Fréttatíminn - 24.04.2015, Side 40
Helgin 24.-26. apríl 201540 tíska
Tíska sumarTískan fær innblásTur frá áTTunda áraTugnum
Hippaleg tíska í sumar
Sumartískan í ár ber mörg
einkenni þess sem var í tísku
á áttunda áratugnum, eða
„the seventies“ eins og þeir
segja hjá stóru tískuhúsunum.
Þetta þýðir að hippatískan er
komin aftur, fullt af kögri og
túnikkur. Eva Dögg Sigurgeirs-
dóttir, ritstjóri tíska.is, fylgist
náið með tískustraumum og
fræðir lesendur Fréttatímans
um það sem þykir allra flott-
ast fyrir sumarið.
s umartískan er að mínu mati ótrúlega flott og skemmti-leg,“ segir Eva Dögg Sigur-
geirsdóttir, ritstjóri og stofnandi
www.tiska.is sem leiðir lesendur
Fréttatímans í allan sannleik um
hvað er í tísku fyrir sumarið. „70’s
hippatíska er áberandi og það þýðir
að buxur eru að víkka sem sagt út-
víðar buxur sjáanlegar, buxnapils,
fullt af kögri nú svo er rúskinnið að
koma sterkt inn, stuttbuxur, skó-
síð pils og kjólar og gallabuxur og
gallafatnaður í allri sinni mynd,“
segir Eva.
Hún bendir á að túnikkur séu
fastur hluti af 70´s tískunni en
þær þurfi ekki endilega að
vera hippalegar heldur geti
líka verið af fínni gerðinni.
„Túnikkur henta okkur ís-
lenskum konum vel því þær
eru í fyrsta lagi fallegar, nú
svo eru þær ætlaðir yfir
buxur þegar veðrið býð-
ur ekki upp á bera leggi.
Skyrtur og skyrtukjólar
eru einnig áberandi auk
þess sem pólobolir eða
kragar sjást líka.“
„Það er gaman að
segja frá því að loksins
eru sundbolirnir orðnir
vinsælli en bíkiníin og
ég tek því fagnandi því
ég er ekki talsmaður ör-
smárra bíkiní-a og elska
fallegan sundbol,“ seg-
ir Eva. Hún bendir á að
skótískan í sumar sé líka
sérlega flott. „Í raun má
segja að þar sé skemmti-
legast að sjá skó með tréhæl
eða klossalega skó nú svo
eru auðvitað þykkbotna skór
sem fylgja 70’s tískunni og
hellingur af sandölum. Hæl-
arnir eru þykkir og í raun er
támjótt farið að sjást víða en
það einhvern veginn gengur
allt í þeim efnum, bæði rúnnað
og támjótt.“ Henni finnst líka
gaman að fylgjast með fylgi-
hlutatískunni því oft vilji kon-
ur ekki detta algjörlega inn í
ákveðið „trend“ heldur dugi
oft að fá sér flottan fylgihlut. „Það
er gaman að sjá hvað töskur eru
orðnar áberandi og skrautlegar. Það
gildir ekki lengur þetta gamla góða
að taskan verði að vera í sama lit og
skórnir. Alls ekki,“ segir hún.
Í mestu uppáhaldi hjá Evu í vor-
tískunni eru síðir jakkar eða þunnir
frakkar og síðar kápur sem ganga
jafnt innandyra sem utandyra. „Ég
elska þetta „trend“,“ segir hún.
Kögrið er, sem fyrr segir, áber-
andi og hefur í raun verið það
síðan í fyrra en núna er það út
um allt og tengist bæði 70’s
tískunni nú og svo er það sett
á kápur, kjóla, boli, skyrtur,
kímonóa og fleira.
Eva bendir á að hatt-
ar hafi verið áberandi
í vetur og verði það
áfram. „Mér f innst
gaman að sjá stelpur
sem þora að ganga um
með f lotta hatta. Ís-
lenskar stelpur þora að
klæða sig og eru áber-
andi flott klæddar, að
mínu mati. Ég hef enn
ekki fundið rétta hatt-
inn sem klæðir mig en
ég gefst ekki upp fyrr
en hann er fundinn,“
segir hún. „Auðvitað
gildir að eiga klass-
ískan fatnað, það þarf ekki
að taka það fram, en það er
gaman að krydda þetta klass-
íska með nýjum „trendum“ á
hverju tímabili,“ segir Eva.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
S. 551-2070 & 551-3366 • www.misty.is
Laugavegi 178 • OPIÐ: Mán. - fös. 10 - 18, Laugardaga 10 - 14
GLEÐILEGT SUMAR ! Nýkomið! Nýkomið!Sumar-sandallar úr leðri í úrvali,
mjúkir og þægilegir.
stærðir: 36 - 42.
Verð: 11.885.-
Teg RAPTURE : fæst í
stærðum 32-38
D,DD,E,F,FF,G,GG
á kr. 9.985,-
buxur við á kr. 4.850,-
Póstsendum hvert á land sem er
Fyrirsætan Alessandra Ambrosio náðist
á mynd í litríkri blússu við gallabuxur
og hún var að sjálfsögðu með rúskinn-
stösku skreytta kögri. NordicPhotos/Getty
Leikkonan Kate Bosworth tollir í
tískunni í útvíðum gallasmekkbuxum.
NordicPhotos/Getty
Tískan á Coachella-tónlistarhátíðinni
gefur tóninn fyrir sumarið. Þessi
unga dama er með hlutina á hreinu í
gallastuttbuxum, með áberandi tösku,
íburðarmikinn hatt, í klossalegum skóm
og hippalegum topp. NordicPhotos/Getty
Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, ritstjóri
tíska.is, fylgist náið með tískustraumum
og segir að hippaleg tíska verði áber-
andi í sumar. Ljósmynd/Björg Vigfúsdóttir
Sundbolir eru að ná meiri
vinsældum en bikiní og þessi
sundbolur sem sást á tískupöllum
Salinas ætti að henta vel, hvort sem
er á ströndina eða í Vesturbæjarlaug.
NordicPhotos/Getty
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Við bjóðum
gott verð allt
árið.
Kjóll kr 3000
Tökum upp nýjar vörur daglega
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga k
l. 11–18
Opið laugardaga
kl. 11-16
50% afsláttur
af vel valinni vöru
Nýtt kortatímabil
Toppur
Mussa
Blússa
Gallajakki
Skokkur
Kjóll
Buxur
Buxur
4.750 kr.
4.450 kr.
6.950 kr.
4.450 kr.
5.450kr.
7.950 kr.
6.450 kr.
3.450 kr.
9.500 kr.
8.900 kr.
13.900 kr.
8.900 kr.
10.900 kr.
15.900 kr.
12.900 kr.
6.900 kr.
Verð áður:Verð nú: