Neytendablaðið - 01.03.2011, Page 7
Samkvæmt nýjustu tölum eru 193.000 Íslendingar á Facebook.
Sumir eru þar eingöngu til að fylgjast með hvað aðrir segja og
gera, en deila litlu um sjálfa sig. Aðrir tjá sig oft á dag um fólk,
fréttir og eigin stöðu í lífinu. Sumir kæra sig ekki um neinar
myndir á Facebook á meðan aðrir deila myndum af sjálfum sér,
fjölskyldu og vinum. Þannig er Facebook; hátterni eins misjafnt
og menn eru margir!
Ekkert er ókeypis
Skilmálar Facebook hafa lengi verið í umræðunni og gagnrýndir
af neytendasamtökum víða um heim. Viðskiptahugmyndin að
baki Facebook byggist á að safna sem mestum upplýsingum um
sem flesta notendur en það gerir fyrirtækið gríðarlega mikils virði.
Þótt allir geti notað Facebook ókeypis greiða þeir í raun fyrir með
persónuupplýsingum sem þeir gefa upp .
Leiðin að markhópnum
Markaðsmenn voru fljótir að átta sig á möguleikum Facebook
og í dag hafa fjölmargir seljendur komið sér fyrir á Facebook þar
sem þeir auglýsa vörur og þjónustu. Persónuupplýsingar notenda,
t.d. um þjóðerni, aldur, kyn og áhugamál, hjálpa auglýsendum að
afmarka markhópinn sem markaðssetningin á að beinast að og
hvergi er auðveldara aðgengi að þessum upplýsingum en einmitt
á Facebook.
Iðar af lífi
Seljendur nota fleiri leiðir en venjulegar auglýsingar. Hver sem
er getur stofnað hóp eða aðdáendasíðu á Facebook til að vekja
athygli á verslun, þjónustu, málstað eða hverju sem er. Facebook er
markaðstorg sem iðar af lífi. Rétt eins og í raunheimum finnast þar
allar gerðir seljenda; stór og smá fyrirtæki, einyrkjar, götusalar og
tombólukrakkar.
Útsmognar leiðir
Markaðsmenn virkja einnig notendur til að breiða út boðskap
sinn. Söluherferðir byrja oft á Facebook. Aðdáendum er safnað
og þeim jafnvel gefin von um vinning, skrifi þeir eitthvað jákvætt
um vöruna og deili síðunni. Stundum hefst herferð án þess að upp
sé gefið hvaða vöru eða þjónustu er um að ræða. Til dæmis náði
smálánafyrirtæki að safna þúsundum aðdáenda áður en upplýst
var hvaða þjónusta var í boði. Það virðist vera auðvelt að ráðskast
með fólk á þessum vettvangi. Aðilar með töfralausnir eins og
megrunar og heilsuvörur eru áberandi og lítið eftirlit með því hvort
heilsufullyrðingar eða alhæfingar um eiginleika vöru séu réttar.
Áhættan er kaupandans
Sumir nýta sér Facebook til að selja fötin úr skápnum sínum og
margir eru tilbúnir að taka áhættuna þó þeir hafi ekki tök á að máta
eða skila flíkinni. Svo eru aðrir sem bjóðast til að kaupa varning í
útlöndum og taka þá að sér að flytja inn eða senda eftir að greiðsla
hefur borist. Dæmi er um að því sé lofað að farið verði fram hjá
tollalögum, en það er kaupandinn sem tekur áhættuna ef það
fer úrskeiðis. Viðskipti milli tveggja einstaklinga falla ekki undir
neytendakaup en sé um lögaðila (hefðbundinn seljanda) að ræða
gilda ýmsar reglur sem þarf að fylgja.
Takmarkaðar upplýsingar
Það virðist vera lítið eftirlit með starfseminni sem fer fram á
Facebook og margar reglur eru brotnar án þess að einfalt sé fyrir
neytandann að ná fram rétti sínum. Upplýsingar er oft mjög
takmarkaðar og það er varasamt að kaupa af vefsvæði sem birtir
engar upplýsingar um seljandann nema netfang. Sumir seljendur
hafa eingöngu starfsemi á Facebook og þar rétt eins og hjá
öðrum vefverslunum gilda lög um húsgöngu og fjarsölu þegar
salan fer fram í atvinnuskyni. Eftirlit með lögunum er í höndum
Neytendastofu.
ÞH
Facebook speglar samfélagið
Götusalar, þrautskipulögð markaðssetning og allt þar á milli
7 NEYTENDABLA‹I‹ 1. TBL. 2011