Frjáls verslun - 01.01.2006, Blaðsíða 9
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6 9
ný verkefni og höfum við verið að feta okkur áfram í útboðum og
okkar eigin þróunarverkefnum og framkvæmdum og hefur það
gengið framar vonum.“
ATAFL er áfram í viðhalds og þjónustuverkefnum þó ekki sé það
í eins miklum mæli og áður: „Má segja að í dag gefum við okkur
út fyrir að framkvæma allt sem varðar byggingaframkvæmdir og
viðhald og eftir því sem hlutfall eigin verkefna eykst á móti útboðs-
verkum, þá verður sveiflujöfnun verkefna auðveldari.“
Framkvæmdir á eftirsóttum stöðum Þegar litið er á verkefnalista
ATAFLS þá er margs að geta. Eitt mjög spennandi verkefni er Ein-
holt-Þverholt, en á þessum eftirsótta stað í Reykjavík eru ráðgerðar
miklar breytingar og í stað gömlu bygginganna, sem þar eru, mun
rísa glæsileg íbúðabyggð.
Kári segir að svæðið sem um ræðir sé með um 200 íbúðir. „Mikil
þróunarvinna hefur farið fram við skipulagningu svæðisins. Þarna
eru mikil atvinnuhús fyrir sem til stendur að rífa en beðið er eftir
samþykki byggingaryfirvalda til að hægt sé að byrja framkvæmdir.
Í upphafi fórum við af stað með hönnunarsamkeppni og fengum
fjórar arkitektastofur til að gera frumtillögur að skipulaginu sem
lagðar voru fyrir skipulagsyfirvöld. Við höfum verið í góðu sam-
starfi við Reykjavíkurborg um að finna lausn sem flestir geta við
unað og nú fer loks að sjá fyrir endann á málinu og stutt er síðan
auglýsing á nýju deiliskipulagi birtist. Ef áætlanir standast gerum
við ráð fyrir að hægt verði að byrja framkvæmdir á svæðinu í
sumar.
Af öðrum verkefnum, sem í undirbúningi eru hjá ATAFLI, má
nefna að fyrirtækið er aðili að Akralandi ehf. ásamt Þyrpingu, en
Akraland á land báðum megin við Arnarnesveginn í Garðabæ.
Sunnan megin í Akrahverfi ætlar félagið að byggja nokkur einbýl-
ishús og raðhús en norðan megin sem snýr að Kópavogi vonast
Akraland til að geta skipulagt í góðu samstarfi við bæjaryfirvöld,
myndarlega íbúðabyggð, bæði fjölbýli og sérbýli. Ég get einnig
nefnt verslunar- og þjónustumiðstöð við Reykjanesbrautina í Tjarn-
arhverfi í Reykjanesbæ, þar byrjum við framkvæmdir með vorinu
ef allt gengur eftir. Þá er skrifstofubygging við Suðurlandsbraut 4
í hönnun, um er að ræða lóð við Hallarmúla sem tilheyrir Suður-
landsbrautinni.“
Áfram á sömu braut Meðal verkefna sem ATAFL er með í vinnslu
um þessar mundir má nefna 70 íbúðir við Sléttuveg í Reykjavík
fyrir Samtök aldraðra, 30 íbúða blokk í Norðlingaholti, 67 íbúðir
á Norðurbakkanum í Hafnarfirði, en þar er undirbúningsvinna
hafin, 20 íbúðir í Mosfellsbæ, stækkun Bláa lónsins, og stækkun
Björgunarmiðstöðvarinnar við Skógarhlíð. Kári nefnir einnig að
fyrirtækið hafi verið að skila af sér stækkun á hjúkrunarheimili að
Droplaugarstöðum og Bónusverslun í Hafnarfirði. „Við erum einnig
með verkefni á ýmsum stöðum utan höfuðborgarsvæðisins, meðal
annars tengivirkið við stöðvarhús Kárahnjúkavirkjunar og 50 metra
sundlaug í Reykjanesbæ.“
Þegar Kári er spurður hvernig hann líti á ATAFL í dag í ljósi
breytinga sem hafa orðið á starfseminni þá segir hann það fyrst og
fremst að þakka kröftugu og samstilltu starfsfólki, sem hafi hag fyr-
irtækisins að leiðarljósi, að vel hafi gengið, og lítur hann björtum
augum til framtíðarinnar. „Við höldum áfram þeirri þróunarvinnu
sem við höfum verið að vinna og ætlum okkur að auka enn eigin
framkvæmdir um leið og við reynum að bæta og treysta þjónustu
við viðskiptavini okkar og auka hagkvæmni í rekstri.“
NÝTT NAFN OG AUKIN ÁHERSLA
Á EIGIN FRAMKVÆMDIR
Kári Arngrímsson, forstjóri ATAFLS hf.
TEXTI: HILMAR KARLSSON
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON
������