Fréttatíminn - 24.04.2015, Page 54
Úr verkinu Útlenski drengurinn þar sem Dóri DNA fer með eitthvað aðalhlutverk-
anna.
LeikList sviðsListahátíð fyrir aLLa
Ó keypis leik- og danssýning-ar fyrir alla fjölskylduna verða á boðstólum á þriðju
sviðslistahátíð ASSITEJ á Íslandi,
sem farið hefur fram í vikunni og
lýkur á morgun, laugardag.
Dans- og leiksýningar af ýmsum
toga fyrir börn, unglinga og alla
hina. Vinnusmiðjur og fjöldinn allur
af skemmtilegum viðburðum.
Sýningarstaðirnir verða þrír
að þessu sinni. Tjarnarbíó, Iðnó,
Dansverkstæðið og Þjóðleikhús-
ið verða öll með fjölbreytta dag-
skrá alla helgina. Allir viðburðir
hátíðarinnar eru ókeypis. Miða er
hægt að nálgast klukkutíma fyrir
sýningu á hverjum sýningarstað.
Skólasmiðjur og skólasýningar eru
þó ekki opnar almenningi. Meðal
þeirra sýninga sem verða á há-
tíðinni eru Lífið-drullumall, Stór-
skemmtilegt drullumall á mörk-
um leikhúss og myndlistar. Lífið
fjallar um sköpunarkraft, vináttu
og hringrás lífsins, þar sem unnið
er með mold. Dansleikhópurinn
Cie Divergences frá Frakklandi
flytur söguna af Rauðhettu og úlf-
inum á einstakan og frumlegan
hátt, og Útlenski drengurinn sem
sýndur hefur verið við góðan orð-
stír í Tjarnarbíó í vetur.
Hátíðin er styrkt af mennta- og
menningarmálaráðuneyti, Barna-
menningarhátíð, Barnamenning-
arsjóði og Reykjavíkurborg. Sam-
starfsaðilar eru Þjóðleikhúsið,
Alliance Francaise, Listkennslu-
deild LHÍ og House of Spirits.
Allar nánari upplýsingar má finna
á síðunni www.assitej.is -hf
Sýnt á fjórum
stöðum
Prump í Gerðubergi
Möguleikhúsið sýnir barnaleikrit-
ið Prumpuhólinn í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi næstkomandi
sunnudag, 26. apríl, klukkan 14.
Prumpuhóllinn, sem er í leikstjórn
Péturs Eggerz, segir frá Huldu sem
er nýflutt úr borginni og upp í sveit.
Þegar hún fer í feluleik með Halla
bróður sínum vill ekki betur til en
svo að hún villist og ratar ekki heim.
Henni líst ekkert á þetta umhverfi
þar sem allt er framandi; lyktin er
náttúrufýla, grasið stingur og það
eru pöddur út um allt. Við sérkenni-
legan hól, sem gefur frá sér dular-
full hljóð, hittir hún Steina. Hann
er kátur tröllastrákur í skrítnum
fötum sem segir Huldu að hóllinn
sé í raun pabbi sinn. Hann hafi lent í
sólargeisla og orðið að steini eftir að
hafa borðað rosalega mikinn hunda-
súrugraut. En hundasúrugrautur-
inn varð ekki að steini. Ónei, hann
ólgar enn svo drynur í hólnum. Og
fýlan – maður lifandi!
Leikarar í sýningunni eru þau
Pétur Eggerz og Anna Brynja Bald-
ursdóttir. Leikmynd og búninga
hannaði Messíana Tómasdóttir.
Tónlistin er eftir Guðna Franzson.
Sýningin er ætluð áhorfendum á
aldrinum 2ja til 10 ára og er aðeins
um þessa einu sýningu að ræða. -hf
Anna Brynja og Pétur í hlutverkum
sínum í Prumpuhólnum.
Helgin 24.-26. apríl 2015
ÓKEYPIS AÐGANGUR
GARÐABÆJAR 23.-26. apríl 2015
Sjá dagskrá á www.gardabaer.is
www.gardabaer.is
FRIÐRIK KARLSSON
WORLD JAZZ TRIO
BILLIE HOLIDAY
100 ÁRA!
KVARTETT KATRINE MADSEN TRÍÓ ARONS OG INGIBJÖRG FRÍÐA
Fim 23. apr. kl. 20:30 Kirkjuhvoli Vídalínskirkju
Fös 24. apr. kl. 20:30
Kirkjuhvoli Vídalínskirkju
STÓRSVEIT TÓNLISTARSKÓLA GARÐABÆJAR OG STRENGJASVEIT
Sun 26. apr. kl. 15:00 Kirkjuhvoli Vídalínskirkju
Lau 25. apr. kl. 17:00 Haukshúsi ÁlftanesiLau 25. apr. kl. 14:00 Jónshúsi, Strikinu 6
Lau 25. apr. kl. 20:30 Kirkjuhvoli Vídalínskirkju
TRÍÓ SIGURÐAR FLOSASONAR SPILAR BILLIE HOLIDAY
Gestir: Jóhanna Vigdís Arnardótir og Jón Svavar Jósefsson
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Rekstrarvörur
– fyrir þig og þinn vinnustað
Flott hönnun
– frískt og glaðlegt útlit
Verið velk
omin í ve
rslun RV
og sjáið ú
rvalið af
glæsilegu
m
hágæða p
ostulínsbo
rðbúnaði.