Neytendablaðið - 01.03.2011, Page 22
Wal-Mart keðjan í Bandaríkjunum hefur tilkynnt um nýja fimm
ára áætlun sem miðar að því að auka hollustu þeirra matvæla
sem keðjan selur. Markmiðið er að lækka hlutfall salts, sykurs og
óhollrar fitu í sem flestum vörum auk þess sem verð á grænmeti
og ávöxtum verður lækkað.
Þetta framtak er meðal annars afrakstur viðræðna sem fyrirtækið
hefur átt við Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, en hún
hefur verið ötull talsmaður fyrir bættu mataræði og sýnt lýðheilsu
málum mikinn áhuga. Michelle tók formlega þátt í að kynna þessi
áform ásamt forsvarsmönnum WalMart í janúar síðastliðnum.
Þetta er í fyrsta skipti sem hún styður við framtak ákveðins
fyrirtækis og vakti það nokkra athygli. Sjálf segist Michelle sann
færð um að fyrst fyrirtæki eins og WalMart sé tilbúið að gera
breyt ingar af þeim toga sem hér um ræðir sé ástæða til bjartsýni.
Önnur fyrirtæki hafa reyndar áður tekið svipuð skref. Þannig lofaði
ConAgra Foods því að lækka saltinnihald í vörum sínum um 20%
fyrir 2015 og mörg fyrirtæki hafa sagst ætla að hætta að nota
transfitusýrur. Þar sem WalMart selur meiri mat en nokkur önnur
keðja í Bandaríkjunum og kaupir gríðarlegt magn af þarlendum
fram leiðendum telja næringarfræðingar að þessar breytingar
fyrirtækisins geti haft veruleg áhrif á úrval og verðlag á hollum
mat vælum. Michael Jacobson, sem starfar hjá óháðum samtökum,
Center for Science in Public Interest, segir WalMart vera í álíka
stöðu og matvælastofnun Bandaríkjanna (FDA). Keðjan geti í raun
ýtt mat væla iðnaðinum í rétta átt.
lofar hollari mat
Merkingar við nammibari
-reglum ekki fylgt
Það virðist nær undantekning að innihaldslýsing sé til staðar við
hina vinsælu nammibari þótt reglur kveði á um annað. Neytenda
samtökin hafa sent heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaga erindi þar sem
óskað var eftir að ástandið verði kannað og bætt úr málum þar sem
þess er þörf.
Kallað eftir Smiley-kerfi
Neytendasamtökin hafa sent erindi til stjórn
valda þar sem þau eru hvött til að taka
upp Smileykerfið, eða bros karla kerfið,
sem Danir innleiddu fyrir nokkrum árum.
Kerf ið gengur í suttu máli út á að eftirlits
skýrsl ur heil brigðisfulltrúa eru gerðar opinberar. Þannig
geta neytendur kynnt sér nýjustu úttektina á veit inga
hús um, bakaríum, ísbúðum eða öðrum þeim stöðum sem
höndla með mat. Ítarleg grein um Smileykerfið birtist í 2.
tbl. Neyt enda blaðsins árið 2009 en hana má einnig finna
á heima síðunni.
Leiðrétting
Í síðasta blaði var fjallað um Dvítamínneyslu. Þau leiðu
mistök urðu að rangar upplýsingar voru gefnar upp og var
skammtur mældur í míkgrógrömmum of hár. Rétt er:
Börn og fullorðnir: 10 µg (míkrógrömm) eða 400 IU (inter
national units).
Eldri en 61 árs: 15 µg (míkrógrömm) eða 600 IU (inter
nation al units)
Michelle Obama hefur beitt sér fyrir bættri lýðheilsu í tíð sinni sem forsetafrú.
Nammibarir í verslunum Hagkaups eru merktir eins og reglur segja til um.
22 NEYTENDABLA‹I‹ 1. TBL. 2011