Ég hafði alltaf heillast af þessum mann- gerða heimi peninga sem við lifum í. Spurningunni um hvort krónan sé góð og hlutir sem maður pældi lítið í,“ segir Garðar sem vildi gera mynd þar sem útskýrt væri hvernig þessir hlutir virka. „Það var svona grunn- pælingin sem hvatti mig áfram. Ég plataði Atla Bollason með mér í þetta verkefni en hann framleiddi myndina,“ segir Garðar. „Hann var pínu hræddur við hagfræðihlutann af þessu en vildi að allar spurningar fengju séns í þessu.“ Ráðist var í gerð myndarinnar í góðærinu þegar Íslendingar töldu sig einhverja ríkustu þjóð í heimi, því gengi krónunnar var svo hátt. Hugmyndin var að bæta þekkingu áhorfenda á hagfræði svo þeir gætu sjálfir metið hvort Íslendingar væru jafnmiklir galdrakarlar í fjármálum eins og af var látið. Nú, þegar efna- hagslífið fer batnandi er líklega ekki vanþörf á að bæta skilning lands- manna á peningamálum á ný og ljá þeim hugtakaforða til að hugsa með gagnrýnum hætti um efnahagsmál. Myndin tók 7 ár í framleiðslu og talaði Garðar við mikinn fjölda fólks við gerð hennar. „Þróunin átti sér stað frá þeim tíma sem allir vildu tala við mig í það að enginn vildi tala,“ segir Garðar. „Við send- um Davíð Oddssyni bréf um efn- ið, en því var aldrei svarað. Hann var seðlabankastjóri árið 2008 og hefði getað svarað mörgum spurn- ingum,“ segir Garðar. Meðal við- mælenda eru Már Guðmundsson seðlabankastjóri, Einar Már Guð- mundsson rithöfundur, Kristrún Tinna Gunnarsdóttir hagfræðing- ur, Heiðar Már Guðjónsson fjár- festir, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Guðni Th. Jóhannesson sagnfræð- ingur og Eyja Margrét Brynjars- dóttir heimspekingur, auk fjölda annarra sérfræðinga og leikmanna sem eiga það sameiginlegt að nota krónuna á hverjum degi til að borga fyrir nauðsynjar. „Markmiðið er ekki að sanna, eða afsanna neitt. Heldur setja fram spurningar um hlutverk krónunnar á aðgengilegan hátt,“ segir Garðar Stefánsson leikstjóri. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is 60 menning Helgin 6.-8. mars 2015
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.