Frjáls verslun - 01.01.2005, Blaðsíða 24
24 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 5
22. desember
60 milljarðar
fyrir Geest
Samkomulagt tókst skömmu
fyrir jól um yfirtöku Bakkavarar
Group á matvælafyrirtækinu
Geest í Bretlandi. Það ræðist
hins vegar núna í febrúar hvort
af henni verður. Um er að
ræða eina mestu fjárfestingu
Íslendinga erlendis, en heildar-
kaupverð Bakkavarar á fyrir-
tækinu er tæplega 60 milljarðar
króna. Endanleg ákvörðun um
kaupin verður tekin að lokinni
áreiðanleikakönnun sem á að
ljúka núna í febrúar. Þeir sem
fjármagna kaupin á Geest eru
Bank of Scotland, Royal Bank of
Scotland og Rabobank í Hollandi.
31. desember
Spenna á milli
Einars og Helga vegna
Jóns Þórissonar
Það var augljós spenna í banka-
ráði Íslandsbanka á gamlárs-
dag vegna uppsagnar Jóns
Þórissonar, aðstoðarforstjóra
bankans og staðgengils for-
stjórans, hinn 29. desember sl.
Haldinn var sérstakur aukafundur
í bankaráði Íslandsbanka til
að ræða uppsögnina og upp á
yfirborðið kom augljós spenna
innan ráðsins vegna uppsagnar-
innar. Bankaráðsmennirnir
Helgi Magnússon og Úlfar
Steindórsson voru óánægðir
með það hvernig staðið var að
uppsögn Jóns . Boðað var til
aukafundar í bankaráði og sagði
Einar Sveinsson, formaður bank-
aráðs Íslandsbanka, eftir fundinn
að Bjarni nyti fyllsta trausts
ráðsins, ráðning starfsmanna
væri ótvírætt á verksviði forstjóra
sem bæri einn ábyrgð gagnvart
bankaráðinu. Helgi Magnússon
var ekki sáttur við þessa túlkun
og sagði það ekki rétt að banka-
ráðið væri einhuga í þessu máli.
Hann væri engan veginn sam-
mála þessari ráðstöfun, taldi
forkastanlegt að ráðið skyldi
ekki hafa verið kallað saman
áður en Bjarni segði Jóni upp
og lagði áherslu á að hann bæri
enga ábyrgð á brottrekstri Jóns.
Bankaráðið hefði staðfest ráðn-
ingu Jóns og samþykkt að hann
skyldi vera staðgengill forstjór-
ans og því hefði ráðið einnig átt
að fjalla um brottvikningu hans
áður en til hennar kæmi.
4. janúar
Sigurjón í flíspeysurnar
Það hafði verið kvittur um það
í nokkurn tíma að Sigurjón
Sighvatsson kvikmyndafram-
leiðandi væri á leiðinni inn í
66°Norður. Það gekk síðan eftir
í fyrstu viku ársins þegar hann
keypti ráðandi hlut í fyrirtækinu
í samstarfi við Sjóvá-Almennar.
Sigurjón ætlar í verulega úrás
með fyrirtækið og hyggst koma
merkinu að í kvikmyndaiðnað-
inum. Fyrrverandi eigandi og
forstjóri 66°Norður var Þórarinn
Elmar Jensen.
(Sjá blaðsíðu 74).
11. janúar
Í heimsráði
ungra leiðtoga
Íslendingar eignuðust tvo leið-
toga á heimsvísu í janúar þegar
tilkynnt var að Björgólfur Thor
Björgólfsson og Jón von Tetchner
væru tveir af 237 ungum stjórn-
endum í heiminum sem hafa
verið valdir til að taka þátt í verk-
efninu Forum of Young Global
Leaders. Í þessu verkefni vinna
ungir stjórnendur, undir 40 ára
aldri, saman næstu fimm árin
með það að markmiði að skapa
bjartari framtíð. (Sjá ennfremur
forsíðuefni).
17. janúar
Hannes starfandi
stjórnarformaður
Sama dag og Sigurður Helgason
tilkynnti að hann hefði ákveðið
DAGBÓK I N
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON • MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON
Bræðurnir í Bakkavör, Lýður og
Ágúst Guðmundssynir.
Jón Þórisson.
5. janúar
Jón Diðrik Jónsson
Nokkra athygli vakti þegar
Íslandsbanki kynnti nýtt skipu-
rit sitt í byrjun ársins að Jón
Diðrik Jónsson, fyrrverandi forstjóri Ölgerðarinnar, var orðinn
framkvæmdastjóri fjárfestinga- og alþjóðasviðs. Það var ekki
síst vegna þess að Jón Diðrik hafði enga reynslu úr banka-
heiminum heldur eingöngu úr gosdrykkjaiðnaðinum, bæði
hér heima og erlendis. Samkvæmt skipuritinu voru viðskipta-
bankasvið og rekstarsvið Íslandsbanka sameinuð og Haukur
Oddsson ráðinn nýr framkvæmdastjóri hins sameinaða sviðs.
Haukur hefur verið starfsmaður Íslandsbanka í tuttugu ár,
m.a. sem framkvæmdastjóri upplýsingasviðs. Þar með tók
Haukur við starfi Jóns Þórissonar sem sagt var upp skömmu
fyrir áramótin.