Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.04.2015, Síða 61

Fréttatíminn - 24.04.2015, Síða 61
Viðhald húsa Helgin 24.-26. apríl 2015  bls. 4 www.steypustodin.is Hafðu samband og láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við að finna réttu lausnina. Hringhellu 2 221 Hafnarfjörður Hrísmýri 8 800 Selfoss Smiðjuvegi 870 Vík Malarhöfða 10 110 Reykjavík Berghólabraut 9 230 Reykjanesbær 20 YFIR TEGUND IR AF HELLU M Graníthellur og mynstursteypa Graníthellur hafa mun lengri endingartíma en venju legar hellur. Þær henta vel fyrir bílaplön, torg, stíga, þrep, litlar hleðslur og garða. Mynstursteypa er sniðug lausn í plön, stíga og verandir. Gæði, fegurð og góð þjónusta 4 400 400 Fjárfesting sem steinliggur vv Mikilvægt að lesa í gömul hús B irgir Þröstur Jóhannsson og Astrid Lelarge keyptu húsið við Vesturgötu í desember 2012 og hafa gert það upp með nokkr- um hléum. „Það er samt nóg eftir, það mætti eiginlega segja að kakan sé í ofninum,“ segir Birgir. Húsið var byggt árið 1882 og vegna aldurs er það friðað, samkvæmt lögum um menningarminjar. „Stefán Þórðarson keypti lóðina og sótti um byggingar- leyfi. Húsið var svo flutt inn frá Nor- egi, eins og tíðkaðist á þessum tíma, og hlóð Stefán upp kjallarann og skor- steininn og reisti svo húsið og gekk frá því að innan,“ segir Birgir, en hann hefur safnað að sér ýmsum gögnum um sögu hússins og fyrri eigendur þess. „Stefán var titlaður sem múrari um tíma og getur vel verið að hann hafi verið að vinna við Alþingishúsið sem var reist um svipað leyti.“ Húsið er skráð sem tómthús, en orðið var notað um hús án húsdýra þar sem yfirleitt bjuggu sjómenn sem kallaðir voru tómthúsmenn, en mikið var um þá í Vesturbænum á þessum tíma. Húsið er þó ekki tómt í dag því bæði köttur og gullfiskur eru hluti af heimilishaldinu sem getur orðið ansi fjörugt. Það var einnig líf og fjör í húsinu á upphafsárum þess en þar bjuggu mest 26 manns, en þær upp- lýsingar hefur Birgir úr gömlu mann- tali. Í upphafi var húsið 98 fermetrar, auk kjallara, en í kringum 1920 var byggt við húsið og er það nú 118 fer- metrar, auk kjallara. Upprunalega klæðningin utan á húsinu þekur því einn vegginn inni í húsinu í dag. Hjónin Birgir Þröstur Jóhanns- son og Astrid Lelarge búa í 133 ára gömlu húsi við Vesturgötu í Reykjavík, ásamt sonum sínum tveimur. Um leið og gengið er inn í húsið finnst að það á sér langa og merkilega sögu. Það marrar í gólfinu, en Birgir og Astrid rifu upp hvert gólfefnið á fætur öðru til að finna hið upp- runalega. Þau segja að mikil- vægt sé að lesa í gömul hús, eins og þeirra, og sjá hverju sé hægt að breyta án þess þó að valda skemmdum. Framhald á blaðsíðu 4.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.