Fréttatíminn - 24.04.2015, Page 16
Uppgjör við ofbeldið í ástinni
É g byrjaði að skrifa þessa bók eftir að ég var rekinn. Mikael Torfason rak mig af 365 miðl-
um eftir að hafa upphaflega ráðið
mig sem blaðamann á DV átta árum
áður. Það má því segja að hann sé
ákveðinn örlagavaldur í mínu lífi en
þessi uppsögn gaf mér ákveðið fjár-
hagslegt svigrúm til að skrifa,“ segir
Valur Grettisson sem var að senda
frá sér sína fyrstu skáldsögu. „Hún
heitir Gott fólk og segir frá hug-
sjónamanninum Sölva, sem gengur
í gegnum ábyrgðarferli eftir að fyrr-
verandi ástkona sakar hann um að
hafa beitt sig andlegu og kynferðis-
legu ofbeldi. Sagan er sögð í fyrstu
persónu frá upplifun Sölva af þessu
athyglisverða ferli,“ segir Valur.
Ófeiminn við húmorinn
Til að útskýra í stuttu hvað þetta
ábyrgðarferli er segir Valur að það
megi kalla eins konar göturéttlæti
hugsjónamanna en það miðar að því
að því að meintur gerandi taki ábyrgð
á brotum sínum án aðkomu dómstóla.
„Þetta þykir valdeflandi fyrir þoland-
ann og er í raun þolendamiðað rétt-
læti,“ segir hann. Sumarið 2013 steig
íslenskur karlmaður opinberlega
fram í tengslum við þátttöku sína í
slíku ábyrgðarferli og hófst nokkur
fjölmiðlaumfjöllun um þessi mál. „Ég
áttaði mig í fyrstu ekki almennilega
á því hvað fólst í þessu ábyrgðarferli
og fannst þetta vera heldur óljóst. Það
vöknuðu hjá mér margar spurning-
ar sem ég reyndi svo að fá svör við
þegar ég skrifaði bókina,“ segir Valur
en hugmyndin að því að nota þetta
þema í skáldsögu kom þó ekki fyrr
en nokkru síðar.
„Þessari hugmynd laust bara nið-
ur í mig jólin 2013 þegar ég og konan
mín vorum að gera jólainnkaupin,
nýbúin að eignast seinni son okkar,“
segir hann, en kona Vals er Hanna
Ólafsdóttir sem einnig hefur getið
sér gott orð sem blaðamaður. „Ég bar
hugmyndina undir Hönnu sem leist
strax vel á þetta og sagði reyndar að
þetta hljómaði miklu betur en vitleys-
an sem ég var þá að reyna að skrifa,“
segir hann kómískur. Og þrátt fyrir
að undirtónn sögunnar sé alvarlegur
er húmorinn aldrei fjarri. „Þetta er
kómískt uppgjör Sölva við eigin hug-
myndir og ekki síst ofbeldið í ástinni.
Af því að Sölvi er frekar óforbetran-
Valur Grettisson bar eldri son sinn til skírnar í Dómkirkjunni
í aðdraganda íslensku Janúarbyltingarinnar með dauðvona
föður sinn sér við hlið á meðan mótmælendur hrópuðu „van-
hæf ríkisstjórn“ fyrir utan. Valur var að senda frá sér sína
fyrstu skáldsögu en aðalpersónurnar kynnast í mótmælunum á
Austurvelli. Sagan er sögð frá sjónarhorni Sölva, sem gengur í
gegn um ábyrgðarferli eftir að fyrrverandi ástkona hans sakar
hann um að hafa beitt sig andlegu og kynferðislegu ofbeldi.
16 viðtal Helgin 24.-26. apríl 2015
www.rekstrarland.is Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.
Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins
Öflug fjáröflun
fyrir hópinn
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
43
14
1
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Rekstrarlandi
í síma 515 1100 eða næsta útibú Olís og leitið tilboða.