Fréttatíminn - 24.04.2015, Blaðsíða 6
betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Faxafeni 5, Reykjavík, Sími 588 8477
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 11-16
Dalsbraut 1, Akureyri, Sími: 558 1100 • Skeiði 1, Ísafirði, Sími 456 4566
ÞÍN STUND
ÞINN STAÐUR
TIMEOUT
Hægindastóll með skemli
Fáanlegur í mörgum útfærslum og litum.
Svart leður og hnota með skemli.
Fullt verð: 379.980 kr.
Tilboðsverð 299.990 kr.
AFSLÁTTUR
20%
Stillanlegur höfuðpúði.
Þægilegt
handfang
til að stilla
halla á
baki.
Skemill hentar
öllum óháð lengd.
V erkfallsaðgerðir rúmlega 10 þús-und félagsmanna Starfsgreinasam-bands Íslands hefjast næstkomandi
fimmtudag, 30. apríl og munu standa yfir í
hálfan sólarhring, frá hádegi til miðnættis.
Eftir það taka við regluleg sólarhring-
sverkföll þar til ótímabundið verkfall hefst
26. maí, takist samningar ekki fyrir þann
tíma. Ljóst er að verkföllin munu hafa
mikil áhrif á fjölda vinnustaða um land allt,
komi til þeirra. 42% félaga í SGS starfa á
matvælasviði en 32% eru í þjónustugrein-
um. Aðrir hópar eru í byggingarstarfsemi
og mannvirkjagerð, iðnaði og farartækja-
og flutningsgreinum.
95% stuðningur við verkfallsaðgerðir
Félagsmenn SGS samþykktu aðgerðirnar
með yfirgnæfandi meirihluta, eða 94,6%,
í atkvæðagreiðslu sem staðið hafði í eina
viku og lauk á miðnætti mánudaginn 20.
apríl. Kjörsókn var 50,4%. Björn Snæ-
björnsson, formaður Einingar-Iðju og
Starfsgreinasambands Íslands, fagnar
skýrri niðurstöðu og góðri kjörsókn.
„Kjörsókn var mjög góð og afstaðan er
skýr þrátt fyrir að þetta sé mjög fjölbreytt-
ur hópur fólks.“
Hann segir kjörsóknina hafa verið meiri
á þeim stöðum þar sem fiskvinnslan er
undirstöðugrein og að það komi ekki á
óvart. „Menn vita að það er borð fyrir báru
í fiskvinnslunni og menn sjá vel á hagn-
aðartölum fyrirtækjanna að það er nóg til
skiptanna. Fólk er bara mjög ákveðið í að
ná þar sínum hlut. Það er góður hugur í
fólki og það er tilbúið að fylgja eftir þeim
kröfum sem það sjálft bjó til,“ segir Björn
en krafan er að á þremur árum verði taxta-
laun komin upp í 300.000 krónur.
214.700 krónur í fiskvinnslunni
Björn segir allt of marga vinna eftir allt
of lágum töxtum. „Starfsfólk sem er að
byrja að vinna á veitingahúsi er með 1208
krónur á tímann í dagvinnu og svo kemur
vaktaálag á það, ef það er í vaktavinnu. En
eftir sjö ár í sömu vinnu getur viðkomandi
starfskraftur hækkað upp í 1248 krónur,
eða um 40 krónur á sjö ára tímabili. Ef við
horfum á kjötvinnsluna og sérhæft iðn-
verkafólk þá er það með frá 1208 krónum
upp í 1250 krónur á tímann. Þetta eru
taxtar sem því miður allt of margir eru á.“
Launin í fiskvinnslunni eru aðeins hærri
vegna bónusa, sem þó eru mjög misjafnir
eftir svæðum. „Grunnlaunin í fiskvinnsl-
unni eru 214.700 krónur en svo hækka
launin þar vegna bónusa sem greiddir eru
fyrir afköst. Bónusar hífa launin upp og
hér á Eyjafjarðasvæðinu er fastur bónus
milli 400 til 500 krónur á tímann, en sums-
staðar er hann ekki nema 80 krónur ofan
á tímakaupið. Þannig að dagvinnulaun
hjá einstaklingi sem hefur unnið í sjö ár í
frystihúsi eru 1280 krónur, plús kannski
450 krónur í bónus. Þá er viðkomandi að
hafa um 300.000 á mánuði. Það er að segja
ef það er ekki hráefnisskortur.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Verkföll Aðgerðir StArfSgreinASAmbAndSinS hefjASt 30. Apríl
Fólk mjög ákveðið
að ná sínum hlut
Fiskvinnslufólk er með 214.000 krónur í grunnlaun á mánuði en bónusar geta hækkað launin í
allt að 300.000 krónur. Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir mikinn
hug vera í sínu fólki, það sé tilbúið að berjast fyrir 300.000 króna lágmarkslaunum . Menn viti að
í fiskvinnslunni sé borð fyrir báru. Verkfallsaðgerðir munu hefjast næstkomandi fimmtudag, 30.
