Frjáls verslun - 01.01.2005, Blaðsíða 46
46 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 5
Subaru Outback er glæsileg lúxusbifrei› sem sameinar
kosti jeppa og fólksbíls. Mikil veghæ›, fullkomi›
fjórhjóladrif, ríkulegur sta›albúna›ur, gott r‡mi og
grí›arlegt afl gerir aksturinn a› eftirsóknarver›ri upplifun.
Subaru Outback er fáanlegur me› 2,5 lítra og 3,0 lítra
245 hestafla vél sem er hreint út sagt alveg meiriháttar.
Subaru aldrifi› er sannkalla› listaverk – lárétt Boxer
vél og fullkomin fjórhjóladrifstækni tryggja hámarks
rásfestu og veggrip á öllum hjólum. Hér ræ›ur jafnvægi›
ríkjum og tryggir afl og aksturseiginleika sem eiga sér
fáar hli›stæ›ur í hva›a ver›flokki sem er.
aðsetur starfsmanna ræðst af því hvar borið
er niður við kaup á fyrirtækjum erlendis.
Hlutur erlendra eigenda fyrirtækisins er
í dag liðlega 40%. Stærstir eru sænski fjár-
festingasjóðurinn Industrivarden og danski
fjárfestingasjóðurinn William Demant Inv-
est, en stærstur íslenskra aðila er Össur
Kristinsson, stofnandi fyrirtækisins, sem er
annar stærsti hluthafi fyrirtækisins og situr
í stjórn þess.
Stöðugt meira framleitt hérlendis „Þróunin
hefur hins vegar verið sú að stöðugt meira
af framleiðslunni er hérlendis, sérstaklega
sú framleiðsla sem skilar miklu af sér, enda
eru skattar lægri hér en víða annars staðar, “
segir Jón. „Almennt vita viðskiptavinir okkar
ekki að fyrirtækið er íslenskt, enda erum við
ekki að halda því á lofti því ég veit ekki hvort
það er okkur til framdráttar eða skiptir máli
við framleiðslu á þessari vöru. Þetta er bara
Össur sem er alþjóðlegt fyrirtæki, en nafnið
er alþekkt í þessum iðnaði þar sem við erum
leiðandi tæknilega séð.“
Um áframhaldandi útrás Össurar segir
Jón: „Við erum í spennandi samstarfi í
þróunarverkefnum og erum alltaf opnir
fyrir kaupum á fyrirtækjum, enda er mark-
aður okkar nánast eingöngu erlendis. Á
síðustu árum höfum við náð algjörri forystu
á þessum markaði og er það í samræmi við
áform stjórnenda fyrirtækisins. Það var og
er okkur nauðsynlegt að vera í ráðandi stöðu
á markaðnum. Við þurfum að vera meðal
þeirra stærstu, þó ekki endilega sá stærsti,
nema ef við værum á mjög þröngu sviði,
en góðir þar. Allt annað ferli verður þá svo
miklu auðveldara. Eins er með spelknafram-
leiðsluna, við þurfum að vera stærri þar, og
stefnum að því.“
Starfsmannastefna Össurar:
Heiðarleiki, hagsýni
og hugrekki
Jón Sigurðsson hélt öflugan hvatningarfund með starfsmönnum
sínum í Salnum í Kópavogi. Þar var farið yfir gildin þrjú sem Össur
hefur í starfsmannamálum.
Þ
egar blaðamaður tók viðtalið við Jón Sigurðsson, forstjóra Össurar, hittist
þannig á að hann hélt síðar um daginn fund með starfsmönnum þess í Reykja-
vík. Þetta var eins konar hvatningarfundur þar sem farið var yfir gildi og
markmið fyrirtækisins. Fundurinn var haldinn í Salnum í Kópavogi og þangað fóru
starfsmennirnir saman í rútum. Það varð úr að blaðamaður Frjálsrar verslunar brá
sér á fundinn.
Össur leggur ríka áhersla á að laða til starfa hæft starfsfólk sem er tilbúið að
leggja sig fram og sýnir frumkvæði. Á Íslandi starfa um 230 af 630 starfsmönnum
fyrirtækisins. Í Bandaríkjunum starfar svipaður fjöldi, en samtals um 180 manns í
Hollandi, Svíþjóð og Kanada.
Samkvæmt vinnustaðagreiningu hjá Össuri, sem framkvæmd var á sl. ári, er
ríkjandi mikil starfsánægja hjá Össuri. Meðaleinkunn fullyrðingarinnar „Á heildina
litið er ég ánægður í starfi mínu hjá Össuri“ var 4,41, en hæsta mögulega einkunn
er 5,0.
Á fundinum í Salnum í Kópavogi lagði Jón Sigurðsson forstjóri áherslu á að gildin
væru í heiðri höfð, og ef starfsmaður teldi sig ekki geta lagað sig og sitt starf að þeim
yrði viðkomandi að finna sér annan starfsvettvang. Það væri í raun auðvelt þar sem
starfsfélagar þrýstu á um að gildin væru í heiðri höfð.
Þessi gildi eru heiðarleiki, hagsýni og hugrekki.
Heiðarleikinn felst m.a. í því að halda sig við staðreyndir; standa við gefin loforð,
viðurkenna mistök og ekki ljúga sig út úr þeim; deila þekkingu og skoðunum; „stela“
ekki verðmætum frá öðrum, hvort sem um er að ræða tíma, efni, orku eða annað.
Ekki síst að samþykkja alltaf bestu rökin, óháð stöðu starfsmanna.
Hagsýni starfsmanna felst m.a. í því að nota aðföng skynsamlega án þess að
vera nískur; skipuleggja atburði og verkefni; deila ábyrgð til viðeigandi aðila; bæta
öll ferli eins og frekast er unnt; mynda ekki flöskuhálsa; tala við það fólk sem veit
svörin við málinu, sem ekki er alltaf yfirmaðurinn!; og fara með fjármuni fyrir-
tækisins eins og sína eigin.
Hugrekki starfsmanna felst m.a. í því að leggja kapp á stöðugar framfarir og vera
opinn fyrir breytingum og koma með nýjar hugmyndir; bjóða óskrifuðum reglum
byrginn og taka áhættu en einnig taka ábyrgð á eigin gerðum.
Að lokum lagði forstjórinn áherslu á að starfsmenn hefðu frelsi til athafna, en
ekki til vanrækslu. Öruggasta leiðin væri auðvitað að gera ekki neitt, en fyrir slíka
starfsmenn væri ekki rúm hjá Össuri.
Samvera starfsmanna, eins og sú sem blaðamaður varð vitni að á fundinum í
Salnum í Kópavogi, sýnist gulls ígildi fyrir fyrirtækið og starfsmenn þess. Þeir gengu
af fundinum sannfærðir um að sameiginlega mynduð þeir góða heild. Allir væru
mikilvægir, enginn væri veikur hlekkur, eða vildi vera það.
„Heimsmarkaðshlutdeild
okkar er um 20%, en við
erum stöðugt meira í dýrari
vörum sem fara gegnum
heilbrigðistryggingakerfið.“
U P P F I N N I N G Á H E I M S V Í S U