Fréttatíminn - 24.04.2015, Side 14
Frumkvöðlar á alþingi
Þetta var
mikið karla-
samfélag á
Alþingi.
RIGA Í LETTLANDI
FRÁBÆRT TILBOÐ TIL
14. -17. MAÍ Á SÍÐUSTU SÆTUNUM
Verð aðeins kr. 69.900.-
Innifalið: flug frá Keflavík og Akureyri, 4★ hótel á besta stað með
morgunmat, rúta frá flugvelli og íslenskur fararstjóri.
Riga er meira en 800 ár gömul borg eða frá árinu 1201. Þar blandast
saman miðaldarmiðbær og nútímaborg. Gamli borgarhlutinn með sinn
sjarma og hefðbundin nútímaborg í hraðri þróun. Hvort sem það er
menningin - söfn eða fallegar byggingar, listaviðburðir og verslanir með
allt það nýjasta á góðu verði - þá finnur þú það í Riga. Í Riga má finna eitt
mesta samsafn af Art Noveau eða Jugend byggingalist. Þá er næturlíf
Riga orðið þekkt fyrir að vera fjörugt og dregur til sín fjölda fólks víða að.
Konur
hasla
sér völl
á Alþingi
Salóme Þorkelsdóttir var fyrsti forseti Alþingis og einnig
fyrsta konan sem gegndi því embætti. Hún er á meðal 15
kvenna sem Jafnréttisstofa heiðraði fyrir brautryðjendastörf
á Alþingi Íslendinga í tilefni af 100 ára afmælis kosninga-
réttar kvenna. Salóme segir að vel hafi verið tekið á móti
sér á þingi, það hafi verið erfitt í fyrstu að taka við sem
forseti Alþingis en hún hafi að lokum öðlast traust allra
þingmanna. Hún fagnar því að konur hafi náð að hasla sér
völl innan íslenskra stjórnmála, þó hægt hafi gengið.
þ egar ég var fyrst kjörin á Alþingi var það gjörólíkt því sem það er í dag,“ segir
Salóme Þorkelsdóttir, fyrrverandi
þingmaður sem ennfremur var
fyrsta konan til að gegna embætti
forseta efri deildar Alþingis árið
1983 og fyrsta konan – raunar fyrsti
þingmaðurinn – til að gegna emb-
ættis forseta Alþingis árið 1991 þeg-
ar Alþingi var sameinað í eina mál-
stofu. Salóme var á meðal 15 kvenna
sem Jafnréttisstofa heiðraði á síð-
asta vetrardegi fyrir brautryðjenda-
störf á Alþingi Íslendinga.
Salóme er fædd 3. júlí 1927 og því
að verða 88 ára gömul. Hún starf-
aði sem húsmóðir, við skrifstofu-
störf og sem aðalgjaldkeri Mos-
fellshrepps áður en hún var kjörin
á þing árið 1979 sem þingmaður
Reyknesinga, fyrir hönd Sjálf-
stæðisflokksins, en hún sat á þingi
til ársins 1995. „Auk mín sátu þá á
þingi þær Guðrún Helgadóttir og
Jóhanna Sigurðardóttir þannig að
við vorum þrjár konurnar. Þetta var
mikið karlasamfélag á Alþingi,“ seg-
ir hún en Kvennalistinn bauð fram
fyrir kosningarnar 1983 og þá fjölg-
aði í kvennahópnum.
Fékk góðar viðtökur
Salóme segir að þegar hún settist
fyrst á Alþingi hafi hún sannarlega
verið blaut á bak við eyrun en mót-
tökurnar hafi verið afskaplega
góðar. „Ég fékk ljúfar viðtökur og
stuðning frá þingmönnum úr öllum
flokkum. Ég lenti í efri deild þar
sem þriðjungur þingmanna, eða
20 þingmenn, áttu sæti og ég var
eina konan. Þegar ég var að byrja
mitt annað kjörtímabil, árið 1983,
var ég farin að festa rætur og var þá
kosin forseti efri deildar. Mér fannst
mjög áhugavert að fá tækifæri til
að takast á við þetta hlutverk og ég
held að mér hafi tekist það sóma-
samlega. Á þessum tíma voru tvær
aðrar konur komnar í efri deild, þær
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir frá
Kvennalistanum og Kolbrún Jóns-
dóttir frá Bandalagi jafnaðarmanna.
