Neytendablaðið - 01.03.2011, Side 4
Frá leiðbeininga- og kvörtunarfljónustunni
Í viðskiptum fólks við tryggingafélög kemur oft upp ágreiningur
sem ekki tekst að leysa úr og er málum því gjarnan skotið til
úr skurð a nefndar vátryggingamála. Málafjöldi fyrir nefndinni
er afar mikill og hafa henni borist um 3.000 mál til meðferðar
síðast liðin tíu ár. Greiða þarf 6.000 krónur ef mál er lagt fyrir
nefnd ina en það gjald fæst endurgreitt ef niðurstaðan er neyt-
anda í vil.
Dæmi um mál - parket bætt
Vatnsleki kom upp í eldhúsi og skemmdi parket en um var að ræða
samfellt parket sem náði yfir eldhús, hol og stofu. Tryggingafélagið
vildi að skipt yrði um parket í eldhúsinu og settir skillistar milli
eldhúsgólfsins og stofu og holgólfsins. Neytandinn lagði hins
vegar til að hinu skemmda parketi yrði skipt út fyrir nýtt og allt
gólf efnið síðan slípað saman enda mundi gólfið þá vera í sama
ástandi og fyrir tjónið. Nefndin féllst á þessa tillögu enda yrði þá
áfram sami heildarsvipur á öllu gólfinu auk þess sem fasteignin
mundi ekki rýrna að verðgildi eða gæðum.
Dæmi um mál - gæludýratrygging
Í öðru máli sem fór fyrir nefndina hafði neytandi tekið gæludýra
tryggingu vegna tíkar að upphæð 300.000 kr. Tíkin dó og þegar
neytandinn ætlaði að innheimta bæturnar neitaði tryggingafélagið
að greiða nema 180.000 kr. og taldi að markaðsvirði tíkarinnar
væri ekki meira. Nefndin taldi þó að tryggingafélagið hefði ekki
getað sýnt fram á að virði dýrsins væri minna en tiltekið var í skír
teini. Var félaginu því gert að greiða bætur í samræmi við það, eða
300.000 kr.
Vátryggingamál
Maður nokkur fór í frí til Filippseyja. Hann tók sér leigubíl á hótelið
og skildi ferðatöskurnar eftir í bílnum eftir að hafa beðið leigu
bíl stjór ann að koma með töskurnar inn á eftir sér. Svo fór hins
vegar að leigubílstjórinn keyrði burt með töskurnar innanborðs.
Maðurinn fór því fram á bætur úr innbúskaskótryggingu sinni.
Tryggingafélagið hafnaði bótaskyldu með vísan til ákvæðis
í skilmálum um að félagið bæti ekki tjón sem verður þegar
vátryggður gleymir hlut, misleggur eða týnir. Ennfremur byggði
félagið á því að tjón á munum sem stolið væri úr ólæstum bílum,
eða munum sem skildir væru eftir á almannafæri, bættist ekki.
Nefndin féllst hins vegar ekki á að maðurinn hefði týnt eða gleymt
töskunum og taldi ekki hægt að rekja tjónið til þess að töskurnar
hefðu verið skildar eftir á almannafæri. Var tryggingafélaginu því
gert að bæta tjónið.
Á síðasta ári bárust ríflega 10.000 erindi til leiðbeininga og kvört unar þjónustu Neytendasamtakanna. Flestar fyrirspurnir vörðuðu
raftæki, fjármála og innheimtufyrirtæki, bifreiðar og önnur farar tæki og fjarskiptafyrirtæki. Í fimmta sæti voru svo fyrirspurnir vegna
húsaleigumála og jukust þær um 90% milli ára. Þá höfðu Neytendasamtökin milligöngu í 199 kvörtunarmálum, en flest málanna
vörðuðu Evrópsku neytendaaðstoðina og viðskipti við fjarskiptafyrirtæki. Aldrei hafa fleiri mál borist Evrópsku neyt enda aðstoðinni en
í fyrra.
Ársskýrslurnar má finna á www.ns.is og www.ena.is. Þar er að finna ýmsar tölfræðiupplýsingar auk dæma um mál sem komu til kasta
Neytendasamtakanna á síðasta ári.
Ágreiningur við tryggingafélög
Yfir hverju er mest kvartað?
– raftæki, fjármál, bifreiðar og húsaleiga
Algengt er að fólk tryggi gæludýrin sín.
4 NEYTENDABLA‹I‹ 1. TBL. 2011