Fréttatíminn - 24.04.2015, Síða 50
Leikhús Peggy Pickitt frumsýnt
Dramatík í Borgarleikhúsinu
Leikritið Peggy Pickitt sér andlit
guðs var frumsýnt í Borgarleik-
húsinu á miðvikudaginn. Í leikrit-
inu, sem leikstýrt er af Vigni Rafn
Valþórssyni, segir frá tveimur
læknapörum sem útskrifuðust úr
læknanámi saman og hittast á ný
sex árum eftir útskrift. Þau voru
bestu vinir og gerðu allt saman.
En svo skildu leiðir. Lísa og Frank
fengu góðar stöður á hátækni-
spítalanum hér heima og lifa góðu
lífi: eiga stóra íbúð, fínan bíl og
litla dóttur. Katrín og Marteinn
fóru aftur á móti til Afríku til
starfa sem læknar án landamæra.
Þau eiga ekkert. Nú eru þau loks
komin heim og það kallar á endur-
fundi.
Roland Schimmelpfennig er
þekktasta samtímaleikskáld Þjóð-
verja. Leikrit hans hafa verið sýnd
um allan heim og einkennast af
óvæntri sýn á mannfólkið. Eitt af
megin einkennum leikrita hans er
hvernig hann vinnur með tímann
og endurtekninguna og reynir
þannig skemmtilega á þanþol leik-
hússins. Peggy Pickit sér andlit
Guðs er hluti þríleiks um Afríku
sem saminn var fyrir Vulcano-leik-
húsið í Toronto í Kanada árið 2010
og tileinkaður flóknu sambandi
álfunnar og hins vestræna heims.
Með hlutverkin í sýningunni fara
þau Hjörtur Jóhann Jónsson, Krist-
ín Þóra Haraldsdóttir, Maríanna
Clara Lúthersdóttir og Valur Freyr
Einarsson. -hf
Kristín Þóra
Haraldsdóttir
í hlutverki
sínu.
Dísella kemur fram á hádegistónleikum í Hörpu á þriðjudag.
hádegistónLeikar díseLLa Lárusdóttir í hörPu
Ást í öllum litum er yfirskrift hádegistónleika Dísellu Lárusdóttur hjá Íslensku óperunni, þriðju-
daginn 28. apríl klukkan 12.15, í Norðurljósum í Hörpu. Dísella hefur starfað við Metropolitan-
óperuna í New York undanfarin ár en er stödd hér á landi þar sem henni fæddist drengur í mars
síðastliðnum og hún ætlar að vera hér heima þangað til í haust, þegar hún snýr aftur til starfa
við Metropolitan óperuna.
d ísella Lárusdóttir hefur starfað í New York undanfarin ár en seg-ist alltaf vera með annan fótinn
á Íslandi. „Það eru margir sem halda að
ég sé aldrei hér heima, en ég kem hingað
reglulega,“ segir Dísella. „Ég á ennþá
mína íbúð hér og finnst gott að koma
heim. Ég eignaðist mitt annað barn 15.
mars síðastliðinn og er aðeins að slaka á
og taka smá frí,“ segir hún.
Dísella og systur hennar, þær Þórunn
og Ingibjörg Lárusdætur, munu verða
með skemmtidagskrá í Hörpu í sumar.
„Við höfum alltaf verið að troða upp og
sprella eitthvað saman og ákváðum að
setja saman svona tónlistarprógram
með ættfræðiívafi,“ segir hún. „Við erum
svo heppnar að það eru margir í okkar
ætt sem hafa verið í tónlist og okkur
langaði að búa til smá skemmtidagskrá í
kringum það.“
Á tónleikunum á þriðjudag verður
Dísella þó á klassískum nótum og segir
hún dagskrána vera blöndu af aríum
frá nokkrum höfundum. „Ég mun flytja
valdar aríur og sönglög sem eru mér
kær, aríur úr óperum eftir W. A. Mozart,
Giuseppe Verdi og Igor Stravinsky, auk
þriggja söngljóða eftir Maurice Ravel,“
segir Dísella. „Þetta er tónleikaröð
sem er búin að vera í gangi í vetur og á
að gefa gestum smá nasasjón af óperu-
tónlist á stuttum tónleikum í hádeginu,“
segir hún. Hún er því að æfa á milli þess
sem hún sinnir nýfæddum syninum.
„Hann er svo rólegur og sefur bara í
gegnum öskrin hjá mér,“ segir Dísella
sem fer aftur til New York í haust. „Ég er
ráðin þar næsta vetur eins og undanfarin
ár og í sumar er ég að æfa titilhlutverkið
í Lulu eftir Alban Berg, sem er krefjandi
og skemmtilegt. Svo er James Levine
stjórnandi og það verður mjög spennandi
að sjá hann í návígi,“ segir Dísella Lárus-
dóttir.
Tónleikar Dísellu verða í Silfurbergi
í Hörpu á þriðjudag og hefjast klukkan
12.15. Píanóleikari er Antonía Hevesi og
er aðgangur að tónleikunum ókeypis.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Drengurinn sefur
yfir öskrunum í mér
James Le
vine stjórn
andi og
það verður
mjög
spennandi
að sjá hann
í návígi.
Fuss púði
13.990.-
17.500.-
Finnsdottir krukka
14.900.-
Bjóðum brúðhjónum upp á að gera
brúðargjafalista.
Brúðhjónin fá 10% inneign í
versluninni af heildarúttekt listans og
fallega gjöf frá okkur.
Brúðargestir geta svo sent okkur e-mail
og gengið frá pöntun á netinu og fengið
sent til sín eða sótt í búðina.
Einfaldara getur það ekki verið!
Síðumúla 21
S: 537-5101
snuran.is
50 menning Helgin 24.-26. apríl 2015