Frjáls verslun - 01.01.2005, Blaðsíða 35
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 5 35
Guðjón Arngrímsson, Flugleiðum:
Mikill styrkur
„Það fylgir stóru fyrirtæki sem sinnir mikilvægu hlutverki í
samfélaginu, líkt og Icelandair gerir, að fólki stendur ekki á
sama um það sem við gerum,“ segir Guðjón Arngrímsson,
upplýsingafulltrúi Icelandair. „Í þessu felst mikill styrkur.
Við erum því gjarnan á þessum listum yfir vinsæl og óvinsæl
fyrirtæki, og viljum auðvitað heldur vera ofarlega á listanum
yfir þau vinsælu. Við eigum allt undir því að bjóða viðskipta-
vinum okkar góða vöru og þjónustu og það er mjög ánægju-
legt að sjá árangur af því endurspeglast í þessari könnun.“
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. „Fólki stendur
ekki á sama um það sem við gerum.“
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans: „Það er
ánægjulegt hvaða velvild bankinn á meðal þjóðarinnar.“
Sigurjón Þ. Árnason, Landsbankanum:
Ánægjuleg velvild
„Þessar niðurstöður eru mjög ánægjulegar og endurspegla þá góðu hluti
sem hafa verið að gerast hér í bankanum á síðustu misserum,“ segir
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbanka Íslands, þriðja vinsælasta
fyrirtækis landsins. Hann segir, aðspurður um skýringar þessa, að
afkoma bankans sé góð og hluthafar séu að fá ágætar arðgreiðslur. Góð
afkoma haldist jafnframt í hendur við að viðskiptavinir fái góða þjónustu.
„Landsbankinn hefur jafnframt lagt áherslu á að vera virkur þátt-
takandi í þjóðlífinu með því að styrkja verkefni á sviði menningar og
íþrótta. Við erum til að mynda stærstu styrktaraðilar Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands og Íslensku óperunnar. Þá leggum við okkar af mörkum
til íþrótta, til dæmis í gegnum Landsbankadeildina í knattspyrnu. Það er
ánægjulegt að skynja hvaða velvild bankinn á meðal þjóðarinnar, eins og
þessi könnun Frjálsrar verslunar sýnir glöggt. Það eru þessar þrjár megin-
ástæður hér að framan sem ég tel skýra þá velvild sem bankinn á, þó að
ég treysti mér ekki til að segja til um hver þeirra vegur þyngst.“