Fréttatíminn - 24.04.2015, Side 20
Margir halda
að ég hljóti að
vera að nota lyf
því það sé ekki
mögulegt að
ná svo góðum
árangri á svo
stuttum tíma.
En það er ekki
eins og ég sé að
snerta stöng í
fyrsta skiptið.
Byrjaði fertug í kraftlyftingum
Helga Guðmundsdóttir hefur náð ótrúlegum árangri í
kraftlyftingum á skömmum tíma. Hún vann bikarmót og setti
Íslandsmet eftir aðeins 3 mánaða þjálfun, þá nýorðin fertug, er
á leið á Evrópumeistarmótið með landsliðinu og stefnir á heims-
meistarmótið í haust. Hún lætur hvorki aldur né kjaftasögur
stöðva sig og nýtur þess að vera stöðugt að bæta sig.
É g var búin að æfa crossfit í fimm ár þegar ég datt niður á kraftlyftingar,“ segir Helga
Guðmundsdóttir, landsliðskona í
kraftlyftingum. „Ég lenti á spjalli
við konu í kraftlyftingum í afmæli
sem fór að segja mér frá íþróttinni
og hvað hún væri að lyfta þungu.
Hún hafði bæði keppt á Íslands-
meistaramótinu og Norðurlanda-
mótinu en ég komst semsagt að því
þarna að hún var að lyfta töluvert
minni þyngdum en ég var að gera
í crossfittinu. Og ég hugsaði um
leið að ég gæti auðveldlega keppt
í þessu líka,“ segir Helga og hlær.
Setti Íslandsmet á fyrsta
mótinu sínu
Og það gerði Helga svo sannarlega.
Hún dreif sig í kraftlyftingar, er
komin í landsliðið og vinnur hvern
Máttur vatnsins
Þórir Sigurbjörnsson allar um vatn og mikilvægi
þess. Atli Viðar Thorstensen, verkefnastjóri hjá
Rauða krossinum, segir frá verkefni félagsins í
Malaví. Íbúar Malaví hafa mjög takmarkaðan aðgang
að hreinu vatni en Rauði krossinn hefur nú þegar
borað sjö borholur í Mangochi-héraði, sem hafa
gjörbrey aðstæðum fyrir ölda fólks.
Fimmtudaginn 30. apríl verður fyrirlestur í
húsi Rauða krossins í Efstaleiti 9, kl. 8.30-9.30.
2 x 13 cm
Allir velkomnir
Skráning á raudikrossinn.is HV
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
5–
08
98
titilinn á eftir öðrum. „Þegar ég byrjaði
að æfa vissi ég ekkert hvert ég ætti að
snúa mér. Ég þekkti einn mann sem
hafði unnið sem dómari í kraftlyftingum
og hann benti mér á að tala bara beint
við Grétar Hrafnsson landsliðsþjálfara.
Grétar hafði oft fengið svona símtöl og
var ekkert svakalega spenntur en bauð
mér samt að koma á æfingu. Hann lét
mig prófa allar greinarnar, hnébeygju,
bekkpressu og réttstöðulyftu. Hann varð
bara eins og krakki á jólunum, hann var
svo spenntur,“ segir Helga hlæjandi. Að-
eins þremur mánuðum síðar, þá nýorðin
fertug, keppti Helga á sínu fyrsta bikar-
móti. Hún sigraði á mótinu, auk þess að
setja þar Íslandsmet í bekkpressu fyrir
40 ára og eldri.
Lætur aldurinn ekki stöðva sig
Helga segir það ekki hafa komið nein-
um á óvart hvað hún hellti sér af mikl-
um krafti út í kraftlyftingarnar. Hún
hafi aldrei látið neinn eða neitt stoppa
sig, hvorki aldur né barneignir, en Helga
býr ein með börnunum sínum þremur
í Hafnarfirði, þar sem hún hefur rekið
Crossfit-stöð síðastliðin fimm ár. „Mér
líður ekkert eins og ég sé orðin fertug,
mér finnst ég alltaf verið 25 ára,“ segir
Helga. „En svo er ég auðvitað með góðan
grunn fyrir kraftlyftingar. Ég hef verið
að æfa og kenna crossfit síðastliðin fimm
ár og ég hef alltaf verið mikil keppnis-
manneskja.
