Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.04.2015, Side 16

Fréttatíminn - 24.04.2015, Side 16
Uppgjör við ofbeldið í ástinni É g byrjaði að skrifa þessa bók eftir að ég var rekinn. Mikael Torfason rak mig af 365 miðl- um eftir að hafa upphaflega ráðið mig sem blaðamann á DV átta árum áður. Það má því segja að hann sé ákveðinn örlagavaldur í mínu lífi en þessi uppsögn gaf mér ákveðið fjár- hagslegt svigrúm til að skrifa,“ segir Valur Grettisson sem var að senda frá sér sína fyrstu skáldsögu. „Hún heitir Gott fólk og segir frá hug- sjónamanninum Sölva, sem gengur í gegnum ábyrgðarferli eftir að fyrr- verandi ástkona sakar hann um að hafa beitt sig andlegu og kynferðis- legu ofbeldi. Sagan er sögð í fyrstu persónu frá upplifun Sölva af þessu athyglisverða ferli,“ segir Valur. Ófeiminn við húmorinn Til að útskýra í stuttu hvað þetta ábyrgðarferli er segir Valur að það megi kalla eins konar göturéttlæti hugsjónamanna en það miðar að því að því að meintur gerandi taki ábyrgð á brotum sínum án aðkomu dómstóla. „Þetta þykir valdeflandi fyrir þoland- ann og er í raun þolendamiðað rétt- læti,“ segir hann. Sumarið 2013 steig íslenskur karlmaður opinberlega fram í tengslum við þátttöku sína í slíku ábyrgðarferli og hófst nokkur fjölmiðlaumfjöllun um þessi mál. „Ég áttaði mig í fyrstu ekki almennilega á því hvað fólst í þessu ábyrgðarferli og fannst þetta vera heldur óljóst. Það vöknuðu hjá mér margar spurning- ar sem ég reyndi svo að fá svör við þegar ég skrifaði bókina,“ segir Valur en hugmyndin að því að nota þetta þema í skáldsögu kom þó ekki fyrr en nokkru síðar. „Þessari hugmynd laust bara nið- ur í mig jólin 2013 þegar ég og konan mín vorum að gera jólainnkaupin, nýbúin að eignast seinni son okkar,“ segir hann, en kona Vals er Hanna Ólafsdóttir sem einnig hefur getið sér gott orð sem blaðamaður. „Ég bar hugmyndina undir Hönnu sem leist strax vel á þetta og sagði reyndar að þetta hljómaði miklu betur en vitleys- an sem ég var þá að reyna að skrifa,“ segir hann kómískur. Og þrátt fyrir að undirtónn sögunnar sé alvarlegur er húmorinn aldrei fjarri. „Þetta er kómískt uppgjör Sölva við eigin hug- myndir og ekki síst ofbeldið í ástinni. Af því að Sölvi er frekar óforbetran- Valur Grettisson bar eldri son sinn til skírnar í Dómkirkjunni í aðdraganda íslensku Janúarbyltingarinnar með dauðvona föður sinn sér við hlið á meðan mótmælendur hrópuðu „van- hæf ríkisstjórn“ fyrir utan. Valur var að senda frá sér sína fyrstu skáldsögu en aðalpersónurnar kynnast í mótmælunum á Austurvelli. Sagan er sögð frá sjónarhorni Sölva, sem gengur í gegn um ábyrgðarferli eftir að fyrrverandi ástkona hans sakar hann um að hafa beitt sig andlegu og kynferðislegu ofbeldi. 16 viðtal Helgin 24.-26. apríl 2015 www.rekstrarland.is Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf. Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins Öflug fjáröflun fyrir hópinn PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 43 14 1 Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Rekstrarlandi í síma 515 1100 eða næsta útibú Olís og leitið tilboða.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.