Fréttatíminn - 24.04.2015, Qupperneq 56
Í takt við tÍmann alda dÍs arnardóttir
Facebook stærsti tímaþjófur lífs míns
Alda Dís Arnardóttir er 22 ára söngkona sem sigraði í hæfileikakeppninni Ísland Got Talent á
Stöð 2 á dögunum. Alda Dís er frá Hellissandi og vinnur á leikskóla meðfram söngnámi. Hún
elskar bleik föt og horfir á Jane the Virgin.
Staðalbúnaður
Mér finnst rosa erfitt að lýsa fata-
stílnum mínum, ég hef bara minn
stíl. Ég get þó sagt það að ég geng
mikið í kjólum og finnst gaman að
vera fín. Ég vinn náttúrlega á leik-
skóla og nýti því hvert tækifæri
eftir vinnu til að klæða mig aðeins
upp. Uppáhalds búðin mín er
Einvera og ég versla líka mikið í
Vero Moda, Gallerí 17 og Zöru.
Ég elska bleikan lit og bleik föt.
Ég á rosa mikið af bleiku dóti. Og
blómadóti.
Hugbúnaður
Þegar ég er ekki að vinna eða
syngja hitti ég vinkonur mínar og
kærastann, maður verður að gefa
sér tíma fyrir hann. Við vinkon-
urnar reynum að vera duglegar
að gera eitthvað skemmtilegt
eins og að fara í bíó, á tónleika
eða í leikhús. Svo er líka ágætt að
liggja bara uppi í rúmi og horfa á
mynd. Uppáhaldsþættirnir mínir
akkúrat núna eru Jane the Virgin.
Þeir eru mjög fyndnir. Ég hef líka
verið að horfa á Newsroom og
svo eru Friends alltaf klassískir,
maður dettur alveg stundum í þá.
Ég á kort í World Class en ég er
eiginlega bara styrktaraðili þar
og mæti aldrei. Þegar ég fer á
kaffihús fer ég oftast í Eymunds-
son eða einhverjar bókabúðir.
Mér finnst það voða kósí.
Vélbúnaður
Ég er með eldgamla tölvu en
mjög nýjan iPhone 6. Facebook
er stærsti tímaþjófur lífs míns.
Ég verð aðeins að taka mig á í
því. Annars dett ég stundum inn
á skemmtilegan leik eða app en
ég verð að viðurkenna að þau eru
ekki mörg.
Aukabúnaður
Mér finnst skammarlegt að játa
það en ég er ekki góður kokkur.
En ég geri þó mitt besta. Ég er
hins vegar mjög dugleg að fara
eitthvert annað til að borða. Gló
er alltaf voða gott og sömuleiðis
Serrano og Saffran. Maður reynir
kannski að hafa þetta aðeins í
hollari kantinum. Þegar maður
er ekki í ræktinni verður maður
víst aðeins að pæla í þessu. Ég
ferðast um á silfruðum Yaris sem
mér finnst mjög leiðinlegt að
keyra. Mér finnst reyndar yfir
höfuð leiðinlegt að keyra bíla.
Áhugamál mín tengjast öll
tónlist. Auk þess að syngja
hef ég gaman af að semja
tónlist og svo er ég líka
að æfa mig við að spila á
gítar. Ég ætla hundrað prósent að
vinna við tónlist í framtíðinni. Í
sumar ætla ég að fara heim á
Hellissand í einhvern tíma og
svo ætla ég að fara til útlanda
í ágúst. Við erum ekki búin
að kaupa miðana en við
stefnum á að fara til Los
Angeles.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
tónleikar Íkorni á rósenberg
Nýja platan
mun heita 12.34
t ónlistarmaðurinn Stefán Örn Gunnlaugsson, sem kennir sig við Íkorna, held-
ur tónleika á Rósenberg þriðju-
dagskvöldið 28. apríl. Íkorni gaf
út samnefnda plötu árið 2013 sem
vakti mikla athygli og var tilnefnd
til íslensku tónlistarverðlaunanna
það ár, bæði fyrir texta og upptöku-
stjórn. Síðan hefur Stefán unnið
með mörgum af þekktustu tón-
listarmönnum landsins á milli þess
sem hann hefur verið að semja nýtt
efni sem væntanlegt er seinna á
þessu ári. „Ég er að vinna að nýrri
plötu sem kemur út síðar á árinu,“
segir Stefán. „Er langt kominn með
að semja hana, og er byrjaður að
taka upp. Nafnið er komið,“ segir
hann, en platan mun heita 12.34.
„Þetta er tímasetning sem er mjög
algeng og umtöluð hjá þeim hópi
fólks sem hugsar mikið um klukk-
una og tímann,“ segir Stefán. „Ég á
þó mjög persónulega sögu um þenn-
an titil sem ég held bara fyrir mig.“
Íkorni mun koma fram ásamt
strengjakvartett og lítilli hljómsveit
og verða þau níu á sviðinu. „Þessi
hugmynd kom upp í kringum Airwa-
ves þegar ég æfði með þessum hópi.
Þá fannst okkur eins og við þyrftum
að gera þetta aftur því það tókst svo
vel,“ segir Stefán. „Lögin henta mjög
þessari tegund hljóðfæra og þess
vegna verður maður að gera þetta
oftar en einu sinni,“ segir Stefán Örn
Gunnlaugsson, Íkorni.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21
og mun Kristín Birna Óðinsdóttir
hita upp áður en Íkorni stígur á
svið. -hfKæling ehf | Stapahrauni 6 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 7918
Ert þú karl/kona í krapinu?
Kæling leitar að 2 starfsmönnum, öðrum í sumar-
afleysingar og hinum til frambúðar.
Kælimaður/Vélstjóri
Starfssvið:
- Reglubundið eftirlit kælikerfa
- Uppsetning á kælikerfum
- Viðhald og þjónusta
- Nýsmíði
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun á sviði kælitækni og/eða
vélstjórnar/járnsmíði/rafvirkjunar
- Reynsla af vinnu við kælibúnað æskileg
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
ATH: Við hvetjum laghenta og/eða reynslumikla
til að sækja um, jafnvel þótt þá skorti menntun.
Kæling sérhæfir sig í sölu, uppsetningu og
þjónustu á kælikerfum, auk þess að smíða
kælikerfi og ískrapavélar.
Um Kælingu:
Umsóknir og fyrirspurnir sendist á info@cooling.is.
56 dægurmál Helgin 24.-26. apríl 2015