Fréttatíminn - 24.04.2015, Side 31
Bílasmiðurinn hfBarnabílstólar í úrvali
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík - Sími: 567 2330 - www.bilasmidurinn.is
DAGSKRÁ:
12:30 Opnunarávarp
Þórarinn Sólmundarson, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneytinu
12:40 From Science to Praxis – Opportunities and Challenges
Dr. Peter Moll, Senior Science Policy Adviser, Science Development
13:20 Þverfaglegar rannsóknir í íslensku vísindasamfélagi
Kynningar og umræður
l Kristín Svavarsdóttir, vistfræðingur hjá Landgræðslu ríkisins
l Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri
l Unnur Anna Valdimarsdóttir, próf. við HÍ og forstöðumaður Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum
l Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands
Umræðustjóri: Kristín Svavarsdóttir, Landgræðslu ríkisins
Fundarstjóri: Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís
MÁNUDAGINN 27. APRÍL KL. 12:30-14:30
Á GRAND HÓTEL REYKJAVÍK
Á Rannsóknaþingi 2015 verður fjallað um þverfaglegar rannsóknir. Undanfarin ár hefur samstarf
milli fræðasviða aukist mikið og áhersla er lögð á þverfaglega nálgun og samstarf í vísindum og
nýsköpun. Á þinginu verður leitast við að bregða ljósi á þessa þróun, fjalla um reynslu, áskoranir
og tækifæri á þessu sviði og fá fram umræður um stöðu þverfaglegra rannsókna.
Þingið er öllum opið og þátttaka ókeypis. Skráning á heimasíðu Rannís.
Athugið að húsið opnar kl. 12:00 með léttum hádegisverði fyrir gesti.
RANNSÓKNAÞING 2015
ÞVERFAGLEGAR RANNSÓKNIR
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
É g verð að viðurkenna að ég vissi ekkert um SsangYoung áður en ég fékk lyklana í
hendurnar. Nafnið á þessu kóreska
bílafyrirtæki, SsangYoung, er
hvorki þjált né hljómþýtt í vestræn-
um eyrum og manni dettur helst í
hug að framleiðendurnir hafi aldrei
ætlað út fyrir asískan markað. En
eftir smá flakk á veraldarvefnum
komst ég reyndar að því að fyrir
1987 bar fyrirtækið hið
skemmtilega nafn
Dong-A Motor og við hlið
þess hljómar SsangYoung
bara mjög alþjóðlega.
En burt séð frá nafn-
inu, þá var ég alls ekki
viss um, þar sem bíllinn
stóð, glænýr, glansandi og
glæsilegur á bílaplaninu,
hvort ég hefði yfir höfuð
séð SsangYoung Korando
áður. Það er dáldið þannig
með bíla í dag að þeir eru
allir frekar keimlíkir, sér-
staklega jepplingar.
En einmitt þess vegna
kom það mér skemmti-
lega á óvart að setjast
undir stýri. Korando-inn
er bara engum líkur að
innan.
Með öllum þeim eiginleikum
sem bílar bjóða upp á í dag verður
mælaborðið og stýrið oft eitt rugl-
andi takka-kaos, til þess gert að
einfalda keyrsluna og jafnvel líka
lífið. En á milli þess sem maður
hækkar í útvarpinu á stýrinu á
fullri ferð, talar í símann í gegnum
skjáinn og lætur gps-tækið vísa
sér veginn í nýju hverfi, hugsa ég
stundum að kannski bara flæki
þetta frekar lífið og jafnvel bara
tilveruna líka, sérstaklega þegar
krakkahópur með lekandi ís í aftur-
sætinu bætist við upplifunina. En í
Korando-inum er þetta einstaklega
vel af hendi leyst. Mæla-
borðið og allt innra rýmið
er einfalt, vel úthugsað,
stílhreint og þægilegt í
notkun. Bíllinn er í heild-
ina allur mjög einfaldur
og þægilegur í notkun,
fjölskyldubíll sem kemst
allar trissur. Það er gott
að keyra hann og þó hann
sé kannski ekki sá kraft-
mesti í bænum þá býður
hann upp á gott rými, fjór-
hjóladrif og ýmis þægindi
á góðu verði.
Ég fékk að vera á bíln-
um í nokkra daga og verð
að viðurkenna að ég skil-
aði lyklunum með trega,
svo vel var mér farið að
líka við hann. Meira að
segja nafnið var farið að
hljóma eins og músík í eyrum allrar
fjölskyldunnar.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
ReynsluakstuR ssangyoung koRando
Býður eiginmanninum
með í Berlínarferðina
Bílabúð Benna hefur staðið fyrir
reynsluakstursleiknum „Með Opel
til Þýskalands“ undanfarnar vikur.
Helgarferð fyrir tvo til Þýskalands,
með flugi og gistingu á fjögurra
stjörnu hóteli, var í boði og komst
fólk í vinningspottinn með því að
mæta í Opelsalinn í Tangarhöfða
eða í Reykjanesbæ og reynsluaka
Opel. Einnig var hægt að stimpla
sig í leikinn á sýningum Opel
í Kringlunni. Ríflega sex þús-
und manns freistuðu gæfunnar.
Dregið var úr pottinum og kom
nafn Selmu Birnu Úlfarsdóttur
upp. Selma Birna ætlar að bjóða
manninum sínum, Halldóri Emil
Sigtryggssyni, með sér. Þau völdu
að fara til Berlínar og eiga, að því
er fram kemur í tilkynningu Bíla-
búðar Benna, spennandi upplifun
í vændum.
SsangYoung Korando er bíll sem kemur á óvart. Þægilegur, fjórhjóladrifinn og rúmgóður fjöl-
skyldubíl á góðu verði. Svo er bara svo gaman að segja nafnið hans.
ssangyoung
koRando
Kostir
5 ára ábyrgð
Fjórhjóladrif (AWD)
með læsingu
Leðurstýri með
þægilegri útvarps-
stýringu
Bluetooth tenging
við farsíma
Hiti í stýri
Gallar
Ekki mjög stórt
farangursrými
Verð frá:
4.890.000 kr.
Það er gott að keyra Korandoinn og þó hann sé kannski ekki sá kraftmesti í bænum
þá býður hann upp á gott rými, fjórhjóladrif og ýmis þægindi á góðu verði. Mynd Hari
Bíll sem kemur á óvart
Helgin 24.-26. apríl 2015 bílar 31