apríl, takist samningar ekki fyrir þann tíma.
Ljóst er að verkföllin munu hafa mikil áhrif á fjölda vinnustaða um land allt, komi til þeirra. 42% félaga í SGS starfa á mat-
vælasviði en 32% eru í þjónustugreinum. Aðrir hópar eru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, iðnaði og farartækja- og
flutningsgreinum. Mynd/NordicPhotos/Getty
Það er
góður
hugur í
fólki og
það er
tilbúið
að fylgja
eftir þeim
kröfum
sem það
sjálft bjó
til.
Steinunn Birna Ragnarsdóttir var í
vikunni ráðin óperustjóri Íslensku
óperunnar og tekur til starfa
síðar í vor. Hún tekur við af Stefáni
Baldurssyni, sem gegnt hefur starf-
inu síðastliðin átta ár. Fimmtán
umsækjendur sóttu um stöðuna.
Steinunn Birna hefur starfað sem
tónlistarstjóri Hörpu síðustu fimm ár
en hún er menntaður píanóleikari.
Ráðning Steinunnar Birnu hefur
mælst misjafnlega fyrir og hafa
ýmsir framámenn í óperuheiminum
gagnrýnt að Steinunn hafi enga
reynslu af uppsetningu á óperum né
af leikhússtörfum.
Gröndalshús verður hér eftir að
Vesturgötu 5b.
reykjAVík Sögufrægt húS flutt Að VeSturgötu 5b
Gröndalshús aftur í miðborgina
Gröndalshús hefur verið flutt að
Vesturgötu 5b þar sem nýr grunn-
ur fyrir það var gerður. Gröndals-
hús var flutt frá Vesturgötu 16b
um miðjan janúar 2010 og var ytra
byrði þess endurgert. Tekið var
mið af upprunalegu útliti hússins
og byggingarstíl við endurgerð
þess. Reykjavíkurborg keypti hús-
ið til varðveislu vegna menningar-
sögulegs gildis þess. Minjavernd
annaðist framkvæmdir við nýjan
grunn og flutning hússins.
Gröndalshús á sér yfir 130 ára
sögu. Árið 1881 byggði Sigurður
Jónsson járnsmiður sér nýtt hús
úr timbri sem barst til Íslands
með gríðarstóru skipi sem rak
mannlaust um hafið og strandaði í
Höfnum. Sigurður bjó í húsinu og
hafði þar járnsmiðju sína til 1888
en þá eignaðist það Benedikt Grön-
dal og eftir það var húsið kennt við
hann. Húsið var oft kallað Púltið,
Skrínan eða Skattholið vegna hins
sérkennilega byggingarlags, en
það er tvílyft að framan og einlyft
að aftan. Benedikt breytti járn-
smiðjunni í stofu og bjó í húsinu til
dauðadags, árið 1907.
Steinunn Birna ráðin óperustjóri
6 fréttir Helgin 24.-26. apríl 2015