Frjáls verslun - 01.01.2005, Blaðsíða 30
30 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 5
D A G B Ó K I N
Frjáls verslun valdi Ragnhildi
Geirsdóttur, nýráðinn forstjóra
Flugleiða, sl. vor sem eina af tíu
áhrifamestu konum íslensks við-
skiptalífs. Þar sagði meðal ann-
ars um hana: „Ragnhildur er ein
af nýstirnunum í viðskiptalífinu.
Frami hennar hefur verið mikill
innan Flugleiða á skömmum
tíma.“
Ragnhildur Geirsdóttir er 33 ára
og hóf störf hjá Flugleiðum árið
1999. Hún vann áður hjá FBA.
Hún er verkfræðingur og hefur
síðastliðið ár verið framkvæmda-
stjóri rekstrarstýringarsviðs
Icelandair sem hefur verið eitt af
fjórum meginsviðum félagsins.
Þá settist hún óvænt í stjórn
Flugleiða sl. vor. Ragnhildur er
fyrsta konan til að gegna starfi for-
stjóra Flugleiða. Núna starfar 21
kona sem forstjóri fyrirtækja á 300
stærstu lista Frjálsrar verslunar.
Í viðtali við Frjálsa verslun sl.
vor sagði hún: „Ég hef alltaf
verið mjög metnaðarfull, þó ekki
þannig að ég hafi ætlað mér eitt-
hvað sérstakt. En ég hef alltaf
viljað hafa áhrif á það sem ég
hef starfað við og lagt áherslu á
að gera það vel sem ég geri. Ég
ráðlegg öllu ungu fólki að hugsa
um sitt áhugasvið þegar það
velur sér starfsvettvang. Maður
eyðir svo miklum tíma í vinnunni
að maður verður að hafa gaman
af því sem maður er fást við. Og
svo verður maður að átta sig á
því að það kostar mikla vinnu
ef mann langar til að komast
áfram.“
Frjáls verslun birti afar skemmti-
lega nærmynd af Jóni Karli
Ólafssyni í fjórða tölublaði
síðasta árs þar sem sagt
var að hann væri gjarnan
nefndur til sögunnar sem arf-
taki Sigurðar Helgasonar sem
næsti forstjóri Icelandair. Jón
Karl var þá nýkjörinn formaður
Verslunarráðs. Í nærmyndinni
kom fram að samferðamenn
teldu hann hæfan leiðtoga. Þeir
tóku sérstaklega fram að ekki
væri átt við að hann væri þessi
dæmigerði sterki leiðtogi heldur
hefði hann einstakt lag á að drífa
fólk áfram með sér.
Jón Karl er fæddur á þeim ágæta
degi, 12. september 1958. Hann
gekk í Melaskóla, Hagaskóla
og Menntaskólann í Reykjavík.
Hann lauk viðskiptafræðiprófi frá
Háskóla Íslands árið 1984 og
réði sig strax til Flugleiða. Hann
varð forstjóri Flugfélags Íslands
árið 1999 og hefur snúið þar
hálfvonlausum rekstri í hagnað.
Eiginkona hans er Valfríður Möller
og eiga þau fjögur börn.
Jón Karl þykir yfirleitt hrókur
alls fagnaðar þar sem hann
kemur og þykir mikill gleðigjafi.
Hann var á námsárum sínum í
hljómsveitunum Basil fursti og
Nátthröfnum. Þá spilaði Jón Karl
með hljómsveit á þorrablótum
í Frankfurt en hann var svæðis-
stjóri Flugleiða í Þýskalandi til
margra ára.
Frjáls verslun valdi Ragnhildi sl. vor sem eina af tíu áhrifamestu konum við-
skiptalífsins.
Í þrælskemmtilegri nærmynd Frjálsrar verslunar af Jóni Karli fyrir um
ári var sagt frá því að hann væri gjarnan nefndur sem arftaki Sigurðar
Helgasonar.
16. febrúar
Nærmynd af Jóni Karli
16. febrúar
Ein af tíu áhrifamestu
– Dregur úr s‡rumyndunAs‡ran
Notkunarsvi›: As‡ran inniheldur ranitidín sem er nota› vi› sárasjúkdómum í meltingarfærum, s.s. maga- og
skeifugarnasárum og er fyrirbyggjandi gegn slíkum sárum. Lyfi› er nota› vi› bólgum í vélinda sem stafa af flví a›
magas‡ra kemst úr maga upp í vélinda. Varú›arreglur: Fólk sem hefur ofnæmi fyrir ranitidíni, barnshafandi konur
og konur me› börn á brjósti mega ekki nota lyfi›. Fólki me› skerta n‡rnastarfsemi er bent á a› rá›færa sig vi› lækni
á›ur en lyfi› er teki›. Aukaverkanir: Um 3-5% sjúklinga finna fyrir einhverjum aukaverkunum af völdum As‡ran‚
eins og t.d. höfu›verk, útbrotum, flreytu, ni›urgangi og svima. Skömmtun: Nákvæmar lei›beiningar um skömmtun
fylgja lyfinu. Ekki má taka stærri skammta en mælt er me›. Lesi› vandlega lei›beiningar sem fylgja lyfinu. 15.10.01
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
/
A
C
TA
V
IS
4
0
6
0
6
1
www.actavis.is