Neytendablaðið - 01.03.2011, Qupperneq 3
Ertu á leið til útlanda?
Nýjung fyrir félagsmenn - Ferðahandbókin
• Er nauðsynlegt að kaupa forfallatryggingu?
• Hvar er hægt að gista nálægt flugvellinum í
Kaupmannahöfn?
• Hvenær á að gefa þjórfé?
• Er ég tryggður ef ég þarf að leggjast inn á spítala?
• Hvert er hægt að fara með ferðatösku í viðgerð?
• Borgar sig að versla í fríhöfninni?
• Hvenær borgar sig að sigla með Norrænu í stað þess
að fljúga?
Svörin við þessu og ótal öðrum spurningum er að finna í ferða
hand bókinni sem félagsmenn Neytendasamtakanna hafa nú
að gang að á læstum síðum. Bókina má lesa á netinu eða prenta út
og taka með í ferðalagið.
Höfundur bókarinnar er Ian Watson en hann hefur um árabil
starf að við ferðahandbókaútgáfu í Bandaríkjunum og einnig starfað
sem fararstjóri. Ian hefur umsjón með gæðakönnunum Neytenda
blaðs ins og situr í stjórn Neytendasamtakanna.
Fylgist betur með starfi Neytendasamtakanna!
Neytendasamtökin eru komin á Facebook. Ert þú vinur?
Nýjung fyrir félagsmenn
Félagsmönnum gefst nú kostur á að fá mælitækið Sparo
meter lánað heim. Með því að tengja mælinn við einstök
heim ilistæki er hægt að sjá hversu mikið rafmagn þau nota
og hvað það kostar.
• Er gamli ísskápurinn of dýr í rekstri þó hann virki enn?
• Hvað kostar að hafa sjónvarpið í biðstöðu allan sólar
hringinn?
• Taka hleðslutækin rafmagn þó fartölvan sé ekki í
hleðslu?
• Hverju munar á sparperu og glóperu í stofulampanum?
• Á ég að kynda með rafmagnsofni eða fara í hlýja peysu?
Fáðu yfirsýn yfir rafmagnsnotkunina á heimilinu eða í
sumar bústaðnum með Sparometerer. Eini kostnaðurinn
fyrir félagsmenn er tryggingargjald að upphæð 7000, kr.
sem fæst endurgreitt við skil. Upplýsingar á skrifstofu Neyt
enda samtakanna, s. 5451200 eða ns@ns.is
Árgjald Neytendasamtakanna
Við ákvörðun árgjaldsins hefur yfirleitt verið tekið tillit til þróunar á vísitölu neysluverðs, enda hækka margir útgjaldaliðir í rekstri
samtakanna í samræmi við það.
Frá hruninu hefur árgjaldið hins vegar ekki tekið mið af vísitölunni. Þannig tók stjórn Neytendasamtakanna ákvörðun um að hafa óbreytt
árgjald milli árana 2008 og 2009. Um áramótin 200910 var árgjaldið hins vegar hækkað um 4,7% og um síðustu áramót var ákveðið að
hækka árgjaldið um 4,4% og er það nú 4.700 krónur. Þannig hefur árgjaldið hækkað um 9,3% á undanförnum þremur árum en á sama
tíma hefur almennt verðlag hækkað um 19,5%.
Megin tekjustofn samtakanna eru félagsgjöld en aðrir tekjuliðir hafa einnig dregist saman á þessu tímabili. Þar munar mestu um tæplega
30% lækkun á framlagi ríkisins vegna þjónustusamnings við Neytendasamtökin.
Það er von Neytendasamtakanna að félagsmenn taki þessum hækkunum með skilningi. Ef ekki hefði verið gripið til þeirra hefði þurft að
draga úr starfsemi og þjónustu samtakanna. Miðað við þann grundvöll sem Neytendasamtökin starfa á hefði slíkur niðurskurður verið mjög
erfiður, enda má segja að vegna fámennis hér á landi sé samtökunum aðeins mögulegt að halda uppi lágmarksstarfsemi, allavega ef miðað
er við neytendasamtök í nágrannalöndum okkar.
3 NEYTENDABLA‹I‹ 1. TBL. 2011