Fréttatíminn - 24.04.2015, Qupperneq 68
viðhald húsa Helgin 24.-26. apríl 20158
Síðumúla 1 | 108 Reykjavík | Sími 517-6300 | www.verksyn.is
Viðhald fasteigna
– okkar sérgrein
• Ástandsskýrslur
• Útboðsgögn
• Teikningar / hönnun
• Verksamningar
• Umsjón og eftirlit
• Verkefnastjórnun
Verksýn ehf. er ráðgjafarfyrirtæki sem sérhær sig í viðhaldi og endurnýjun
fasteigna. Fyrirtækið hefur sinnt ölda verkefna fyrir einstaklinga, fyrirtæki og
húsfélög. Hjá Verksýn starfa sérfræðingar með áratuga reynslu af
mannvirkjagerð og viðhaldi fasteigna.
Egill Birgisson sér um rekstur Birgisson ehf. ásamt föður sínum. Hér handleikur
Egill harðparketplanka sem er 2,78 metrar á lengd og 24 sentimetrar á breidd.
„Parketplankar af þessari stærð eru nýjung hér á landi. Á þeim er auk þess sérstök
rispuvörn og 35 ára ábyrgð.“ Mynd/Hari.
Harðparket
nýtur
síaukinna
vinsælda
Birgir Þórarinsson hefur yfir 30 ára reynslu þegar kemur að
innflutningi ýmissa gólfefna, hurða og flísa. Á grundvelli þess-
arar reynslu hefur Birgir ásamt Agli, syni sínum, byggt upp
rekstur Birgisson ehf. með góðum stuðningi erlendra sam-
starfsaðila til fjölda ára og með úrvals starfsfólki sem hefur
góða vöruþekkingu, reynslu og framúrskarandi þjónustulund.
B irgisson ehf. býður upp á fjölbreytt úrval af parketi og segja feðgarnir að vanda
þurfir valið á parketi. Einnig skal
huga að rakainnihaldi viðarins.
„Áður en hafist er handa við lögn
á parketi þarf að athuga rakastig
gólfsins. Hafa skal í huga hvenær
lagt var í gólfið og hvaða ílagnarefni
var notað. Þegar fullvíst er að gólfið
sé þurrt má leggja parketið. Raka-
stig gólfsins má ekki vera hærra en
2%.“
Þrenns konar parket í boði
Þeir sem eru í parkethugleiðingum
eiga oft erfitt með að gera greinar-
mun á milli mismunandi tegunda.
Almennt má flokka parket í þrjá
flokka og hér fara þeir feðgar yfir
hverjir þessir flokkar eru:
„Gegnheilt stafaparket er límt í
stöfum eða plönkum á gólfið. Eftir
að parketið hefur verið límt á gólfið
þarf það að fá að standa í að minnsta
kosti tíu daga, áður en hafist er handa
við að slípa og meðhöndla það. Eftir
að slípun er lokið kemur að vali á yf-
irborðsmeðhöndlun: Á að lita, lakka
eða olíubera? Allt fer þetta eftir
smekk viðskiptavinarins. Gegnheilt
parket er yfirleitt 10-22 mm að þykkt
og er fáanlegt í fjölda viðartegunda
sem hægt er að leggja í ótal mynstr-
um.“ Verð: Frá 5.000-20.000 kr. á fer-
metra.
„Hefðbundið þriggja laga parket
er spónlagt 13-20 mm að þykkt með
2,5- 6 mm harðviðaryfirborði. Al-
geng borðastærð á Kährs parketi er
15x200x2400 mm eða 15x187x2400
mm (þykkt x breidd x lengd). Kährs
parketið kemur tilbúið til lagnar og
er örugglega með bestu viðarlæsing-
una á markaðnum. Hægt er að velja
úr fjölda viðartegunda og yfirborðsá-
ferða, til dæmis burstað og matt-
lakkað, burstað og olíuborið, heflað
og mattlakkað, litað og olíuborið. Þitt
er valið. Í dag er plankaparketið vin-
sælast.“ Verð á Kährs parketinu er frá
3.750-15.000 kr. á fermetra.
„Harðparket er tiltölulega nýtt á
markaðnum og gæði þess hafa verið
að aukast mikið síðastliðin ár. Harð-
parketið var oft kallað plastparket
hér áður fyrr, en það er villandi, því
yfir 90% af hráefninu er endurunn-
in viður. Aðal uppistaðan í harðpar-
ketinu er rakaheld HDF plata, það
er harðpressuð MDF plata með ótrú-
lega sterkri yfirborðshúð úr melam-
ine. Harðparketið er fáanlegt í 6-12
mm þykkt og í nokkrum alþjóðlegum
styrktarfokkum; AC3, AC4 og AC5.
Við hjá Birgisson flytjum aðeins inn
bestu flokkanna, AC4 og AC5, það er
að segja 8-12 mm þykkt.“ Verð: Frá
1.690 til 4.490 kr. á fermetra.
Harðparketið vinsælast
Harðparketið hefur notið aukinna
vinsælda upp á síðkastið og segir
Birgir ástæðuna tengjast því hversu
höggþolið og rispuþolið það er, auk
hagstæðs verðs. Í glæsilegum sýn-
ingarsal verslunarinnar að Ármúla
8 er hægt að skoða fjölbreytt úrval
af parketi, flísum og hurðum, allt
vörur frá þekktum og virtum fram-
leiðendum. „Við mælum með að fólk
kynni sér alla bæklinga og heim-
sæki heimasíðu okkar, www.birgis-
son.is, áður en hafist er handa við
að velja parket. Flýtið ykkur hægt,
farið eftir leiðbeiningum og þá
gengur allt vel,“ segir Birgir.
Unnið í samstarfi við
Birgisson ehf.