Frjáls verslun - 01.01.2005, Page 115
RÁÐSTEFNUR OG FUNDIR
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 5 115
Ljósritunarvélar í mörgum gerðum Penninn
býður fjölbreytt úrval af tölvum og tækja-
búnaði hvers konar og er í fremstu röð á því
sviði. Við funda- og ráðstefnuhald skapast
oft þörf fyrir afritun gagna eða kynningar-
efnis með stuttum fyrirvara og þá er gott
hafa tölvutengda ljósritunarvél með frá-
gangsbúnaði.
„Við bjóðum fullkomnar vélar frá Kyocera,
sem eru tölvutengjanlegar. Þær má nota sem
stafræna prentara, skanna og fax - fyrir svo
utan ljósritunina sjálfa. Kyocera ljósritunar-
vélar eru hagkvæmar í rekstri og fáanlegar í
fjölmörgum gerðum, með afkastagetu frá 15
í 150 eintök á mínútu,“ segir Ari.
Með því að tengja vélarnar við tölvur má
senda gögn beint til prentunar. Láta frágangs-
búnaðinn um að raða og hefta blöðin saman
með einu hefti í hornið eða jafnvel búa til
bækling með því að brjóta þau í miðju og
hefta saman. Fyrirtækjaþjónusta Pennans
veitir frekar upplýsingar um lausnir á þessu
sviði í síma 540 2050.
Ritsmiðjan fyrir ráðstefnuna Í verslun
Pennans að Hallarmúla 2 er mikið úrval af
öllum daglegum rekstrarvörum sem þarf
fyrir skrifstofur. Einnig fyrir fundi- og ráð-
stefnur; svo sem ráðstefnumöppur, pennar
í úrvali og fleira. Hægt er að sérmerkja
flestar vörur fyrir fyrirtæki.
Sérstök ástæða er til að nefna ritsmiðju
Pennans, en þar fæst afgreidd með litlum
fyrirvara smáprentun svo sem á nafn-
spjöldum og slíku, ljósritun í lit eða svart/
hvítu, hönnun á útsendiefni, skönnun, inn-
binding og fleira. Nokkuð sem er ómissandi
þegar halda skal fund eða ráðstefnu. Þetta
nýtur vinsælda og er að festa sig æ betur í
sessi, segja þeir Kjartan og Ari, og hafa þá
ekki nefnt nema lítið eitt af þeirri fjölbreyttu
þjónustu sem fyrirtækið veitir.
Glæsilegt fundarherbergi í KB-banka með húsgögnum frá Pennanum.
Miklu skiptir að fundaaðstaða í fyrir-
tækjum sé góð, enda stuðlar slíkt að
árangursríkari vinnu en ella.