Ég prófaði allskonar íþróttir sem ung-
lingur og var í mörg ár í fimleikum en
þurfti að hætta vegna meiðsla. Fór svo
að æfa hlaup af kappi upp úr þrítugu og
tók þátt í nokkrum maraþonum. Ég hef
líka alltaf verið mjög sterk, alveg frá því
ég var lítil stelpa, ég held það hljóti bara
að vera í genunum. Það var alltaf verið
að skora á mig í sjómann því ég var svo
sterk og ég vann oftast alla, líka stóru
strákana,“ segir Helga og hlær.
Mikið um kjaftasögur
Nú er Helga á leið til Þýskalands þar sem
hún mun keppa á Evrópumeistarmótinu.
„Þar stefni ég á að ná einhverjum metum
í opnum flokki en svo er Íslandsmeist-
aramótið nokkrum vikum síðar og þá
hef ég líka tækifæri til að vinna einhver
met,“ segir Helga sem hefur núna æft
kraftlyftingar í sjö mánuði. Svo stutt að
kjaftastögurnar voru fljótar að kvisast
um bæinn. „Það eru margir „skeptískir“
á velgengni mína og það hefur breiðst út
mikill orðrómur um það að ég hljóti bara
að vera að svindla. Margir halda að ég
hljóti að vera að nota lyf því það sé ekki
mögulegt að ná svo góðum árangri á svo
stuttum tíma. En það er ekki eins og ég
sé að snerta stöng í fyrsta skiptið,“ segir
Helga. „Það er búið að lyfjaprófa mig og
ég er að sjálfsögðu í lagi. Ég held að áður
fyrr hafi verið mikið um steranotkun í
kraftlyftingum en ekki lengur, það er
bara of mikið í húfi. Ef þú ert lyfjaprófað-
ur og fellur þá ferðu í keppnisbann í allt
að þrjú ár auk þess að fá sektir. Ég get
ekki ímyndað mér að neinn vilji taka þá
áhættu,“ segir þessi mikla keppnismann-
eskja sem lætur kjaftasögurnar ekki á
sig fá. Hún ætlar að halda ótrauð áfram
og njóta sigranna.
Ætlar á HM
„Ég var að koma af æfingu þar sem ég
bætti mig í hnébeygju og hoppaði þá hæð
mína. Ég veit ekki hvað það er sem er
svona skemmtilegt við þetta, það fylgir
því bara svo ótrúlega góð tilfinning að
bæta sig. Nú er ég komin í landsliðið og
það fylgir því meiri pressa. Maður getur
ekki verið þar nema með því að vera stöð-
ugt að bæta sig. Ég væri ekkert á leið á
EM hefði ég ekki náð þessum árangri á
bikarmótinu í nóvember. Næsta mark-
mið er að komast á HM í haust og ég set
allan minn kraft í það.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Helga á Íslandsmetið í
opnum flokki í þyngdar-
flokki -63kg.
Hnébeygja 160 kg.
Bekkur 112,5 kg.
Réttstöðulyfta 170 kg.
Markmið hennar á EM:
Hnébeygja 175 kg.
Bekkur 120 kg.
Réttstöðulyfta 182,5 kg.
Helga Guðmunds-
dóttir, landsliðskona
í kraftlyftingum,
setti sitt fyrsta
Íslandsmet eftir að
hafa æft kraftlyft-
ingar í þrjá mánuði.
Hún segist þó hafa
góðan grunn því
áður æfði hún
crossfit í fimm ár.
Ljósmynd/Hari
20 viðtal Helgin 24.-26. apríl 2015