Fréttatíminn - 24.04.2015, Blaðsíða 12
Þ
Það var alvarlegur afleikur er laun stjórnar-
manna HB Granda voru hækkuð um 33,3% á
dögunum, rétt í þann mund er stefndi í alvar-
legustu verkfallahrinu hérlendis um langt
árabil. Skiptir þar engu þótt þær breytingar
hafi orðið á milli aðalfunda að fyrirtækið hafi
verið skráð á aðalmarkað Kauphallarinnar og
því reyni meira á stjórnarhætti þess en áður.
Hækkunin var taktlaus í undanfara erfiðra
samningaviðræðna á vinnumarkaði og hlaut
að skaða málf lutning Sam-
taka atvinnulífsins sem lagt
hafa mikla áherslu á hóflega
kjarasamninga sem byggi á
svigrúmi útflutnings- og sam-
keppnisgreina til launabreyt-
inga og styðji við almenna hag-
stjórn sem tryggi stöðugleika,
lága verðbólgu, hóflega vexti
og festu í gengi krónunnar.
Á þessu áttaði Rannveig Rist
sig, einn stjórnarmanna HB
Granda, en hún situr jafnframt
situr í stjórn Samtaka atvinnulífsins. Hún
ákvað að þiggja launahækkunina ekki og
sagði í tilkynningu sem hún sendi frá sér að
hækkunin væri úr takti við stöðu kjaramála.
Það var sannarlega rétt mat og aðrir stjórnar-
menn hjá HB Granda ættu að fara að fordæmi
Rannveigar. Það væri viðurkenning á röngu
stöðumati, mistökum.
Björgólfur Jóhannesson, formaður Sam-
taka atvinnulífsins, vék að þessu í ræðu sinni
á nýafstöðnum aðalfundi samtakanna. Þar
sagði hann meðal annars: „Ég hef áður hvatt
til þess að gætt sé hófs þegar laun stjórnenda
fyrirtækja og stjórna þeirra eru ákveðin.
Samtök atvinnulífsins hafa markað ákveðna
stefnu um launaþróun næstu misserin. Sú
stefna á að sjálfsögðu að ná til stjórnenda fyr-
irtækjanna og stjórna þeirra. Það er ekkert
svigrúm nú til að leiðrétta laun þessa hóps
frekar en annarra. Þar verða allir að sýna
ábyrgð.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis-
ráðherra talaði á sömu nótum. Hann sagði
tugprósenta hækkun stjórnarlauna vera kol-
ranga og senda óábyrg skilaboð inn í samfé-
lagið. „Við þurfum sameiginlega að byggja
upp þjóðfélag festu og stöðugleika og slíkar
hækkanir hjálpa ekki til við það.“
Stjórnarhækkunin hleypti illu blóði í launa-
menn og forystumenn launþegasamtakanna
enda mat forsætisráðherra rétt, hún gaf hún
kolröng skilaboð. Stöðunni á vinnumarkaði
nú hefur verið lýst sem grafalvarlegri og er
vart ofmælt. Fari allt á versta veg mun samfé-
lagið loga í verkföllum hvort heldur er meðal
opinberra starfsmanna eða fólks á almennum
vinnumarkaði – með ófyrirsjáanlegum afleið-
ingum en augljósu tapi allra. Það reynir því á
styrk þeirra sem að samningaborðinu koma,
að þeir rífi sig upp úr skotgröfunum líkt og
gert var í aðdraganda þjóðarsáttarsamning-
anna árið 1990.
Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi. Rétt er
að minnast þess er laun þáverandi forstjóra
Landspítalans voru árið 2012 hækkuð um
450 þúsund krónur á mánuði. Gjörningurinn
vakti hörð viðbrögð enda mjög úr takti við að-
hald þess tíma. Hækkunin var dregin til baka
en mistökin við ákvörðunina voru augljós. Af
hlaust skaði af svipuðum toga og nú vegna
ótímabærrar hækkunar stjórnarlauna hjá HB
Granda. Vera kann að hluta skýringarinnar á
kröfuhörku lækna og verkfalli þeirra í vetur
sé að leita til þessa upphafs en til þvingaðrar
niðurstöðu þeirra samninga er mjög horft nú,
í kröfugerð annarra.
Sjái aðrir stjórnarmenn HB Granda en
Rannveig Rist ekki að sér verða aðilar vinnu-
markaðarins engu að síður að leiða þau mis-
tök hjá sér, hefja sig upp yfir þann ótímabæra
gjörning enda er miklu meira undir, hags-
munir almennings, fyrirtækja og þjóðarbús-
ins sjálfs.
Allir málsaðilar búa yfir öflugum hag-
deildum og hagtölur liggja fyrir. Sérfræð-
ingar allra eiga því að vita hvar hægt sé að
mætast, hvert efnahagslegt svigrúm sé til
raunverulegra kjarabóta og að samið verði
innan þeirra marka og stuðlað með því að
aukinni hagsæld, stöðugleika, auknum kaup-
mætti og framförum. Ella hverfum við aftur
um áratugi og við tekur verðbólgutímabil
sem við þekkjum því miður allt of vel, víxl-
hækkanir kaupgjalds og verðlags, hækkun
skulda heimila og fyrirtækja, vaxtahækkun
og gengisfall krónunnar.
Það er dapurleg framtíðarsýn.
Afleikur í kjölfar rangs stöðumats
Það verða allir að sýna ábyrgð
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur
Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR • SÍMI 557 7720 • WWW.VIKURVERK.IS
O-Grill 3500 kr. 32.950
O-Grill 1000 kr. 27.950
Borðstandur kr. 9.595
Taska kr. 2.995
O-GRILL
niðurhal
einfalt
ótakmarkað
6.990
ljósleiðari ljósnet
vortex.is 525 2400
12 viðhorf Helgin 24.-26. apríl 2015