Fyrirkomulagið á Alþingi var
þannig að því var skipt í efri og
neðri deild, og sameinað þing
beggja deilda kom saman tvisvar
í viku. Forseti sameinaðs þings var
Salome Þorkelsdóttir, fædd 1927
Fyrsta konan sem gegndi embætti
forseta efri deildar Alþingis 1983 og
forseta Alþingis 1991.
Ragnhildur Helgadóttir, fædd 1930
Fyrsta konan sem gegndi embætti for-
seta neðri deildar Alþingis 1961, mennta-
málaráðherra 1983 og heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra 1985.
Guðrún Helgadóttir, fædd 1935
Fyrsta konan sem gegndi embætti
forseta sameinaðs Alþingis 1988.
Rannveig Guðmundsdóttir, fædd
1940
Fyrsta konan sem gegndi embætti for-
manns þingflokks Alþýðuflokksins 1993,
Jafnaðarmanna 1996 og Samfylkingar-
innar 1999.
Guðrún Agnarsdóttir, fædd 1940
Fyrsta konan sem gegndi embætti
formanns þingflokks Samtaka um
kvennalista 1983.
Jóhanna Sigurðardóttir, fædd 1942
Fyrsta konan sem gegndi embætti for-
sætisráðherra 2009 og félagsmálaráð-
herra 1987.
Sigríður Anna Þórðardóttir, fædd
1946
Fyrsta konan sem gegndi embætti for-
manns þingflokks Sjálfstæðisflokksins
1998.
Valgerður Sverrisdóttir, fædd 1950
Fyrsta konan sem gegndi embætti
iðnaðar- og viðskiptaráðherra 1999,
utanríkisráðherra 2006 og formanns
þingflokks
Framsóknarflokksins 1995.
Svanfríður Jónasdóttir, fædd 1951
Fyrsta konan sem gegndi embætti for-
manns þingflokks Þjóðvaka 1995.
Margrét Frímannsdóttir, fædd 1954
Fyrsta konan sem gegndi embætti for-
manns þingflokks Alþýðubandalagsins
1988.
Oddný G. Harðardóttir, fædd 1957
Fyrsta konan sem gegndi embætti fjár-
málaráðherra 2011.
Siv Friðleifsdóttir, fædd 1962
Fyrsta konan sem gegndi embætti um-
hverfisráðherra 1999.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, fædd
1966
Fyrsta konan sem gegndi embætti innan-
ríkisráðherra 2013.
Birgitta Jónsdóttir, fædd 1967
Fyrsta konan sem gegndi embætti
formanns þingflokks Borgarahreyfingar-
innar, síðar Hreyfingarinnar 2009 og
Pírata 2013.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, fædd
1972
Fyrsta konan sem gegndi embætti for-
manns þingflokks Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs 2009.
Þær 15 konur sem Jafnréttisstofa heiðraði fyrir brautryðjendastörf á Alþingi Íslendinga, konur sem fyrstar hafa gegnt
ákveðnum embættum, svo sem ráðherrar og formenn þingflokka. Þær eru hér taldar upp í aldursröð.
Fyrsta konan á Alþingi 1922:
Ingibjörg H. Bjarnason, 1867–1941.
Fyrsta konan sem gegndi
embætti ráðherra 1970:
Auður Auðuns, 1911-1999, var
dóms- og kirkjumálaráðherra.
Ingibjargar og Auðar var sér-
staklega minnst við athöfnina.
Salóme Þorkelsdóttir
var fyrsta konan til að
gegna embætti forseta
Alþingis eftir að þingið
var sameinað í eina
málstofu árið 1991.
Mynd/Hari
14 úttekt Helgin 24.-26. apríl 2015