Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.04.2015, Side 62

Fréttatíminn - 24.04.2015, Side 62
viðhald húsa Helgin 24.-26. apríl 20152 Húseigendafélagið Húseigendafélagið er til húsa að Síðumúla 29 í Reykjavík. Sími: 588-9567. Netfang: postur@huseigend- afelagid.is. n Á skrifstofunni eru veittar nánari upplýsingar um félagið, starfsemi þess og þjónustu. Þar fást marg- vísleg gögn og upplýsingar, s.s. lög og reglugerðir, eyðublöð fyrir húsaleigusamninga og fræðsluefni af ýmsu tagi. n Heimasíða: www.huseigend- afelagid.is Heimasíða félagsins er ný og endurbætt og hefur að geyma margvíslegar upplýsingar um Húseigendafélagið, starfsemi þess og viðfangsefni. Þar er m.a. yfirlit yfir fjölda greina sem lögfræðingar félagsins hafa ritað og félagsmenn geta fengi endurgjaldslaust. n Þjónusta við félagsmenn: Þjónusta félagsins er einskorðuð við félagsmenn enda standa þeir undir starfsemi þess með félags- gjöldum sínum. Félagið stendur á eigin fótum fjárhagslega og þiggur enga styrki. Félagsgjöldum er mjög í hóf stillt. Árgjald einstaklings er kr. 5.000.- en kr. 3.000.- fyrir hvern eignarhluta þegar um húsfélög er að ræða. Skráningargjald kr. 4.900.- er greitt er við inngöngu og felst í því viðtalstími við lögfræðing. Ný þurrhreinsunaraðferð teppa sem hentar vel á teppi á skrifstofum og hótelum ásamt verslunarrýmum. Fljótleg hreinsun með litlum hávaða, stuttum þurrktíma og ótrúlegum árangri. Kleppsvegi 150 S: 663-0553 www.skufur.is Hreinsum einnig: • Húsgögn og rúmdýnur • Mottur • Steinteppi • Stigahús Átt þú gamalt hús sem þarf að gera við - hvar á að byrja? HÚSVERNDARSTOFA Ókeypis ráðgjöf í Árbæjarsafni miðvikudaga kl. 15 - 17 og á sama tíma í síma 411 6333. Fræðslustofa um viðhald og viðgerðir eldri húsa. SANYL ÞAKRENNUR • RYÐGA EKKI • PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN • STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR • AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU • ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR Öflug hags- munagæsla fyrir hús- eigendur H úseigendafélagið var stofn-að árið 1923 og er almennt hagsmunafélag fasteigna- eigenda á Íslandi, hvort sem fast- eignin er íbúð, einbýlishús, at- vinnuhúsnæði, land eða jörð, leiguhúsnæði eða til eigin nota. Félagar eru bæði einstaklingar, fyrirtæki og félög, þ.m.t. húsfélög í fjöleignarhúsum. Upphaflega var félagið fyrst og fremst hagsmuna- vörður leigusala og stöndugra fasteignaeigenda í Reykjavík en í tímans rás hefur það orðið almennt landsfélag, meira í ætt við neytenda- samtök og obbi félagsmanna eru íbúðareigendur í fjöleignarhúsum. Félagsmenn eru um 10.000 og þar af eru nálægt 800 húsfélög. Félags- mönnum hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu árin, einkum og sér í lagi húsfélögunum. Þríþætt starfsemi „Starfsemi Húseigendafélagsins er þríþætt og felst í almennri hags- munagæslu fyrir fasteignaeigend- ur, almennri fræðslustarfsemi og upplýsingamiðlun, sem og ráðgjöf og þjónustu við félagsmenn,“ segir Harpa Helgadóttir, en hún starfar sem skrifstofustjóri hjá Húseig- endafélaginu. Meðal þjónustu sem félagið býður upp á er húsfunda- þjónusta. „Það hefur verið að færast í vöxt að húsfélög gangi í Húseig- endafélagið, einkum til að fá lög- fræðilega ráðgjöf og aðstoð, bæði í innri og ytri málefnum,“ segir Harpa. Húsfundaþjónusta félags- ins felur í sér aðstoð og ráðgjöf við undirbúning funda, þ.e. dagskrá, tillögur, fundaboð og fundarstjórn og ritun fundargerða. „Á húsfund- um eru gjarnan teknar ákvarðanir sem varða mikla fjárhagslega hags- muni og miklar skuldbindingar. Þessi þjónusta á að tryggja lögmæta fundi og að rétt sé að töku ákvarð- ana staðið en á því er oft misbrest- ur með afdrifaríkum afleiðingum,“ segir Harpa. Húseigendafélagið býður einnig upp á húsaleiguþjón- ustu. „Útleiga húsnæðis getur verið áhættusöm fyrir leigusala ef ekki er farið að með gát. Við aðstoðum til dæmis við samningsgerð,“ segir Harpa. Lögfræðiþjónusta Húseigendafélagið rekur sérhæfða lögfræðiþjónustu fyrir félags- menn sína á þeim réttarsviðum, sem varða fasteignir og eigendur þeirra. „Málin eru af mörgum og fjölbreyttum toga en algengust eru mál vegna f jöleignarhúsa, húsaleigu, fasteignakaupa og grenndar,“ segir Bryndís Héðins- dóttir, lögfræðingur hjá Húseig- endafélaginu. Lögfræðiþjónustan hefur jafnframt verið þungamiðj- an í starfsemi félagsins síðustu áratugi. Bryndís segir mest fara fyrir almennri hagsmunabaráttu félagsins, sem felst meðal annars í að stuðla að réttarbótum fyrir fast- eignaeigendur. „Okkur hefur orð- ið verulega ágengt í þeim efnum, öllum húseigendum til hags og heilla.“ Sem dæmi má nefna fjöl- eignarhúsalögin og húsaleigulögin og löggjöf um fasteignakaup. Fleiri félagsmenn – Öflugra félag og aukin þjónusta Starfsemi Húseigendafélagsins hefur undanfarin ár verið grósku- mikil, öflug og árangursrík. „Þótt félagið hafi verið í mikilli sókn og náð verulegum árangri á mörgum sviðum, þá má gera betur enda eru viðfangsefnin óþrjótandi,“ segir Harpa. Að hennar sögn eru mörg spennandi mál og hagsbætur fyrir Bryndís Héðinsdóttir starfar sem lögfræðingur hjá Húseigendafélaginu, en félagið rekur sérhæfða lögfræðiþjónustu fyrir félagsmenn sína á þeim réttarsviðum, sem varða fasteignir og eigendur þeirra. félagsmenn sem bíða þess að fé- lagið hafi afl og styrk til að vinna að framgangi þeirra. „Það er þó og mun alltaf verða forsenda fyrir öflugra og árangursríkara starfi að fleiri fasteignaeigendur skipi sér undir merki félagsins.“ Bryndís Guðjónsdóttir þjónustufulltrúi og Harpa Helgadóttir, skrifstofustjóri hjá Húseigendafélaginu.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.