Fréttatíminn - 24.04.2015, Side 61
Viðhald húsa
Helgin 24.-26. apríl 2015
bls. 4
www.steypustodin.is
Hafðu samband og láttu sérfræðinga okkar
aðstoða þig við að finna réttu lausnina.
Hringhellu 2
221 Hafnarfjörður
Hrísmýri 8
800 Selfoss
Smiðjuvegi
870 Vík
Malarhöfða 10
110 Reykjavík
Berghólabraut 9
230 Reykjanesbær
20
YFIR
TEGUND
IR
AF HELLU
M
Graníthellur og
mynstursteypa
Graníthellur hafa mun lengri endingartíma en venju legar hellur.
Þær henta vel fyrir bílaplön, torg, stíga, þrep, litlar hleðslur og
garða. Mynstursteypa er sniðug lausn í plön, stíga og verandir.
Gæði, fegurð og góð þjónusta
4 400 400
Fjárfesting sem steinliggur
vv
Mikilvægt
að lesa í
gömul hús
B irgir Þröstur Jóhannsson og Astrid Lelarge keyptu húsið við Vesturgötu í desember
2012 og hafa gert það upp með nokkr-
um hléum. „Það er samt nóg eftir,
það mætti eiginlega segja að kakan
sé í ofninum,“ segir Birgir. Húsið
var byggt árið 1882 og vegna aldurs
er það friðað, samkvæmt lögum um
menningarminjar. „Stefán Þórðarson
keypti lóðina og sótti um byggingar-
leyfi. Húsið var svo flutt inn frá Nor-
egi, eins og tíðkaðist á þessum tíma,
og hlóð Stefán upp kjallarann og skor-
steininn og reisti svo húsið og gekk
frá því að innan,“ segir Birgir, en hann
hefur safnað að sér ýmsum gögnum
um sögu hússins og fyrri eigendur
þess. „Stefán var titlaður sem múrari
um tíma og getur vel verið að hann
hafi verið að vinna við Alþingishúsið
sem var reist um svipað leyti.“
Húsið er skráð sem tómthús, en
orðið var notað um hús án húsdýra
þar sem yfirleitt bjuggu sjómenn sem
kallaðir voru tómthúsmenn, en mikið
var um þá í Vesturbænum á þessum
tíma. Húsið er þó ekki tómt í dag því
bæði köttur og gullfiskur eru hluti
af heimilishaldinu sem getur orðið
ansi fjörugt. Það var einnig líf og fjör
í húsinu á upphafsárum þess en þar
bjuggu mest 26 manns, en þær upp-
lýsingar hefur Birgir úr gömlu mann-
tali. Í upphafi var húsið 98 fermetrar,
auk kjallara, en í kringum 1920 var
byggt við húsið og er það nú 118 fer-
metrar, auk kjallara. Upprunalega
klæðningin utan á húsinu þekur því
einn vegginn inni í húsinu í dag.
Hjónin Birgir Þröstur Jóhanns-
son og Astrid Lelarge búa í 133
ára gömlu húsi við Vesturgötu í
Reykjavík, ásamt sonum sínum
tveimur. Um leið og gengið er
inn í húsið finnst að það á sér
langa og merkilega sögu. Það
marrar í gólfinu, en Birgir og
Astrid rifu upp hvert gólfefnið á
fætur öðru til að finna hið upp-
runalega. Þau segja að mikil-
vægt sé að lesa í gömul hús,
eins og þeirra, og sjá hverju sé
hægt að breyta án þess þó að
valda skemmdum.
Framhald á blaðsíðu 4.